Víkurfréttir - 24.10.1991, Page 17
FRETTIR
Kvennadeild AA stofnuö í Grindavík:
Allar áhugasamar
konur velkomnar
Grindvíkingar eru virkir í fé-
lagsstarfi ýmiskonar og eins og
greint var frá í síðasta tölublaði
Víkurfrétta hefur þar verið
stofnsett kvennadeild innan AA
samtakanna. Eru fundir í deild-
inni eru haldnir að Víkurbraut
34 alla laugardaga kl. 14:00.
Fundimir hjá kvenna-
deildinni eru frjálslegir og þar
ríkir engin sérstök stjórn eða
nefnd sem segir fyrir verkum,
heldur ræðir fólk þar sín mál í
ró og næði og eftir hentugsemi.
I tilkynningu frá kvenna-
deildinni í síðasta blaði læddist
fyrir mistök inn undirskriftin
stjórnin, sem alls ekki átti að
vera. Hinsvegar vilja konumar
í AA deildinni í Grindavík
bjóða allar konur á Suð-
umesjum sem áhuga hafa á að
koma, velkomnar á fundi
deildarinnar.
Mest aukning
starfsfólks
hjá Víkurfréttum
Mestu sviftingar milli áranna
1989 og 1990 varðandi fjölda
starfsmanna fyrirtækja á Suð-
urnesjum voru hjá Víkurfréttum
hf. Samkvæmt úttekt Frjálsrar
verslunarer fyrirtækið í 28. sæti
yfir landið varðandi fjölmiðla
og bókargerðarfyrirtæki með að
meðaltali 22 starfsmenn og
jókst sá fjöldi um 152% milli
ára. Meðallaun eru aðeins 435
þúsund á ári.
Skýringarnar á þessu eru þær
að Víkurfréttir eru eitt örfárra
fyrirtækja á landinu sem full-
nægir skattalögum og telur fram
tekjur blaðburðarfólks og
einmitt á árinu 1990 bættist við
á launaskrá dreifingarfólk
Reykjanesins. Mcðallaunin eru
þetla lág því eins og gefur að
skilja er dreifmg blaðsins hönd-
um margra aðila og heildarlaun
hvers og eins því í lægri kant-
inum.
Tæpir 1100
starfsmenn hjá
Varnarliðinu
að meðaltali
Það fyrirtæki á Suðurnesjum
sem hafði á árinu 1990 flesta
starfsmenn var Varnarliðið, með að
meðaltali 1096starfsmenn. Varþað
jafnframt sjötti stærsti vinnu-
veitandi landsins. Kemurþetta fram
í nýjasta hefti Frjálsrar verslunar.
Jafnframt kemur fram að fimm
stærstu verktaka- og bygg-
ingaiðnaðarfyrirtækin á Suð-
urnesjum eru Islenskir Að-
alverktakar. Dverghaniar. Tré-
smiðja Þorvaldar Olafssonar,
Rammi og Ellert Skúlason.
Eru IAV stærstir á þessu sviði
yftr landið með að meðaltali 517
starfsmenn. Dverghamar hafði að
meðaltali með 78 starfsmenn og var
í 7. sæti yfir landið. I 26. sæti yftr
landið var Tré-X með 38 starfs-
menn að meðaltali, í 27. sæti
Rammi með sömu tölu og síðan var
Ellert Skúlason með 28 starfsmenn
að meðaltali, í 36. sæti yfir landið í
þessari starfsgrein.
Björgunarsveitin
Ægir, Garöi:
FYRSTA FÉLAGS-
VISTIN í KVÖLD
Ein af þeim fjár-
öflunarleiðum sem Björg-
unarsveitin Ægir í Garði hefur
haft tekjur af á undanförnum
árum eru félagsvistir. Nú eru
vistirnar að fara í gang að nýju
eftir langt og gott sumarfrí.
I vetur verður spilað í verka-
lýðshúsinu sem staðsett er á
bakvið símstöðina í Garði.
Spilað verður á fimnitu-
dagskvöldum kl. 20:30 til að
byrja með en ef aðrir dagar
henta fólki betur verður það rætt
við spilarana.
Fyrsta félagsvistin er í kvöld
og eru góðir vinningar í boði.
Spilanefndin hjá Bjögrun-
arsveitinni Ægi hvetur alla
gömlu góðu spilarana til að
mæta og einnig viljum við sjá
ný andlit. Fyrir þá sem ekki
kunna að spila vist er hægt að
segja að jtetta er auðveldur
leikur og lærist á einni kvöld-
stund. Við ítrekum að það eru
allir velkomnir í Sæborgu, hús
Verkalýðs- og sjómannafélags
Gerðahrepps í kvöld á meðan
húsrúm leyfir. Að sjálfsögðu er
verðinu stillt í hóf og kaffi-
þyrstir geta drukkið vökvann
svarta eins og þá lystir, því að
sjálfsögðu er ókeypis kaffi á
könnunni.
Spilanefndin
Staöa At-
vinnutyggingasjóös
frá upphafi:
Tæpar 650 milljónir
lánaðar til
Suðurnesja
Samkvæmt stöðu lána
Atvinnutryggingasjóðs út-
flutningsgreina 31.12.90
hel'ur sjóðurinn úthlutað
lánunt til 49 aðila á Suð-
umesjum upp á tæpar 650
ntilljónir króna. Kentur
þetta fram í ársskýrslu
Bygaðastofnunar fyrir
árið 1990.
Einn aðili sker sig úr,
með 133 milljónir, þegar
aðrir aðilar af Suð-
urnesjum em mest með
rétt rúmar 43 milljónir
króna. Sá aðili sem er
stærstur er Miðnes lif. í
Sandgerði.
Reykjanes-
grunn
Grunn suð-suðvestur af
Reykjanesi. Dýpi: 100-200 m;
milli Skerjadjúps og Grinda-
víkurdjúps; góð fiskimið.
Útför Árna
heitins
á morgun
Útför Árna Vigfúsar Árna-
sonar, Faxabraut 38d, Kefla-
vík sem lést í árekstri á
Reykjanesbraut rétt innan við
Vogastapa, fer fram frá
Keflavíkurkirkju á morgun
föstudag kl. 14.
Hann var 49 ára, fæddur
19. janúar 1942, starfsmaður
hjá Vamarliðinu, auk þess
sem hann kom víða við í fé-
lagsmálum, var m.a. sókn-
arnefndarformaður Kefla-
víkursóknar. Ámi V.
Árnason lætur eftir sig eig-
inkonu og fjórar dætur.
ÍP
Arni Vigfús Árnason
17
Víkurfréttir
24. okt. 1991
Handarísk fjölskylda
óskar eftir stórri íbúð eða ein-
býlishúsi í 1-2 ár. Uppl. í síma
14629 (símsvari)
og 57732.
Til leigu
Herbergi
með aðgangi að baði, eldhúsi
og sjónvarpi. Á sama stað
óskast þvottavél til kaups. Uppl.
í síma 15859.
Lítil kjallaraíbúð
Uppl. í síma 14987.
3ja herbergja íbúð
á góðum stað, laus strax, fyrir
reyklaust fólk. Uppl. í síma
11509.
4ra herbergja íbúð
í tvíbýli í Keflavík, sér inn-
gangur laus 1 .nóvember. Nöfn
og símanúmer leggist inn á
skrifstofu Víkurfrétta merkt
„íbúð“
Til sölu
Hornsófasett
með glerborði. Uppl. í síma
14240.
Frá slvsstað á Reykjanesbraut. Ljósrn.: hbb.
Ríkið segi upp öllum
Um síðustu helgi var haldinn
í Vestmannaeyjum 3. aðal-
fundur Samtaka bæjar- og hér-
aðsfréttablaða. í þeim sam-
tökum eru 16 bæjar- og hér-
aðsfréttablöð hringinn í
kringum landið. Eina Suð-
umesjablaðið sem aðild á að
samtökunum er Víkurfréttir, en
meðal stofnaðila var Reykja-
nesið og á síðasta aðalfundi var
Bæjarblaðið tekið inn. Sem
kunnugt er þá hafa þau bæði
lagt niður útgáfu. Suð-
urnesjafréttum var nú boðin að-
ild^en hún ekki þegin.
Á aðalfundinum voru flutt
fróðleg erindi um ýmislegt er
fylgir blaðaútgáfu, auk þess
sem fram fóru venjuleg að-
alfundarstörf. I stjóm voru
kjömir:
Páll Ketilsson, Víkurfréttum;
Gísli Valtýsson, Fréttum, Vest-
mannaeyjum; Sigurjón Sig-
urðsson, Bæjarins besta, ísa-
firði; Fríða Proppé,
Fjarðarpóstinum, Hafnarfirði;
og Sigurður Sverrisson, Skaga-
blaðinu, Akranesi. Þeir Páll og
Sigurður hafa verið í stjóminni
frá upphafi og Gísli var nú end-
urkjörinn, aðrir eru nýir í
stjóminni.
Eitt af aðalmálum fundarins
voru samskipti ríkisvaldsins og
blaðanna. Að umræðum lokn-
um var eftirfarandi ályktun
samþykkt samhljóða:
„Áðalfundur Samtaka bæjar-
og héraðsfréttablaða haldinn í
Vestmannaeyjum 18. til 20.
október 1991 lýsir yfir ánægju
sinni með þá ákvörðun fjár-
málaráðherra, að segja upp því
eina eintaki af hverju að-
ildarblaða samtakanna sem
keypt var.
Aðalfundurinn hvetur stjórn-
völd til að stíga skrefið til fulls,
segja upp öllum fjöl-
miðlaáskriftum og afnema alla
flokkspólitíska útgáfustyrki.
Þar með sitja allir fjölmiðlar við
sama borð.
Aðalfundur Samtaka bæjar-
og héraðsfréttablaða ítrekar, að
blöð innan samtakanna vilja
standa á eigin fótum, án rík-
isstyrks. Engu að síður álítur
fundurinn, að hið opinbera
mætti í mun rtkari mæli en gert
er, nýta sér þá þjónustu sem
blöðin bjóða upp á.“
Lada-Sport og Peugeot 505
GRD station diesel
Lada Sport árg. 84. Peugeot '83
átta manna. Uppl. í síma
15124.
Dekk
13 tommu Norðdekk, nelgd
vetradekk, verð kr. 15.þús.
Einnig 31 tommu Dunlop heils-
ársdekk 10 1/2 tommu breið
með Toyota álfelgum verð kr.
55.þús. Uppl. í síma 12011
Borðstofuborð og stólar
Sófasett 4+2+1, lyft-
ingarbekkur, skrifborð með
hillum hvítt, svartur stereo
rekki. Uppl. í síma 16021 eftir
kl.20.00.
Hornsófasett + 1 stóll
og borð, einnig 2 bambus stól-
ar. Stereo 4ra rása Fisher
magnari 4 hátalarar AR 3 og
plötuspilari. Uppl. í síma 14775
eftirkl. 17.00.
Ýmislegt
Tapað f'undið
Sá eða sú sem tók galla-
buxurnar og lögguskóna
í sameigninni að Heiðarholti 20
fyrir hálfum mánuði síðan.
Vinsamlegast skili því aftur á
sama stað.
Þrír kettlingar frást gefins.
Uppl. í síma 15578.
Greiðslukorta-
þjónusta
t
Bróðir minn
ODDUR ÞORKELSSON
andaðist á Hlévangi, 23. október.
Valgarður Þorkelsson