Víkurfréttir - 24.10.1991, Síða 19
19
íþróttir
Körfuknattleikúr/
Japisdeild:
Keflvíkingar
rúlluðu
yfir Valsara
Ketlvíkingar léku fjórða leik
sinn í Japisdeildinni í fyrra-
kvöld. Sóttu þeir Valsmenn
heim að Hlíðarenda.
Keflvíkingar tóku strax öll
völd í sínar hendur í leiknum og
náðu 10 sliga forystu, sem þeir
héldu til loka fyrri hálfleiks.
Staðan í hálfleik var 54:44.
Keflvíkingar héldu upp-
teknum hætti / seinni hálfleik
og skoruðu önnur 54 stig. gcgn
aðeins 41 stig Valsmanna.
Ketlvíkingar sigruðu því með
23 stigum. 108:85.
Hittni Keflvíkinga í leiknum
var með afbrigðum góð og
skoraði liðið alls 17 þriggja
stiga körfur. Þar af gerðu bak-
verðirnir Hjörtur og Jón Kr. 5
hvor.
Stigin skoruðu annar þessir:
Jónatan Bow 29, Hjörtur Harð-
ar 22. Jón Kr. 19. Sigurður
Ingimundar 16, Nökkvi Jóns 7.
Brynjar Harðar 6. Kristinn
Friðriks 6. Júlíus Friðriks 2, og
Birgir Guðfinns 2.
Tæpt hjá
Njarðvík
gegn Snæfelli
Njarðvíkingar máttu hrósa
happi yfir sigrinum gegn Snæ-
felli í Stykkishólmi. þegar þeir
heimsóttu þá á sunnúdaginn.
Snæfellingar tóku hraustlega
á móti Islandsmeisturunum.
nteð Hreitt Þorkelsson fremstan
í fararbroddi. Var leikurinn í
járnum mest allan tímann, og
staðan í hálflcik 42:38, Njarð-
vík í vil. A lokasprettinum náðu
Njarðvíkingar að knýja fram
sigur. þrátt fyrir að Snæ-
fellingar fengju tækifæri að
komast vfir. Lokatölur leiksins
voru 83:82.
Ronday Robinson og Teitur
Orlygsson voru sem fýrr at-
kvæðamestir hjá Njarðvík.
Ronday skoraði 22 stig, Teitur
20. Kristinn Einarsson 12.
Friðrik Ragnarsson 10, Hreiðar
Hreiðarsson 9, Jóhannes Krist-
björnsson 8. og Isak Tómasson
2
Haukarnir engin
hindrun
fvrir ÍBk
Slakir Haukar voru engin
hindrun fyrir ÍBK í fvrsta
heimaleiknum á þessu leik-
tímabili. Yfirburðir ÍBK koniu
snemma í Ijós og hafði liðið 21
stigs fory'stu í hálfleik. 53:32.
I síðari hálfleik hélt ein-
stefnan áfram. og lokatölurnar
urðu 116:82.
Stigin: Jón Kr. 23. Jónatan
22. Nökkvi 20, Sigurður 17,
Hjörtur 15. Kristinn 10, Birgir
6, Brynjar 2, og Júlítts 1.
UMFG-UMFN
á
sunnudaginn
Njarðvíkingar fara í heim-
sókn til Grindavíkur á sunnu-
daginn, en þá fer fram 6. umferð
Japisdeildarinnar í körfuknatt-
leik. Verður án efa hart barist í
leiknum, en eins og þeir sem
fylgjast með vita, þá unnu liðin
hvoil sinn leikinn í Reykja-
nesmótinu. bæði á útivelli.
Leikurinn hefst kl. 20.00
Víkurfréttir
24. okt. 1991
Keflavikursigur i fyrsta
nágrannaslagnum
- sigruöu Grindvíkinga 88:77
Ég er þokkalega ánægður með
leikinn. Við lékum ekki vel
seinni hluta síðari hálfleiks, en
það vargott að vinna leikinn þrátt
Jónafan Bow hefur átt frá-bæra
leiki með IBK undanfarið.
fyrir að leika illa. Grindvík-
ingamir börðust vel á lokamín-
útunum og sýndu að þeir geta
bitið frá sér. Við náðum samt að
halda haus og leika góða vörn og
það skiptir máli,“ sagði Jonathan
Bow. leikmaður IBK. eftir leikinn
gegn Grindavík sl. sunnu-
dagskvöld.
Ketlvíkingar. sem léku á
heimavelli, skoruðu fyrstu körf-
una, en Grindvíkingar svöruðu
jafnharðan. með þriggja stiga
körfu. Þannig hélst leikurinn í
járnum fyrstu tíu mínúturnar. Þá
náðu Keflvíkingar góðum leik-
kalla, breyttu stöðunni úr 19:20 í
33:20. Þessum mun hcldu Kell-
víkingar allt til loka fyrri hálf-
leiks, en staðan í hálfleik var
48:34.
I upphafi síðari hálfleiks, jtikii
Keflvíkingar forskot sitt í 20 stig,
60:40. og virtist allt stefna í
samskonar sigur og í síðuslu
viðureign liðanna í Reykja-
nesmótinu. Grindvíkingar voru
liins vegar staðráðnir í því að Iáta
þá sögu ekki endurtaka sig. Þeir
börðust á móti eins og ljón, og
náðu að minnka muninn í aðeins
5 stig, 79:74, þegar rétt rúmar
tvær mín. voru lil leiksloka. Þá
hrukku Keflvíkingar altur í gang
og skoruðu níu stig gegn þremur
það sem eftir lifði leiksins.
Hjá Keflavík bar mest á Sig-
urði Ingimundarsyni, Jóni Kr„ og
Jónatani Bow. Sigurður var mjög
heitur strax í byrjun, og raðaði þá
niður nokkrum þriggjastiga skot-
um. Jón Kr. og Jónatan ná mjög
vel saman og er olt unun að horfa
á samvinnu þeirra. Kristinn Frið-
riksson kom einnig vel út úr
leiknum, var sjálfstraustið upp-
málað.
Hjá Grindavík var Guðmundur
Bragason bestur, sérstaklega í
síðari hálfleik. Bergur Hinriksson
átti líka ágætan leik, en Dan
Krebs náði ekki að sýna sínar
bestu hliðar. Þá vakti ungur
Keflvíkingur í liði Grindavíkur,
Pétur Rúðrik Guðmundsson.
óskipta athygli á lokamínútum
leiksins. Hann skoraði 4 stig, tók
4 sóknarfráköst og náði bollanum
af IBK í tvígang. Rúnar Arnason
komst upp með nokkur gróf brot,
en sýndi að hann er sterkur leik-
maður. Hann þarf þó að hitta
betur utan af vellinum.
Stigin:
ÍBK: Jón Kr. 23, Jonathan 21,
Sigurður 19. Kristinn 12. Nökkvi
Már 9. Júlíus 2 og Hjörtur 2.
UMFG: Krebs 19, Guðmundur
18. Pálmar II). Bergur 10. Rúnar
8, Marel 8. Pétur 4.
Jón Kr. lék
300. leikinn
gegn
Haukum
Jón Kr. Gfslason lék 300.
leik sinn fyrir ÍBK gegn
Haukuni sl. fimmtudag. Af
því tilefni færði KKRK
honum smá gjöf, sem
þakklætisvott.
Jón Kr. héll svo upp á
tímamótin með stórgóðum
leik gegn Haukuniim, skor-
aði grimmt og átti margar
stoðsendingar.
TEITURIHAM
- þegar Njarövík vann KR 96-81
Teitur Örlygsson var í miklum ham þegar
Njarðvíkingar fengu KR í heimsókn í
toppslagnum í A-riðli Japisdeildarinnar sl.
föstudagskvöld. Teitur skoraði 34 stig í
leiknum og virtist geta skorað nánast þegar
liann vildi. Auk Teits. léku Ronday Robin-
son og Friðrik Ragnarsson, fumlaust og
skoraði Ronday 24 stig og Friðrik 23.
i raun geturallt Njarðvíkurliðið verið sátt
við sinn leik. því þegar líða tók á leikinn.
náðu þeirgóðu forskoti sem KR-ingarnáðu
aldrei að ógna verulega.
Fyrri hálfleikurinn var mjög fjörugur og
skiptust liðin á því að leiða. Axel Niku-
lásson varð frá að hverfa fljótlega í leiknum,
fékk höfuðhögg, svo sprakk fyrir á auga-
brún hans. Við þetta riðlaðist leikur KR.
Njarðvíkingar sigu framúrog náðu um tíma
I6 stiga forystu. í hálfleik var staðan 50:40,
Njarðvík í vil.
Njarðvíkingar héldu uppteknum hætti í
upphafi síðari hálfleiks, og gerðu þá nánast
úti um Ieikinn. Náðu Njarðvíkingar um tíma
25 stiga forskoti, en þá kom Axel aftur inná
hjá KR. eftir aðgerð á sjúkrahúsinu. KR-
ingar náðu að saxa á forskotið, en ekkert lið
hefúr við Njarðvíkingum í slíkum ham og í
þessum leik.
Rondav Robinson lék einnig vel gegn KR.
Ólafur Thordersen (t.v.) og Erlingur Hannesson (t.li.l handsala
samningana við Guðmund Sigurðsson hjá Vogabæ og Sigurð
Pétursson frá Gosan hf.
HKN gerir samning við
Vogabæ og Gosan hf.
Handknattleiksfélag Keflavíkur
og Njarðvíkur. HKN. gerði í síð-
ustu viku samninga við fyrirtækin
Vogabæ og Gosan hf.
Vogabær, sem framleiðir
Vogaídífumar margrómuðu, gerði
samning til tveggja ára, sem felur í
sér að fyrirtækið verður að-
alauglýsandinn á öllum búningum
félagsins. og fær auk þess aug-
lýsingaskilti í íþróttahúsunum og á
öðrum stöðum sem félagið hefur til
umráða.
Gosan hf„ sem framleiðir m.a.
Pepsi gosdrykkinn, gerði líka
samning til tveggja ára. Pepsi-
drykkurinn verður auglýstur á bak-
hlið búninga HKN og veröa settir
upp gossjálfssalar í fþróttahúsunum
með drvkkjum frá Gosan hf.
Samningarnir eru báðir mjög
hagstæðir fyrir HKN og sagði Er-
lingur Hannesson, fonnaður fé-
lagsins, að þeir myndu styrkja stöðu
handboltans í Kellavík og Njarðvík
verulega.
Samningur Vogabæjar og HKN.
mun vera sá fyrsti þessarar teg-
undar, sem fyrirtækið gerir. Gosan
hf. heldur hins vegar áfram, mcð
santningi þessunt. stuðningi sínum
við íþróttafélög á Suðurnesjum. Er
það vissulega athygli vert, hversu
rausnarlega fyrirtækið styður
íþróttahreyftnguna héma suður með
sjó. en það gerði m.a. stóran samn-
ing við knattspyrnuráð ÍBK sl. vor.