Víkurfréttir - 10.09.1992, Síða 1
JT y STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ A SUÐURNESJUM
Víkurfrétti
LANDSB'OKASi
safnahosinu
HVERFISGÖTU
101 REYKJAVI.
36. tölublaö 13. árgangur
Fimmtudagur 10. sept.1992
-Ríkið skilar kvóta Steindórs GK
STÓRSIGUR
FYRIR SUÐURNESJAMENN
Ríkislögmaður hefur fallist á
greinargerð Vilhjálms H. Vil-
hjálmssonar hrl. í Keflavík í
deilumáli Njáls hf. í Garði og
Elliða hf. í Þorlákshöfn unr
kvótann af Steindóri GK 101
sem strandaði undir Krísu-
víkurbergi í fyrra. Telur ríkis-
lögmaður að útgerðaraðili
Steindórs GK.. Njáll hf. beri að
hafa afnot af kvótanum þar til
dæmt hafi verið í málinu fyrir
Hæstarétti. Aður hafði sjávar-
útvegsráðuneytið tekið kvótann
í sína vörslu, en hefur nú skilað
honutn til baka yfir á fiskiskipið
Unu í Garði Gk 100 sem er í
eigu Njáls hf. Urn er að ræða
tæplega 700 tonna kvóta af
Keflvíkingar
um DS málið:
Standa við
fyrri sam-
þykkt
Bæjarráð Sandgerðis hefur
átalið harðlega afgreiðslu bæj-
arstjórnar Keflavíkur á tillögum
Jóns Gunnarssonar varðandi
þjónustukjarna í aðildarsveitar-
félögum DS. Telur bæjarráðið
að hér sé um beinar og harka-
legar vanefndir að ræða og hef-
ur lagt til við bæjarstjórn að
gerð verði athugun á því með
hvaða hætti hægt verði að slíta
samstarfi um DS og skipta þar
eignum þannig að Sandgerði
verði mögulegt að leysa sóma-
samlega úr þörf og þjónustu við
aldraða Sandgerðinga í heima-
byggð.
Málið var kynnt í stjórn
Sambands sveitarfélaga á Suð-
urnesjum nýverið og kom síðan
þaðan inn á fund bæjarstjórnar
Keflavíkur í síðustu viku.
Bæjarstjórn Keflavíkur sam-
þykkti að árétta síðustu sam-
þykkt í málinu og þar nteð var
enn einu sinni staðfest að þeir
hafna aðild að þjónustukjörnum
í Sandgerði, þrátt fyrir hótun
Sandgerðinga.
þorskígildum.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins úr Itópi sveitar-
stjómarmanna taldi lögmaður
Njáls að ákvörðun ráðuneyt-
isins væri í ósamræmi við lög
urn stjórn fiskveiða. Einnig að
í niðurstöðum aukadómsþings
Árnessýslu hafí komið fram
SteindórGK var í eigu Njáls hf.
í Garði, þó ágreiningur hafi
verið af hálfu fyrrum eigenda
um hvor útgerðin hafi ráð-
stöfunarrétt yfir kvótanum.
Njáll hefur undir höndum
þinglýstan kaupsamning en
Elliði taldi að vanefndir hefðu
verið það ntiklar að fyrirtækið
I því máli hefur verið dæmt í
héraði eins og áður segir og þar
var kröfu Elliða hafnað. Elliði
áfrýjaði málinu síðan til Hæsta-
réttar, sem enn Itefur ekki
kveðið upp úrskurð sinn.
í greinargerð Vilhjálms vísar
hann ennfremur í reglugerð um
flutning aflaheintilda milli
tveggja skipa og bendir á að
ákvæði þar taki ekki til um þetta
mál, þar sem skipið var selt með
veiðiheimildum, kaupverð þess
greitt, riftunarkröfu Itafnað með
dómi og einu teiigsl fyrrverandi
eigenda við skipið séu þau, að
hann neitar að eefa út afsal af
því.
I áliti ríkislögmanns kemur
m.a. fram að hinn þinglýsti
kaupsamningur geri það að
verkum að Njáli hf., Garði beri
ráðstöfunarréttur yfir kvótanum
þar til dæmt hefur verið í mál-
inu fyrir Hæstarétti. Því ákvað
ráðuneytið að flytja kvótann
yfir á Unu í Garði samkvæmt
ósk útgerðarinnar.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins er þetta talinn mikill
sigur fyrir Suðurnesjamenn í
kapphlaupi um aflakvóta. Það
sé ekki síst að þakka góðri
greinargerð Vilhjálms, sem rík-
islögmaður hefur nú fallist á.
Metverð á
þorski
Met var sett á Fiskmarkaði
Suðurnesja í gærmorgun er
næturgamall stór netaþorskur
slægður af Ósk KE 5 var seldur
á 176 krónur hvert kíló.
Fremur lítill fiskur barst á
uppboð í gærmorgun, eða að-
eins rúm 10,6 tonn, þar af karfi
tæp fimm og hálft tonn og
þorskur upp á rúm 3,4 tonn.
Meðalverðið á þorskinum voru
141,85 kr., lágmarkið 128 kr. og
hámarkið eins og fyrr segir 176
krónur.
Fyrstu sjúkl-
ingarnir í
Víðihlíð
Þessa dagana eru fyrstu sjúk-
lingarnir á vegum Sjúkrahúss
Keflavíkurlæknishéraðs að
konta á Víðihlíð í Grindavík.
Hér er bæði um að ræða lang-
legusjúklinga sem verið hafa á
sjúkrahúsinu svo og sjúklinga
sem legið hafa í heimahúsum.
Sá fyrsti kom eftir hádegi á
þriðjudag, en hann var fluttur
frá sjúkrahúsinu í Kellavík.
Að sögn Skúla Þ. Skúlasonar,
formanns stjórnar Sjúkra-
hússins munu aðrir lang-
legusjúklingar koma í þau rúm
er losna á Sjúkrahúsinu, sökum
þess hve þörfin er mikil. Búist
er við að á Víðihlíð verði 14
sjúkrarúm nú tekin í notkun
fyrir langlegusjúklinga sem
koma víða af Suðumesjum.
•••••••••••
Garðvegur:
71 km
yfir há-
marks-
hraða
Ungur ökuntaður var stöðv-
aður á sunnudagskvöld á Garð-
vegi á 71 km yfir leyfilegum
hámarkshraða. Ökumaðu rinn
kom í radargeisla lögreglunnar
á þeint kafla Garðvegarins, þar
sem leyfilegur hámarkshraði er
70 km á klst.
Ökumaðurinn var færður til
lögreglustöðvar þar sem varð-
stjóri svipti hann ökuskírteininu
til bráðabirgða. Málið fór síðan
fyrir dómara á mánudags-
morgun.
höfðaði riftunarmál gegn Njáli.
AUGLÝSINGAR • RITSTJÓRN • AFGREIÐSLA » 14717,15717 • FAX w 12777