Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.09.1992, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 10.09.1992, Blaðsíða 2
2 Víkurfréttir 10. sept. 1992 Fréttir Trésmiðja Þorvaldar Ólafssonar: Starfsmenn hafa stofnað fyrirtæki um reksturinn Hluti af starfsmönnum Trésmiðju Þorvaldar Olafssonar í Keflavík hafa stofnsett fyrirtæki er nefnist Víkurás hf. Tók það verksmiðjureksturinn á leigu um síðustu mánaðamót og mun halda honum áfram í svipuðu formi og þegar Þorvaldur rak fyrirtækið. Hefur verið ákveðið að ráða hluta af starfsmönnum, þeim sem störfuðu í verksmiðjunni, áfram. • Verslunarmannafélagið hefur kevpt neðstu hæðina í þessu húsi, þar sem Útskálar voru áður til húsa. Ljósm.: hbb. Verslunarmannafélag Suöurnesja: Stærra húsnæði keypt Verslunarmannafélag Suð- urnesja hefur keypt neðri hæð- ina að Vatnsnesvegi 14 í Keflavík. Um er að ræða hús- næði það sem húsgagna- verslunin Útskálar hafði til um- ráðu áður fer og snýr út að Vatnsnesvegi. Að sögn Jóhanns Geirdal, formanns VS verður húsnæðið notað fyrir skrifstofur og fundaaðstöðu félagsins, sem nú er að Hafnargötu 28. Ekki hafa þó enn verið tekn- ar neinar ákvarðanir um hvenær ráðist verður í breyt- ingar á húsnæðinu. Kaffihús M-hátíöar: Hefur haslað sér völl Húsfyllir var á Kaffihúsi M- hátíðar sl. sunnudag og lista- mönnum vel fagnað. Næsta sunnudag þann 13. september munu þessir lista- menn koma fram: Geirþrúður Bogadóttir leikur kaffihúsamúsík á píanó. Kristín María Gunnarsdóttir leikur á klarinett við píanóundirleik Gróu Hreinsdóttur. Nikulás Ægisson les frumsamda smá- sögu. Bergur Ingólfsson syngur við undirleik Ara Agnarssonar. Haukur Ingi Hauksson verður myndlistarmaður kvöldsins. Myndlistin verður að þessu sinni í formi ljósmynda. Kaffthúsið hefur án efa hasl- að sér völl í hversdagsleikanum hér á svæðinu, en það sést best á því að öll kvöld er fullt hús jafnvel þó norðangarrinn nísti svo merg og bein að fæstir geti hugsað sér að fara neitt út úr sínum hlýju húsakynnum. Margir gestanna koma hvern sunnudag, en alltaf leynast ný andlit innanum, sem sjást svo gjarnan aftur næst. Við minnum á að aðgangur er ókeypis, en Glóðin selur kaffihúsagestum léttar veit- ingar. Kaffihúsanefndin Grindavík: Stjörnubrun- inn í rann- sókn Eldur kom upp í sölu- tuminum og leiktækjasaln- um Stjömunni í Grindavík aðfaranótt sl. föstudags. Það var um kl. 03 sem lögregla og slökkvilið voru kölluð út. Logaði eldurinn f einu her- bergi hússins. Nokkrar skemmdir urðu að völdum reyks. Málið er nú í rannsókn hjá lögrelunni, en komið hefur í ljós að 8000 krónur í skipti- mynt hurfu úr húsinu. Perusala Lions um helgina Hin árlega perusala Lions- klúbbs Keflavíkur fer fram nú um helgina. Hefst hún á morg- un föstudag og stendur fram á laugardag. Lionsmenn ganga í hús í Keflavík og nágrenni og bjóða Ijósaperur til sölu. Að venju verður öllum ágóða varið til líknarmála. Lionsmenn vonast til að þessi fjáröflun fái góðar við- tökur bæjarbúa, eins og und- anfarin ár. Með fjáröflun þess- ari hafa þeir styrkt aðila eins og Sjúkrahúsið, Þroskahjálp og fleiri slíka. Nauðungarsölui^: Fólk missir eignir sínar innan árs Grundvallarbreyting var gerð á nauðungarsölum nýlega, sem áður hétu nauðungaruppboð svo að nú líður aðeins eitt ár frá því að málið er tekið fyrir og sala þarf að liafa farið fram. Að sögn Jóns Eysteinssonar. sýslumanns eru mál sem t.d. voru þingfest voru 1. okt. 1991 að Ijúka með byrjunar- uppboði fyrir 1. okt. 1992 og eftir það er aðeins gefinn fjög- urra vikna frestur. Mál sem byrja eftir gildistökuna verður að ljúka innan árs frá því að þau voru fyrst tekin fyrir annars falla þau niður. Því er ljóst að fólk getur ekki lengur fengið frest á upp- boðum, nema í eitt ár frá því að þau voru þingfest. „Flotgallinn bjargaði mér" - sagði björgunarsveitarmaðurinn sem var hœtt kominn út af Njarðvík á dögunum synda í átt að landi og tókst að • Hér er viösnúningurinn á „rúntinum" í dag, vegna „mistaka" eins og sumir vil ja kalla lokun á viðsnúningnum sem var niður við Duusgötu. Með viðsnúningnum á Vesturbraut skapast óþarfa slysahætta og mikið ónæði fvrir íbúa götunnar. Ljósm.: epj. Vesturbraut, Keflavík: „Stærra vandamál en haldið var" - segirjóhann Bergmann, bœjarverkfrœðingur „Ég hafði enga möguleika að ná til bátsins á ný, þar sem hann rak hratt frá mér og síðan hvarf hann út í myrkrið. Eg tók því þá ákvörðun að synda í átt að landi", sagði Gunnar Asgeirs- son 22ja ára björgunarsveit- armaður í samtali við Víkur- fréttir er hann hafði rétt numið á mánudagskvöldið. Þrír félagar úr björg- unarsveitinni Stakki voru á æf- ingu út af Njarðvfk á litlum báti og var hlutverkið að bjarga mönnum úr sjónum. Er Gunnar var nýkominn í sjóinn bilaði vél bátsins og hóf bátinn þegar að reka hratt frá honum. Gunnar tók þá á það ráð að nema land utanvert á grjót- garðinum í Njarðvík unt þremur stundarfjórðungum síðar. Þá voru þar stutt frá nokkrir björg- unarsveitarmenn, lögregla og fréttamenn og kom Viðar Odd- geirsson, fréttaritari Rík- issjónvarpsins fyrst auga á Gunnar þar sem hann var að skríða upp grjótgarðinn. Búið var að koma út boðum til flest allra björgunarsveita á Suðurnesjum og lögreglu. auk þess sem þyrla Land- helgisgæslunnar var í við- bragðsstöðu. Það voru félagar Gunnars í bátnum sem komu boðum í land, en af þeim fréttist síðan ekkert fyrr en þá rak upp í fjöru við Narfakot í Innri- Njarðvík, skömmu eftir að Gunnar kom að landi. Gunnar var orðinn all þrek- aður er hann náði landi en jafn- aði sig fljótlega. Mennirnir voru allir í svokölluðum sól- arhrings björgunarflotgöllum og taldi Gunnar að flotgallinn Hið mikla ónæði frá við- snúningi unglinga á „rúntin- um“ á Vesturbrautinni í Kefla- vík, veldur íbúum þar enn hugarangri. Frá þessu sögðum við nýverið og þá kom fram hjá Jóhanni Bergmann, bæjar- verkfræðingi að úrbóta væri að vænta, en þar sem íbúar þarna eru mjög óþolinmóðir, sem skiljanlegt er. höfðum við samband á ný við Jóhann. Sagði hann að eftir að farið var að fylgjast betur með mál- um þarna, hefði kornið í ljós að þetta væri stærra vandamál en haldið var. Þarna yrði að gera eitthvað eins fljótt og hægt er. Þá væru menn nú að íhuga hvort ekki væri hægt að útbúa einhvern viðsnúning fyrir ung- lingana annars staðar, því „rúnturinn" yrði áfram. En með lokun viðsnúningsins á gatnamótum Duusgötu, Vest- urbrautar og Hafnargötu hefði hann fæst upp á Vesturbraut. Framundan er endurskoðun á fjárhagsáætlun bæjarins og hugsanlegt að um leið verði unnið að skipulagningu á ein- hverri bráðabirgðalausn fyrir þessi mál, sagði Jóhann að lokum. Iand á grjótgarðinum í Njarðvík 0 Gunnar Ásgcirsson nýkominn að landi, eftir að hafa vcrið liætt kominn, út af Njarðvík. Flotgallinn varð honum til h jargar, en hann synti þvert á ölduna og náði iandi þremur stundarfjórðungum cftir að báturinn hilaði. Á mvndinni eru einnig félagar Gunnars svo og lög- reglumenn úr Keflavík. Ljósm.: hbb. hefði bjargað sér. ~r S I'. i;KSrrt l'KK'ITA <)C. Ai:G].VSIN< .AHI.AI)ll) A SliDHRNKSII M vikurfréttir Útgefandi: Víkurfréttir hf. —— Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15. símar 14717. 15717. Box 125. 230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. - Ritstjórn: Emil Páll Jónsson, heimas. 12677, bílas. 985-25917. Páll Ketilsson, heimas. 13707. bílas. 985- 33717. Fréttadeild: Emil Páll Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson og Hulda G. Geirsdóttir. - Auglýsingadeild: Páll Ketilsson. jþróttir: Hulda G. Geirsdóttir. - Prófarkalestur: Garðar Vilhjálmsson. - Upplag: 6200eintök sem dreift erókeypis uni öll Suðurnes. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun, hljóðritun. notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. umi>r„t, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS hf., Keflavi-k

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.