Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.09.1992, Page 13

Víkurfréttir - 10.09.1992, Page 13
Fréttir / Mannlífið Keflavík: Fjölsóttur skemmtidagur aldraðra Á þriðja hundrað Keflvískir eldri borgarar og gestir þeirra þáðu boð Franikvæmdasjóðs aldraðra og komu í Þotuna á sunnudag til að taka þátt í skemmtidegi aldraðra í Kefla- vík. Þarna var ýmislegt til skemmtunar s.s. upplestur, verðlaunaafhending fyrir pútt- keppni og dans, auk þess sem boðið var til veglegs kafft- samsætis. Emil Páll tók með- fylgjandi myndir við þetta tækifæri. Skemmdu Ijósa- staura fyrir hundruð þúsunda Að sögn starfsmanna raf- magnsdeildar Hitaveitu Suð- umesja hafa unglingar í Innri- Njarðvík valdð skemmdum á ljósastaurum í byggðarlaginu fyrir hundruð þúsunda króna. Á föstudag voru starfsmenn fyrirtækisins að hefja viðgerðir á tugum ljósastaura, þar sem ljósastæðin höfðu orðið fyrir • Svona eru ljósastaurarnir útlítandi. miklum skemmdum og hlífar yfir tengiboxum voru einnig ónýtar. Starfsmenn Hitaveitunnar fóru með blaðamanni í skoð- unarferð um þau svæði sem eina helst liafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Við Seylu- braut og Seylugötu voru ljósker við Stapagötu í Innri-Njarðvík Ljósm.: hbb á tuttugu og tveimur staurum brotin. Á Stapagötu voru allir staurar. utan þriggja, stór- skemmdir. Það eru eingöngu Ijósastaurar sem eru næstir íbúðarhúsum sem sleppa við skemmdarvarga. Starfsmenn Hitaveitunnar sem blaðið ræddi við sögðu að 13 Víkurfréttir 10. sept. 1992 Kvöldsköli SUÐURNESJA Námskeið á haustönn 1992: • Ræðumennska og fundarsköp • Skrautskrift • Bútasaumur • Vélritun • Myndlist fyrir fullorðna • Myndlist fyrir unglinga • íslenska fyrir útlendinga • Enska • Þýska • íslensk málfræði • Stærðfræði (algebra) • Danska Hvert námskeið stendur í 10 vikur. Kennt er eitt kvöld í viku, alls 20 stundir í hverri námsgrein. Flest verkalýðsfélög styrkja félaga sína sem eru nemendur í Kvöldskóla Suðurnesja. Kennslan fer fram í Grunnskóla ^ Njarðvíkur og hefst 22. sept. Upplýsingar og innritun fer fram dagana 10.-20. september eftir kl. 17.00 í síma 14380. V______________________________. Sími skólans er 14380 Forstöðumaður foreldrar unglinga vissu af þessari iðju, en þegar reynt væri að fá upplýsingar um skemmd- arvargana, þá vissi enginn neitt. Það er ljóst að viðgeröir á ljósastaurum í Innri-Njarðvík kosta hundruð þúsunda árlega. Að sögn starfsmanna Hitaveitu Suðurnesja er mest um þessar skemmdir í Innri-Njarðvíki, en þær eru óverulegar í öðrum byggðum Suðurnesja. Það eru hins vegar allir íbúar Suð- urnesja sem fá að greiða fyrir skemmdirnar. Skemmdarverk sem þessi koma einnig í veg fyrir að hægt sé að endurbæta lýsingu á öðrum stöðum. SÝNING ÚR SÖGU KEFLAVÍKUR 1 766 til 1 890 I tilefni af útgáfu af 1. bindi af Sögu Keflavíkur verður efnt til sýningar í Risinu að Tjarnargötu 12. Þar verður bókin kynnt í máli og myndum, einnig verður hægt að kaupa bókina og teikningar úr sögu Keflavíkur eftir keflvíska listamenn. Sýningin verður opin laugardaginn 1 2. og sunnudaginn 1 3. sept. kl. 1 3-1 8. Höfundur áritar bókina á staðnum. Bókin verður síðan til sölu í öllum bókabúðum frá og með mánudeginum 14. september. Sögunefnd Keflavíkur

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.