Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.09.1992, Side 16

Víkurfréttir - 10.09.1992, Side 16
16 Víkurfréttir 10. sept. 1992 Kæru Suðurnesjabúar! S•I•Ð•A#N Afsláttar- kort NFS I lok ágúst gengu stjórn- armenn NFS í verslanir á öllum Suðurnesjum til að safna þátt- takendum í hið árlega afslátt- arkort meðlima NFS. Viðtökur verslana voru hreint út sagt frá- bærar. Aldrei áður í sögu nem- endafélagsins hefur þátttaka verið jafn góð. Stjórnarmeð- limir vilja þakka öllum versl- unum sem tóku þátt KÆR- LEGA FYRIR. Við vonum að samstarfið milli verslana á Suð- urnesjum og NFS haldi áfram um ókomna líð. I vetur mun nemendaráð Fjölbrautaskóla Suðurnesja vera með sína hefðbundnu NFS-fréttasíðu um starfsemi nemenda innan skólans sem utan. NFS-síðan mun brydda upp á mörgum nýjungum í ár, for- mannsspjall verður reglulega þar sem okkar háæruverðugi formaður NFS mun láta gamminn geysa um hin ýmsu mál og hugleiðingar. Vel valin Ijóð eftir nemendur skólans verða birt, og einnig gefst nemendum kostur á að koma sínum brennandi skoðunum á framfæri. Sagðar verða stuttar ferðasögur um frægðarfarir FS-inga vítt og breitt um land- ið. svo verða gerð góð skil á kaffihúsakvöldum FS-inga, sem haldin verða í hinuni nýja og glæsilega fundarsal nýju viðbyggingarinnar. A kaffi- húsakvöldunum verða ýmsar menningar og tónlistar upp- ákomur (skipulagðar að mestu leyti af nemendum sjálfum) og munu okkar framtíðar- tón- listar, mælsku, og listamenn skólans flytja eða sýna verk sín við mikinn fögnuð samnema. Aðrar hefðbundnar frétta- skýringar af böllum, klúbbak- völdum og öðrum viðburðum í félagslífi skólans verða gerð góð skil, með ljósmyndum og lleira. Takmarkið með þessarri NFS-síðu er að þú, lesandi góður. og aðrir Suðurnesjabúar geti fylgst með því hvað er að gerast hjá menntafólkinu á Suðurnesjum eða framtíðar- börnum Suðurnesja. Busaball Nú skulum við rétt vona að allir séu tilbúnir l'yrir BUSABALLIÐ, því það verður haldið annað kvöld, á sama degi og busavígslan fer fram. An efa vcrður gífurlcg stemming á þessu balli, enda skemmtilegasta ball ársins. Síðan komu jól.cg mcina SÍÐAN SKEIN SÓL spilar fyrir dansi, og verða þeir án efa í tniklu stuði. Það er eins gott að það vcröi búið að busa alla, því á ballinu vcrður Limbó keppni æðri nema og valinn Limbó kóngur og drottning. Miðaverð fyrir FS-inga cr litla 1300.- krónur og miðar cru seldir í forsölu í skól- anum. Fyrir þá sem mæta í Stapa og kaupa miða þar, er miðavcrðið kr. 1500,- ALLIK AÐ MÆTA. Eggert Arnar Markan Eggert Arnar Markan heitir hin nýja skólafígúra FS og kemur hann til með að vera persónugerfing hugsanna þeirra fjölmörgu óttaslegnu nýnema sem hefja nám í Fjöibraut á haustönn '92. Eins og allir aðrir busar er hann hálf feiminn og kom það glögglega í Ijós í útvarpsviðtali á dögunum þar sem viðkvæði hans var sjaldnast annað en ..Já‘* og „Já, já“. Eggert er alveg óskaplega feiminn og þá sér- staklega í viðurvist kvenfólks. þá roðnar hann rosalega og rödd hans verður skrækari en nokkru sinni. Osanngjamir segja að Eggert sé einhver sá hallærislegasti NÖRD-ari sem fyrirlmnst á jarð- kringlunni. Alla vega er Eggert nýnemi og eins og allir aðrir busar á hann þá ósk heitasta að verða alvöru FS-ingur. Ekkert er það í veröldinni sem særir Eggert jafn mikið og þegar nafn hans er tekið og borið fram svo ranglega að útkoman verður EKKERT AÐ MARKA ANN. Því Ekkert er heiðarlegri en skólameistarinn og innst inni skýrleiks piltur..Reyndar segja mamma hans að hann Ekkert sinn sé afbragð ungra drengja. Pabbi hans, sem hamast alla daga við að manna greyið, segir að hann sé helvítis aumingi, en horfir samt stoltur á drenginn sinn þegar hann vaggar sfnum glænýja gæsagangi, í allt of stórum uppábrotnum gallabuxum og splunkunýrri dragsíðri vaxúlpunni sem hylur hann svo vel, á leið í skólann. Eggert kemur til með að láta nokkur fleig orð falla í hverri viku um þau mál sem standa honum næst. Og væntum við trúnaðarmenn hans að þið FS-ingar hafið nokkurt gaman af. Því ef þið skoðið busann við hliðina á ykkur þá sjáið þið ellaust hversu stóran sess Eggert skipar í vesalings BUSUNUM. Meira um Eggert: Fullt nafn....................................Eggert Arnar Markan Heimili.......................................Séstvallagata 121348 Hæð........................................... 1.50 (Einn og hálfur) Ferðu á busaballið..............................................Já Drekkurðu.......................................................Já Hvað.........................................................Vodka Uppáhalds lag............Já, já, já, já, já, já (Þúsund sinnum segðu já) Helsta fyrirmynd...................................Pee Wee bróðir Bestu vinir...............................Mamma og Diddí frænka Kennitala.......................ÚFF 11.09, man svo óskýrt hvaða ár Þyngd...................................................72 eða 27 Æðsti draumur.............Ja, ja. bara veit ekki. Fullt bara. Alls konar Upphandleggsmál......................... 13 eitthvað Ert þú töffari...........Er verið að gera grín að mér Eitthvað að lokum.. Já. já, já má ég fara með smá Ijóð? Engilbjört mín Ást mín til þín er eins og nýþvegið svín Eggert biður að heilsa í bili????????????? JÁ, JÁ. UMSJON: Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja Uppboð Uppboð munu byr.ja á skrif'- stofu embættisins að Vatns- nesvegi 33, Keflavík, sem hér segir á eftirfarandi eignum, fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 10:00. Duusgata 2, Keflavík, þingl. eig- andi Ketlavík hf., gerðarbeið- endur Gjaldheimta Suðurnesja og Bæjarsjóður Keflavíkur. Elliði GK-445, þingl. eigandi Miðnes hl'., gerðarbeiðandi Rík- issjóður Islands. Garðavegur 3, neðri hæð, Kella- vík, þingl. eigandi Aðalsteinn Að- alsteinss., gerðarbeiðandi Inn- heimtumaður ríkissjóðs. Geir goði GK-220. þingl. eigandi Kctlavík hf„ gerðarbeiðandi Rík- issjóður íslands. Hafnargata 4, Sandgerði, þingl. eigandi Stefán Sigurðsson. 180552-4809. gerðarbeiðandi Innheimtumaður ríkissjóðs. Hafnargata 22, e.h„ Vogum, þingl. eigendur Elín Þ. Al- bertsdóttir & Öm Páls, gerð- arbeiðendur Sparisjóðurinn í Keflavík og Lífeyrissjóður Suð- umesja. Hellubraut 6. efri hæð, Grindavík. þingl. eigandi Gunnar Sigurðsson. gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður sjó- manna. Heiðarhraun 19, Grindavík. þingl. eigandi Skúli Óskarsson, gerð- arbeiðendur Bæjarsjóður Grinda- víkur. Lífeyrissjóður sjómanna og Landsbanki Islands. Heiðarbrún 12, Keflavík. þingl. eigandi Frímann Ottósson o.fl. gerðarbeiðendur Sparisjóðurinn í Keflavík og Lífeyrissjóður Suð- urnesja. Heimavellir 5, Keflavík, þingl. eigandi Helgi Unnar Egiisson, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Suðurnesja og Byggingasjóður ríkisins. Holtsgata 37. Sandgerði, þingl. eigandi Jón B. Sigursveinsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissj. ver- kal.fél á Suðumesjum. Klapparstígur 8. e.h„ Kellavík, þingl. eigandi Marteinn Webb. gerðarbeiðendur Ltfeyrissjóður sjómanna, Bæjarsjóður Kclla- víkur, Byggingasjóður ríkisins. Húsnæðisstofnun ríkisins lög- fræðideild og Sparisjóðurinn í Keflavík. Miðgarður 2. Grindavík. þingl. eigandi Möskvi sf„ gerð- arbeiðendur Ríkissjóður Islands, Byggðastofnun. Iðnlánasjóður, Sparisjóðurinn í Keflavík. lðn- lánasjóður og Grindavíkurbær. Óðinsvelíir 17. Keflavík, þingl. eigandi Þórhallur Guðjónsson. gcrðarbeiðendur Vá- tryggingafélag Islands. Gjald- heimta Suðumesja og Bygg- ingavöruverslun Kópavogs hf. Stafnesvegur I. 0201. Sandgerði, þingl. eigandi Gloría A. P. Sig- urðsson, gerðarbeiðendur Sand- gerðisbær. Byggingasjóður rík- isins. Sparisjóðurinn í Keflavík og Landsbanki Islands. Þrætuland Keflavík, þingl. eig- andi Keflavík hf„ gerðarbeiðandi Gjaldheimta Suðurnesja. Þverholt 2. Keflavfk, þingl. cig- andi Auðunn Guðmundsson, gerðarbeipandi Gjaldheimta Suð- urnesja. Landspilda úr Kothúsum II Gerðahreppi, þingl. eigandi Bald- vin Njálsson. gerðarbeiðandi Byggðastofnun. Norðurgata 26. Sandgerði, þingl. eigandi Utgerðarfélagið Njörður hf„ gerðarbeiðcndur Húsa- víkurkaupstaður og T.O.K. hf. Loðdýrabú og refahús í landi As- garðs III, Miðneshreppi, þingl. eigandi Lúðvík Björnsson. gerð- arbeiðandi Sveitarsjóður Mið- neshrepps. Marteinn KE-200. þingl. eigandi Viktor Þórðarson. gerð- arbeiðendur Landsbanki Islands Leifsstöð, Vátryggingafélag Is- lands. Sjóvá-Almennar hf. og Vélbátatrygging Reykjaness. Vogagerði 16. Vogum, þingl. eigandi Margrét Helgadóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður byggingamanna. Sólheimar 9, Sandgerði áður Túngata 23b Sandgerði, þingl. eigandi Stefania Jónsdóttir o.tl.. gerðarbeiðendur Kristinn Guð- mundsson og co, Byggingasjóður ríkisins, Lífeyrissjóður Suður- nesja og Lífeyrissjóður sjó- manna. Haliiargata 31 b. Hafnir. þingl. eigandi Ríkharður J. Ásgeirsson. gerðarbeiðandi Landsbanki Is- lands. Smáratún 38, 0201, Keflavík, þingl. eigandi Guðmundur Karl Þorleifsson, gerðarbeiðandi Gjaldheimta Suöumesja. Hringbraut 94, Keflavík, þingl. eigandi Hanstna Gísladóttir. gerðarbeiðendur Hávöxtunar- sjóðurinn og Sparisjóðurinn í Kellavík. Vesturgata 10, neðri hæð, Kella- vík. þingl. eigandi Gyðríður Óla- dóttir. gerðarbeiðandi Lífeyris- sjóður sjómanna. Suðurgata 4. efri hæð. Vogum. þingl. eigandi Helga Þóra Jón- asdóttir, gerðarbeiðendur Líf- eyrissjóður sjómanna, Líf- eyrissjóður verslunarmanna og Gjaldheimta Suðumesja. Faxabraut 33B. 0101. Keflavík, þingl. eigandi Búnaðarbanki Is- lands Kópavogi, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Islands og Gjaldheimta Suðurnesja. Faxabraut 31A. 0101. Kellavík. þingl. eigandi Jón Ásgeir Eyj- ólfsson. gerðarbeiðendur Bygg- ingasjóður verkamanna og Rík- isúlvarpið innheimtudeild. Grófin 5. Keflavík, þingl. eigandi Þ. Guðjónsson hf„ gerðarbeið- endur Gjaldheimta Suðumesja, Innheimtumaður ríkissjóðs, Hita- veita Suðumesja og Islands- banki. Suðurgata 31. 0001. Keflavík. þingl. eigendur Anna Lind Stein- ólfsdóttir og Jónína Guðrún Fær- seth. gerðarbeiðendur Gjald- heimta Suðumesja og Bygg- ingasjóöur ríkisins. BakkastígurlO, Njarðvík, ásamt vélum, tækjum og búnaði, þingl. eigandi Hilmar Magnússon o.fl.. gerðarbeiðandi Atvinnutrygg- ingasjóður útflutningsgreina. Lóð úr Háteigslandi undir fisk- hús, Garði, ás. vélum og tækjum, þingl. eigandi Magnús Björg- vinsson, gerðarbeiðandi Byggða- stofnun atvinnutryggingadeild. Heiðargarður 5. Keflavík. þingl. eigandi Vilhjálmur Jónsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna. Holtsgata 46. Sandgerði, þingl. eigandi Ólafur Gíslason. gerð- arbeiðandi Byggingasjóður rík- isins. Heiðarholt 18. 0201. KefJavík. þingl. eigendur Húsnæðisnefnd Kellavíkur og Sigurjóna Sigur- björnsdóttir, gerðarbeiðandi Hús- næðisstofnun ríkisins - lögfræði- deild. Fitjabraut 6c. Njarðvík. þingl. eigandi Oddgeir Arnar Jónsson. gerðarbeiðandi Gjaldheimta Suð- umesja. Hjallavegur 9B. 1. hæð, Njarðvík. þingl. eigandi Haldís Haf- steinsdóttir. gerðarbeiðendur Líf- eyrissjóður verslunarmanna og Byggingasjóður ríkisins. Hellubraul 6. neðri hæð. Grinda- vík. þingl. eigandi Gunnar Sig- urðsson. gerðabeiðendur Líf- eyrissjóður sjómanna og Bæjarsjóður Grindavíkur. Víkurbraut 58. Grindavík, þingl. eigandi Félagsheimilið Festi, gerðarbeiðandi Innheimtumaður ríkissjóðs. Svslumaðurinn í Keflavík 8. september 1992

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.