Víkurfréttir - 10.09.1992, Blaðsíða 19
íþróttir
_________19
\íkurfréttir
10. september 1992
r
Tryggir IBK
sér 1. sætið
og Víðir
2. deildar
Síðasta umferð 2. deildar fer
fram nú unr helgina og þá ráðast
úrslit í deildinni. Staða Suður-
nesjaliðanna er misjöfn, Keflvík-
ingar eru í efsta sæti deildarinnar,
jafnir Fylki að stigum, en með hag-
stæðara markahlutfall, um sjö mörk.
Síðasti leikur Keflvíkinga er á úti-
velli við lið Stjörnunnar úr Garða-
bæ. Grindvíkingar eru í þriðja sæti
og sigla lygnan sjó, en Víðismenn
eru næst neðstir og ef þeir tapa á
laugardag spila þeir við nágranna
sína í Reyni á næsta ári. Víðir á þó
möguleika á að hanga í deildinni,
EF þeir vinna sinn leik á móti Þrótti
og Grindvíkingar sigra IR. sem eru
þremur stigum fyrir ofan Víði.
Möguleikar Víðismanna eru þó
meiri ef áfrýjunardómstóll KSÍ
dæmir Leiftri í hag í kæru þeirra
gegn IR, í dag. Þá fá ÍR-ingar
dæmdan á sig 3-0 ósigur.
Víðir og Grindavík eiga heima-
leiki. en eins og áður segir spila
Keflvíkingar úti. Allir leikirnir fara
fram á laugardag og hefjast kl.
14:00. Nú ættu allir knattspyrnu-
áhugamenn að fjölmenna á völlinn
og styðja sína menn í lokaslagnum.
W
Islandsbanka-
w
dagur IBK
Svokallaður Islandsbankadagur
IBK fór fram föstudaginn 4. sept-
ember sl. Dagurinn hófst á skrúð-
göngu frá Islandsbanka, þar sem
yngstu iðkendur knattspyrnunnar
gengu frá bankanum upp að
íþróttahúsinu við Sunnubraut. I
íþróttahúsinu sýndu knattspyrnu-
strákar (og stelpa) úr 5., 6., og 7.
flokki, listir sínar. Iþróttahúsið var
þétt setið knattspyrnuiðkendum og
aðstandendum þeirra. Að þessu
loknu hélt unga knattspyrnufólkið
niður í fþróttavallarhús og snæddi
pulsur og drakk Pepsi í boði Is-
landsbanka.
# Ungir knattspyrnuiðkendur
fóru í skrúðgöngu í tilefni dags-
ins. Ljósm.: Hulda
ÍBK sigraði í
„Derby'Meiknum
Nágrannamir Keflavík og Víðir
leiddu saman hesta sína sl. laug-
ardag í Keflavík. Leikar fóru svo að
heimamenn sigruðu nágranna sína,
3-0. Leikurinn var mikilvægur fyrir
Víðismenn, sem eru í fallbaráttu, en
einnig mikilvægur fyrir Kefl-
víkinga sem eru í baráttu um sigur
í deildinni.
Leikurinn byrjaði með mikilli
baráttu, en fljótlega sýndu Kefl-
víkingar hvers vegna þeir eru á
toppnum, og tóku leikinn í sínar
hendur. Oli Þór Magnússon skoraði
fyrsta mark leiksins eftir horn-
spyrnu um miðjan hálfleikinn. Oli
skoraði svo annað mark sitt í leikn-
um rétt fyrir hálfleik, eftir mikla
sókn Keflvíkinga. Þar með skoraði
Óli sitt 18 mark í sumar og er enn
markahæstur í 2. deild. Síðari hálf-
leikur var keimlíkur þeim fyrri, þó
Víðismenn reyndu að herða sig.
Þriðja mark Keflvíkinga kom svo
um miðjan síðari hálfleik, þegar
Gunnar Jónsson átti hörkuskot að
niarki Víðis, en Jón Örvar Arason
varði, en hélt ekki boltanum. Kjart-
an Einarsson fylgdi vel á eftir og
skoraði. Keflvíkingar héldu sínu, og
þrátt fyrir nokkur færi beggja liða
urðu mörkin ekki fleiri.
Hljóðið f Kjartani Mássyni,
þjálfara IBK, var gott eftir leikinn.
„Þetta var fínt. auðvitað er erfitt að
spila í svona veðri, en ég er
ánægður miðað við aðstæður."
Víðismenn eru í slæmum málum,
en eiga enn séns á að hanga uppi.
Þeir bíða spenntir eftir úrskurði í
kæru Leifturs gegn 1R. „Þetta er
mjög óþægileg staða, við verðum
að vinna síðasta ieikinn okkar, og
IR að tapa sínum. Það eru enn góðir
möguleikar fyrir okkur að hanga
uppi, en kæran skiptir miklu máli,“
sagði Guðjón Guðmundsson, fyr-
irliði Víðis, í samtali við blaðið.
Grindavík
tapaði stórt
Grindvíkingar töpuðu fyrir
Leiftri á útivelli um sfðustu helgi.
Leikurinn fór 5-2 fyrir Leiftri, þar af
voru tvö víti. Mörk Grindvíkinga
skoruðu þeir Ólafur Ingólfsson og
Þórður Birgir Bogason. Grind-
víkingar eru enn í þriðja sæti og
eiga síðasta leik við IR sem er í
mikilli fallbaráttu.
Æfingar hafnar hjá
íþróttafélaginu Nes
Æfingar eru hafnar hjá
íþróttafélaginu Nes. Þær eru í
íþróttahúsi Myllubakkaskóla í
Keflavík á fimmtudögum kl.
17.00-18.30. Hjá félaginu eru
stundaðar tvær greinar íþrótta,
borðtennis og boccia. Félagar eru
hvattir til að mæta vel og stund-
víslega.
• FÖGNUÐUR! Hér sjást þeir
Georg Birgisson, Gunnar Jóns-
son og Ragnar Steinarsson fagna
markakóngnum sínum Ola Þór
Magnússyni innilega.
• Óli Pór Magnusson skorar sitt
átjánda deildarmark í sumar.
Jón Örvar Arason, markvörður
horfir örvæntingarfullur á.
Ljósm.: Ilulda
/ / rj r N t * |'
•a
lilif'nPI ■99EK
GETRAUNALEIKUR
SAMVINNUFERÐA OG VÍKURFRÉTTA
Porsteinn Kristján
Ásinn byrjar á titilvörn
Getraunaleikur Víkur-
frétta og Samvinnuferða
Landsýnar hefst að nýju f
dag. Það er enginn annar
en „Asinn". Þorsteinn
Árnason, sem varð Get-
raunaspekingur síðasta árs
sem hefur leikinn. Það
hefur verið regla hjá okkur
að meistari hvers árs hefur
titilvörn í fyrstu umferð.
Þorsteinn hefur skorað á
Kristján Þórarinsson sem
er alvanur tippari.
Sem fyrr eru glæsileg
verðlaun í boði fyrir tipp-
ara ársins, ferð til London
á Wembley með Sam-
vinnuferðum Landsýn.
Fyrirkomulag verður það
sama og síðustu tvö ár,
þ.e. í áskorunarformi.
Fjörið er byrjað. Við
fáaum sex sænska leiki í
þessari viku en hinir eru
enskir. Hér koma raðir
spekinganna:
AIK-IFK Föteborg 2 IX
Norrköping-Öster i 1
Trelleborgs FF-Malmö FF 1X2 1
Djugárden-Halmstad I 1X2
Haeken-Orebro 1 1
IFK Sundsvall-Brage 1 X2
Arsenal-Blackburn 1 1
Chelsea-Norwich City IX 2
Everton-Maneh. Utd. X2 1X2
Manc. City-Middlesbro 1 1
Nottb. Forest-Sheff. Wed. 1 X
Sheff. Utd.-Liverpool 2 2
Southampton-Q.P.R. 1X2 2