Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.09.1992, Page 20

Víkurfréttir - 10.09.1992, Page 20
"TT* STÆRSTA FRETTA- OG AUGLYSINGABLAÐIÐ A SUÐURNESJUM Vikurfréttir Toppmerki - auövitaö í P Ó S E 1 D O N Keflavík: Pökkunarmiðstöðvar fyrir fiskútflutning? Margt bendir til þess að innan tíðar rísi nokkrar pökk- unarmiðstöðvar fyrir nýjan fisk til útflutnings á Suðurnesjum. Þeir fjórir, fimm aðilar sem blaðið veit unt með vissu, beina spjótum sínum einkum af Keflavíkur- og Njarðvíkur- svæðinu. Hér er bæði um að ræða fiskverkunarstöðvar sem fyrir eru á svæðinu svo og nýja aðila, jafnvel utan af lands- byggðinni. Sumir aðilanna ætla sér að flaka og snyrta fisk, pakka síðan í plastkassa og geyma í kæli þar til fiskurinn er fluttur með flugi erlendis. Aðrir ætla sér að koma með fiskinn pakkaðan en geyma hér í kæligeymslum við rétt hitastig þar tii flutt er út. Þá er vitað um aðila sem sótt hefur um að fá að nota flug- stæðið við gömlu flugstöðina á Keflavíkurflugvelli og ferma þar sérstakar flutningavélar með ferskum fiski. Að ósk við- komandi aðila birtum við ekki nöfn þeirra, þar sem málin eru á ntjög viðkvæmu stigi. Yfirlitsmynd af umræddum gatna- mótum. Við Ijósmynd- unina nutum við aðstoðar körfubíls frá Hitaveitu Suðurnesja, sem var að störfum á þessum slóðum. A gatnainótunum hafa orðið tveir harkalegir á- rekstrar. Ljósm.: hbb „Slysagildran“ á Fitjum: „Frelcari reynsla á gatnamótin## Frá því nýi tengivegurinn á Fitjum í Njarðvík var tekinn í notkun á dögunum, hafa orðið þar tveir all harðir árekstrar og mikið eignatjón. Vegna þessa hafa menn verið að velta því fyrir sér hvort eitthvað at- hugavert sé við hönnun um- ferðarmannvirkisins og hvort úrbóta sé þörf. Fulltrúi í umferðamefnd hef- ur lagt málið fyrir bæjarráð Njarðvíkur. í bókum þess segir: „Bæjarráð þakkar ábendinguna, en telur að frekari reynsla verði að koma á þessi nýju gatnamót. Bæjarráð hvetur um- ferðamefnd til að fylgjast með framvindu mála er varða gatna- mótin". ----------- ^ Fljót og örugg gjaldeyrisþjónusta H5Pf\RI5JáÐURINM í KEFLAVÍK _________________________J • Dómari og þingvottar í fyrsta reglulega dómþingi Hér- aðsdóms Reykjaness sem haldið var í Ketlavík á þriðjudag. F.v. Svala Valgeirsdóttir, Þorgerður Erlendsdóttir og Elín Norðdal. Ljósm.: Hulda Fyrsta héraðsdóm- þingið í Keflavík Fyrsta héraðsdómþingið eft- ir að lögin um aðskilnað dóms- og framkvæmdavalds tóku gildi, var háð í Keflavík á þriðjudag í síðustu viku. Komu þá dómendur frá Héraðsdómi Reykjaness hingað suður og settu dónt í dómsalnum hjá Sýslumanninum í Keflavík. Dómari og þar með fulltrúi Héraðsdóms Reykjaness var Þorgerður Erlendsdóttir, en þingvottar voru Svala Val- geirsdóttir og Elín Norðdal. Svala er ritari dómsins en Elín lögfræðinemi. Njarövík: 5 hæða hús fyrir aldraða við Stapann Samtök aldraðra á Suð- umesjum hafa lýst áhuga sínum á að byggja fimm hæða hús á lóðinni milli Olafslundar og fé- lagsheimilisins Stapa í Njarð- vík. Hefur í því sambandi verið rætt um að félagsheimilið léti af hendi 4500 fermetra af 17000 fermetra lóð sinni. Stjóm félagsheimilisins hef- ur fengið þriggja vikna frest til að svara erindi þess efnis, frá bæjarstjóra. Fram til þessa hafa þó þeir aðilar sent rætt hafa um málið tekið jákvætt í það, en umræður hafa aðallega snúist um það hvort selja ætti lóðina eða leigja. ODYRIR BÍLA- LEIGU- BÍLAR BIIAKRINGtAN Grófin 7-8 Simi 14690 OKEYPIS FILMA - fylgir hverri framköllun. T tJSl. KIVKlIDmPOtLK HAFNARGÖTU 52 KEFLAVlK SÍMI 14290 Samvinnuferðir Landsýn Skrifstofan opin mánud.-föstud. kl. 10-18. ® 13U00 MUNDI hja'Me! „ Sími 14797 Fagleg T veitinga- L ( þjónusta fyrir þig. Bara nokkrar „klessur" í viðbót...

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.