Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2016, Page 37
Ertu nákvæmur „pakkari“?
„Ég set venjulega allt ofan í tösku
sem mögulega gæti nýst, fyrir utan
það sem ég gleymi, sem er alltaf eitt-
hvað.“
Ertu skipulagður í bókunum eða
stekkurðu með litlum fyrirvara?
„Með fimm manna fjölskyldu þarf
allt að vera vel skipulagt. Svo nota
ég ókeypis afbókanir grimmt.
Þannig er hægt að bóka hótel
og bíla langt fram í
tímann og afbóka ef
eitthvað
breyt-
ist.“
Nýtirðu
netið til
að leita að
upplýsingum
um veit-
ingastaði, hótel
og söfn?
„Já. Venju-
lega eyði ég alltof miklum
tíma fyrir ferðir í að finna
staði til að heimsækja. Oft eru
væntingar svo gríðarlegar eftir
óhóflega góðar umsagnir að von-
brigði eru óhjákvæmileg. Þá er
gott að hafa eina gamaldags ferða-
bók í töskunni til að koma sér aft-
ur á rétt spor.“
Til hvaða stórborgar myndirðu
næst vilja ferðast?
„Abu Dhabi.“
Hvað myndirðu vilja gera þar?
„Gista á fimm stjörnu hóteli og virða
fyrir mér Persaflóann úr sundlaug-
inni á þakinu. Svo myndi ég skoða
eina stærstu mosku í heimi, aka um
á sandöldum í eyðimörkinni og
heimsækja Masdar City sem er til-
raunaverkefni til að búa til meng-
unarlausa borg framtíðarinnar,
knúna af vind- og sólarorku.
Hvernig mat myndirðu
vilja borða?
„Ég væri til í að
prófa shawarma
með kamelkjöti og
hummus. Svo
skilst mér að
þarna sé hægt að
fá besta indverska
mat utan Indlands og
að meðalfjöldi veit-
ingastaða á hverju hóteli sé
u.þ.b. sjö.“
Ef þú kæmir með eitthvað heim
úr ferðinni, hvað yrði það?
„Minjagripur. Við reynum að kaupa
alltaf styttu af einni byggingu í
hverri borg sem við heimsækjum.
Nýjasta viðbótin er kastali Þyrnirós-
ar frá Disneylandi en uppáhaldið er
náttúrulega Hallgrímskirkja,
sérstaklega nú þegar við
erum búsett í Amst-
erdam.“
Ef þú mættir velja
einn stað, hvar
sem er á jörðinni
til að vakna upp á í
fyrramálið, hver
yrði sá staður?
„Kofi á strönd á Ko
Lipe fyrir utan Taíland.
Ef myndirnar ljúga ekki er
hún nálægt því að vera fullkominn
staður til að vakna á.
Hvernig yrði það frí fullkomið?
„Heimamenn slægju upp veislu þar
sem Baggalútur léki fyrir dansi.“
Sniðugt að nýta
ókeypis afbókanir
Abu Dhabi.
Shawarma
Ströndin á
Koi Lipe.
FERÐALANGURINN
Kristbjörn Helgason býr
ásamt fjölskyldu sinni í
Amsterdam þar sem
hann starfar sem sér-
fræðingur í gagnagrein-
ingu hjá Booking.com.
Kristbjörn er mikill
ferðalangur
í sér og finnst gaman
að skipuleggja ferðir
fram í tímann.
AFP
7.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Eitt það mikilvægasta á ferðalög-
um er að hafa alltaf plan B. Það
er martröð hvers ferðalangs að
lenda í því að hraðbankinn gleyp-
ir kortið þitt og ekkert er eftir í
vasanum. Á sumum fáförnum
stöðum er þín tegund af kredit-
eða debetkorti kannski ekki tek-
in og svo einfaldlega týnist kort-
ið.
Hvernig hljómar þá plan B?
Jú, það er að vera alltaf með
einhvern pening á sér til að geta
reddað sér. Svo ekki sé talað um
ef þú ert á leiðinni út á flugvöll
og það er enginn tími til að bíða
eftir því að einhver komi og veiði
kortið úr hraðbankanum.
Hins vegar er glapræði að
geyma þá alla á einum
stað – jafnvel þótt
maður telji sig af-
skaplega vel settan
með glænýjustu gerðina af
innanáveski um mittið.
Regla númer eitt er að vera
með peningana á nokkrum stöð-
um. Vera með á sér góða
summu í til dæmis góðu veski,
einnig seðla í renndum vasa á
flíkinni og á hótelinu er gott að
geyma líka peninga í öryggishólfi.
Margir eiga „sína“ aðferð við að
geyma peninga og eggin eiga
ekki að fara öll í sömu körfuna.
Gott er að hafa fleiri seðla en
færri, það er að segja; að verð-
gildi hvers þeirra sé ekki það
hátt að þú þurfir að láta skipta
stórri upphæð og treysta á að
nóg sé til í kassanum fyrir skipti-
mynt. Þá vekur það óþarfa at-
hygli á hvað þú ert með mikið á
þér ef þú dregur fram stóra
seðla og varast skal líka að draga
fram bunka af seðlum á götu-
markaðnum.
Á sumum stöðum í heiminum
er reiðufé í raun eini gjaldmiðill-
inn sem hægt er að treysta á. Í
Afríku og Asíu eru stór svæði
þar sem hvorki er hægt að nota
kort né fara í hraðbanka en þá
eru líka víðast hvar reglur um
hversu mikið reiðufé þú mátt
hafa með þér inn í landið.
Að lokum, ef gististaðurinn
býður ekki upp á öryggishólf
og þú ert einn með herbergi
er gott að fela einhvern pen-
ing í herberginu. Inni í þvotta-
poka eða einhverju sem fáum
myndi detta í hug að stela.
Þetta er ekki það öruggasta
en betra en ekkert. Ekki hafa þó
háa upphæð á þessum stað.
Að ferðast með peninga
Jakki með
leynivasa.
Trefill með
leynivasa.
Peningabelti.
EKKI HAFA ÖLL EGGIN Í SÖMU KÖRFU
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!