Morgunblaðið - 26.02.2016, Page 11
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Allt annað líf Jenný Margrét Henriksen hellir glaðbeitt upp á kaffi í Tei og kaffi þar sem hún er verslunarstjóri.
en kvíðinni og þunglyndri; einrænu
barni sem vildi alltaf vera heima að
lesa og treysti engum. Og erfiðum
unglingi, eins og mamma segir.“
Jenný bjó yfir leyndarmáli, sem
lá þungt á henni. Þegar hún var 5 til
12 ára beitti fullorðinn karlmaður
hana ítrekað kynferðislegu ofbeldi.
Hún kveðst hafa lofað honum að
segja engum frá. „Mín saga er að því
leytinu í samræmi við frásagnir ann-
arra þolenda. Gerandinn kom
ábyrgðinni yfir á mig, barnið, og um
leið bullandi sektarkennd. Þótt ég
hræddist skrímslið í honum, fannst
mér hann ekki slæmur maður, svo
undarlega sem það kann að hljóma.“
Þegar hún var fjórtán ára var
reynt að nauðga henni og sautján ára
var henni nauðgað. „Það var drengur
sem ég þekkti. Við vorum drukkin,
hann réðst á mig og þótt ég berðist á
móti tókst honum að fá vilja sínum
framgengt,“ segir Jenný. Hún er
sannfærð um að þeir sem beiti slíku
ofbeldi skynji með einhverjum hætti
brothætta bráð, sem hafi ekki kjark
til að segja frá. Eins og hana. Eða
eins og hún var. Full af sektarkennd
og þorði ekki að kæra. Fannst allt
vera sér að kenna. Gömul saga og ný
þegar ungir þolendur eiga í hlut.
Argasti aumingi?
Stuttu eftir þennan atburð
kynntist hún verðandi eiginmanni
sínum. „Þessari elsku, sem alltaf hef-
ur stutt við bakið á mér, þótt við höf-
um til skiptis verið sundur og saman
öll þessi ár,“ segir hún og rekur and-
legar hremmingar sínar og lífshlaup
til þess dags að allt fór að horfa til
betri vegar.
„Ég varð ólétt eftir fyrsta árið í
Menntaskólanum á Akureyri, hætti
námi og tók ekki aftur upp þráðinn
fyrr en 5 árum síðar. Þá féll ég í
stærðfræði, en í stað þess að taka allt
árið upp aftur eins og ég hefði þurft
að gera fluttist ég til Reykjavíkur
með dóttur mína og hóf nám í Iðn-
skólanum. Ég mætti illa og gat ekki
stundað námið vegna þunglyndis sem
var komið á svo alvarlegt stig að ég
var orðin óstarfhæf, sat oft úti í bíl
fyrir utan skólann og kom mér ekki
út til að mæta í tíma. Loks leitaði ég
aðstoðar heimilislæknis án þess þó að
minnast einu orði á ofbeldið sem ég
hafði verið beitt sem barn. Í kjölfarið
var ég sett á þunglyndislyf, sem ég
svaraði í fyrstu vel, en fékk allar
mögulegar aukaverkanir eins og síð-
ar kom á daginn að ég átti vanda til.
Ég lauk náminu einu ári seinna en til
stóð, því ég hafði fallið á mætingu
þótt ég fengi góðar einkunnir. Sjálfs-
álitið var ekki meira en svo að ég hélt
að þær helguðust af vorkunnsemi
kennaranna.“
Raunar hafði Jenný leitað til sál-
fræðings þegar hún var í MA, en
nokkrir tímar stóðu nemendum til
boða þeim að kostnaðarlausu. Þá
sagði hún, 22ja ára gömul, ut-
anaðkomandi í fyrsta skipti frá of-
beldinu. „Sálfræðingurinn benti mér
á að hugsanlega hefði ég getað forðað
öðrum börnum frá ofbeldi af hendi
þessa manns með því að segja fyrr
frá. Satt að segja leið mér enn verr en
áður því ég fékk gríðarlegt sam-
viskubit,“ segir Jenný.
Fjölskyldan fluttist til Reyð-
arfjarðar, von var á öðru barni. Jenný
þraukaði meðgönguna án þunglynd-
islyfjanna. Hún þjáðist síðan af miklu
fæðingarþunglyndi líkt og eftir fyrri
fæðinguna og eins og hún átti eftir að
upplifa eftir þá þriðju árið 2004. Van-
líðanin og depurðin var mikil og af
lyfjunum segist hún hafa upplifað sig
flata og tilveruna gráa.
Þau hjónin skildu – ekki í fyrsta
skipti – en þrátt fyrir þunglyndið
ákvað Jenný að flytjast norður, láta
gamlan draum sinn rætast og hefja
nám í grafískri hönnun við Myndlista-
skólann á Akureyri. Fljótlega kom að
þeim kafla í lífi hennar sem hún náði
botninum sem þó markaði upphafið í
bataferlinu; fyrrgreindu taugaáfalli
og innlögn á geðdeild.
Þorði ekki ein út í búð
Þeim sem næstir henni stóðu
duldist ekki hversu langt hún var
leidd. Sjálfsvígshugsanirnar átti hún
þó fyrir sjálfa sig. „Börnin bjuggu hjá
mér og það hefur ábyggilega ekki
verið auðvelt fyrir unglingsdóttur
mína að horfa upp á mig svona á mig
komna. Ég var alltaf vel í holdum en
léttist um 35 kíló, borðaði nánast ekki
neitt og drakk bara vatn. Í samráði
við góða vinkonu kom Stefán og
spurði hvort ég vildi ekki hvíla mig
inni á geðdeild í einn eða tvo daga. Ég
þráaðist við en lét svo tilleiðast. Dag-
arnir urðu að mánuði, ég var vöktuð
allan sólarhringinn, mátti aðeins fara
út klukkutíma á dag og þá í fylgd
starfsmanns. Reyndar hafði manna-
fælnin ágerst svo mikið að ég var
hætt að þora að fara ein út í búð eða
banka. Ýmis þunglyndis- og kvíða-
stillandi lyf voru reynd og ég út-
skrifuð þegar talið var að ég gæti tek-
ist á við lífið undir eftirliti geðlæknis.“
Greiningin var alvarlegt þung-
lyndi, ofsa- og félagskvíði, persónu-
leika- og áfallastreituröskun. Engu að
síður tókst Jennýju að ljúka námi og
útskrifast sem grafískur hönnuður
2009. Hún segir velvildina sem hún
mætti hjá samnemendum sínum og
kennurum hafa hjálpa sér mikið, en
hún hafi keyrt sig áfram á þrjósk-
unni.
Aðrir en þeir sem reynt hafa
gera sér efalítið ekki grein fyrir að
leiðin að bata er ekki aðeins erfið and-
lega heldur líka tímafrek. Jenný fór á
þessum árum reglulega á dagdeild
geðdeildar, í læknisheimsóknir og
gekkst tvisvar undir raflostsmeðferð
árið 2008 svo fátt eitt sé talið. Auk
þess hafði hún frá 2005 leitað sér
stuðnings hjá Aflinu, sem eru samtök
kynferðis- og heimilisofbeldis á
Norðurlandi. „Eftir nokkur ár sem
skjólstæðingur fór ég að vinna sem
leiðbeinandi hjá samtökunum. Ég
átti ennþá í vandræðum með geð-
heilsuna, treysti mér ekki í vinnu og
sá ekki fram á að ég kæmist nokkurn
tímann út á vinnumarkaðinn,“ segir
Jenný.
Mörg gæfuspor
En lengi skal manninn reyna,
eins og sagt er. Fyrir fimm árum
urðu þáttaskil í lífi hennar þegar Sig-
rún Sigurðardóttir, lektor við Há-
skólann á Akureyri og doktorsnemi í
hjúkrunarfræði, kynnti Gæfuspor í
Aflinu. Á málþinginu Leyst úr læð-
ingi mun Sigrún kynna verkefnið
sem snýst um áhrif kynferðisofbeldis
á andlega heilsu karla og kvenna og
heildræn meðferðarúrræði.
„Sigrún hvatti okkur til að taka
þátt í verkefninu. Ég var í miklum
mótþróa og sorg því góð vinkona mín,
sem átti við þunglyndi að stríða, hafði
nýlega svipt sig lífi. Eiginlega sótti ég
bara um af því að hinar konurnar
gerðu það, en krossaði fingur og von-
aði að ég kæmist ekki að,“ við-
urkennir Jenný. Henni varð ekki að
ósk sinni og við tók dagleg meðferð í
nokkra mánuði sem byggðist m.a. á
djúpri sjálfskoðun og að takast á við
drauga fortíðarinnar. „Reyndar frétti
ég á skotspónum að Sigrúnu hefði
verið ráðlagt að taka mig ekki í hóp-
inn því ég væri „lost case“,“ segir
Jenný sposk á svip.
Í Gæfusporum kveðst hún hafa
fengið verkfæri til að vinna með;
grunn sem reyndist henni vel og
veitti henni kjark til að leita til Virk
starfsendurhæfingar um aðstoð við
að koma sér út í atvinnulífið.
Þetta „vonlausa tilfelli“ hefur
verið án lyfja í fjögur ár, þorir í búð
og banka og skenkir Norðlendingum
kaffi á hverjum degi í Tei og kaffi.
„Ég er þó svolítið kvíðin fyrir að
halda erindi fyrir fullum sal af fólki,“
viðurkennir Jenný með skírskotun í
málþingið á þriðjudaginn.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016
Í FÍNU FORMI
EFTIR MIÐJAN ALDUR!
Nú hefur uppskriftinni af Build Up
verið breytt og hún endurbætt.
Drykkurinn heitir nú Meritene Energis.
Meritene Energis er próteinríkur
næringardrykkur í duftformi.
Hann inniheldur 19 vítamín og steinefni
sem miða við næringarþarfir fólks
um og eftir fimmtugt.
Meritene Energis kemur
í stað Build Up
Meritene Energis nýtist
vel í tengslum við:
• Þreytu og þrekleysi af völdum
skorts á næringarefnum
• Næringar- og vítamínskort
• Minnkaða matarlyst
• Þyngdartap
• Uppbyggingu eftir veikindi
Þú færð Meritene Energis
í Hagkaupum og öllum
helstu apótekum.
Heilbrigð sál
í hraustum
líkama
spennu, hlátur og grát í bland við
þekkta tónlist. Leikstjórnin er í hönd-
um Péturs Guðs.
Sýningar á Bjart með köflum fara
fram í Freyvangi og eru í kvöld, föstu-
dag, á morgun, laugardag, og 3. 4. og
5. mars. Miðasala er í síma 461 1212,
alla daga á milli kl. 17 og 19, í Ey-
mundsson Akureyri og á tix.is.
Gunnvör Hún er alþýðustúlka.
Söngur Hippalögin góðu óma í sýn-
ingunni og klæðnaðurinn er í stíl.
Yfirskrift málþingsins Leyst úr Læðingi er úr norrænni goðafræði. Æsirn-
ir vildu hafa hemil á Fenrisúlfi (einu af börnum Loka) og bjuggu til sér-
staka fjötra til að fjötra hann inni. Fjöturinn kölluðu þeir Læðing. Fenris-
úlfi tókst að losa sig úr fjötrinum Læðingi og þaðan er komið
orðatiltækið að losna úr læðingi. „Við leikum okkur með þetta í merking-
unni að verið sé að leysa fólk úr læðingi; hjálpa því eftir ofbeldisreynslu,
eða að það hafi þegar verið leyst úr læðingi.“
Leyst úr Læðingi
NORRÆN GOÐAFRÆÐI
Málþingið Leyst úr læðingi á
vegum Geðhjálpar verður haldið
kl. 13 þriðjudaginn 1. mars á Grand
Hotel Reykjavík.