Morgunblaðið - 26.02.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016
Sex mánaða gamall húnn hjúfrar sig að mömmu sinni,
risapöndunni Liang Liang, á dýragarði í Kuala Lump-
ur. Liang og faðir húnsins, Xing Xing, komu til Malasíu
21. maí 2014 þegar dýragarðurinn fékk pöndurnar að
láni í tíu ár. Húnninn fæddist 18. ágúst og getur aðeins
verið í Malasíu í tvö ár samkvæmt samningi um lánið.
AFP
Lánið frá Kína bar góðan ávöxt
Innanríkisráðherrar ríkja Evrópusambandsins
komu saman í Brussel í gær til að reyna að leysa
harkalega deilu sem hefur orðið til þess að sam-
eiginleg stefna þeirra í málefnum flótta- og far-
andmanna er í algjöru uppnámi.
Ríkisstjórn Grikklands hefur mótmælt harð-
lega áformum stjórnvalda í Austurríki og átta
Balkanlöndum, m.a. Serbíu og Makedóníu, um að
gera ráðstafanir til þess að stemma stigu við
straumi farandmanna sem hafa viðkomu í Grikk-
landi. Ríkin ætla m.a. að taka fingraför farand-
manna, senda þá til Grikklands ef þeir eru ekki
með vegabréf eða framvísa fölsuðum skilríkjum og
aðeins taka á móti flóttafólki sem þarfnist vernd-
ar. Stjórnvöld í nokkrum öðrum ríkjum telja að
Balkanlöndin og Austurríki hyggist aðeins taka
við fólki frá Sýrlandi og Írak, en ekki löndum á
borð við Afganistan.
Um 100.000 farandmenn hafa farið yfir Mið-
jarðarhafið til Evrópu það sem af er árinu og um
1,1 milljón á síðasta ári. Grikkland er fyrsta ESB-
ríkið sem flestir þeirra komu til og Grikkir óttast
að áform Balkanlandanna og Austurríkis verði til
þess land þeirra sitji uppi með tugi eða hundruð
þúsunda farandmanna.
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands,
hefur hótað að hindra hvers konar samninga um
aðgerðir í málefnum farandamanna á leiðtoga-
fundi ESB í næsta mánuði ef aðildarríkin sam-
þykkja ekki flóttamannakvóta til að létta byrðinni
af Grikklandi. „Við látum það ekki viðgangast að
landið okkar verði að geymslustað fyrir fólk,“ hef-
ur fréttaveitan AFP eftir Tsipras.
Segja framtíð ESB í hættu
Stjórnvöld í Austurríki hafa varað við því að
framtíð Evrópusambandsins sé í hættu vegna
flóttamannavandans. Dimitis Avramopoulos, sem
fer með málefni farandmanna í framkvæmda-
stjórn ESB, hvatti ráðherrana til að leysa deiluna
og sagði „einingu Evrópusambandsins“ og líf
flóttafólks í húfi.
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, hefur
einnig varað við því að fari tilraunirnar til að leysa
vandann út um þúfur geti það aukið líkurnar á því
að Bretar samþykki úrsögn úr sambandinu í
þjóðaratkvæði 23. júní. bogi@mbl.is
Flóttamannastefnan í uppnámi
Segja einingu Evrópusambandsins og líf flóttafólks í húfi í deilu um farandmenn
„Við látum það ekki
viðgangast að landið
verði að geymslustað
fyrir fólk.“
Alexis Tsipras
Peking er nú með fleiri auðkýfinga
en New York-borg og telst því
„höfuðborg milljarðamæringa
heimsins“, að sögn Hurun Report,
tímarits sem birtir árlega lista yfir
auðugustu menn Kína. Hundrað
milljarðamæringar búa nú í Peking
og þeim fjölgaði um 32 í fyrra en í
New York fjölgaði þeim um fjóra, í
95, ef marka má könnun tímarits-
ins. Það telur að í Kína séu nú 568
milljarðamæringar og 535 í Banda-
ríkjunum.
Peking höfuðborg
auðkýfinganna
KÍNA
Rannsókn á kynferðisbrotum
bresku sjónvarpsstjörnunnar
Jimmy Savile hefur leitt í ljós að
djúp virðing
samstarfsmanna
hans fyrir frægu
fólki og ótti við
að missa vinnuna
hjá BBC hafi
stuðlað að því að
hann komst upp
með að beita
börn kynferðis-
legu ofbeldi í
áratugi.
Savile var einn af frægustu
mönnum Bretlands frá sjöunda ára-
tug aldarinnar sem leið og þar til
hann dó 2011, 84 ára að aldri. Janet
Smith, fyrrverandi dómari, segir í
793 síðna skýrslu sem birt var í gær
að Savile hafi framið kynferðisbrot
gegn 72 manns í tengslum við störf
hans fyrir BBC og nauðgað átta
þeirra. Tæpur helmingur fórnar-
lambanna hafi verið undir sextán
ára aldri og yngsta barnið átta ára.
Flest barnanna voru stúlkur en á
meðal þeirra voru einnig drengir.
Óttuðust að missa vinnuna
Smith segir að nokkrir sam-
starfsmenn Savile hafi gert sér
grein fyrir kynferðisbrotum hans
en ekki skýrt stjórnendum BBC frá
þeim og hún rekur það meðal ann-
ars til stjörnudýrkunar. „Menn
báru djúpa virðingu fyrir þeim og
óttuðust að ef þeir reittu stjörnu til
reiði kynnu þeir að fara frá BBC.“
Smith rannsakaði málið í þrjú ár
og kvaðst ekki hafa fundið neinar
vísbendingar um að æðstu stjórn-
endur BBC hefðu vitað af framferði
Savile. Tony Hall, sem var skipaður
æðsti yfirmaður BBC árið 2012,
kvaðst samþykkja allar niðurstöður
skýrslunnar og ætla að hefja endur-
skoðun á starfsreglum til að auka
líkurnar á því að starfsfólk tilkynni
það ef grunsemdir vakna um barna-
níð innan stofnunarinnar.
Vissu af
barnaníði
Savile
Jimmy Savile
Stjörnudýrkun
hjálpaði honum
Vinstriflokkarnir í Danmörku hafa
óskað eftir því að tillaga um van-
traust á Evu Kjer Hansen, umhverf-
is- og matvælaráðherra, verði borin
undir atkvæði á
þinginu eftir að
Íhaldsflokkurinn
lýsti því yfir að
hann treysti
henni ekki lengur
til að gegna emb-
ættinu.
Samkvæmt
reglum þingsins
getur atkvæða-
greiðslan ekki
farið fram fyrr en
á miðvikudaginn kemur. Søren Pape
Poulsen, formaður Íhaldsflokksins,
eins flokkanna sem styðja minni-
hlutastjórn mið- og hægriflokksins
Venstre, áréttaði að þingmenn
flokksins myndu greiða atkvæði með
vantrauststillögunni. Hann tók þó
fram að margt gæti breyst þar til á
miðvikudag og viðræðum mið- og
hægriflokkanna um málið yrði haldið
áfram næstu daga.
Fréttavefur Politiken hefur eftir
Mai Mercado, talsmanni Íhalds-
flokksins, að þingmenn hans vilji að
Hansen segi af sér, ella greiði þeir
atkvæði með vantrauststillögu
stjórnarandstöðunnar.
Sagður hunsa meirihlutann
Lars Løkke Rasmussen, forsætis-
ráðherra og leiðtogi Venstre, árétt-
aði að hann bæri enn fullt traust til
umhverfisráðherrans. Hann sagði
það líklegra að hann boðaði til þing-
kosninga en að hann viki Hansen úr
ráðherraembættinu, að sögn
fréttavefjar danska ríkisútvarpsins.
Nicolai Wammen, talsmaður Jafn-
aðarmannaflokksins, sagði að tillag-
an um vantraust hefði verið lögð
fram vegna þess að ljóst væri að um-
hverfis- og matvælaráðherrann nyti
ekki lengur meirihlutastuðnings á
þinginu. „Yfirleitt fer forsætisráð-
herra eftir slíku og skipar nýjan ráð-
herra en nú hefur Lars Løkke Ra-
mussen valið að hunsa meirihlutann
á þinginu sem ber ekki lengur traust
til Evu Kjer Hansen sem ráðherra,“
hefur Politiken eftir Wammen.
Íhaldsflokkurinn og stjórnarand-
staðan saka Hansen um að hafa veitt
danska þinginu rangar upplýsingar í
umræðu um landbúnaðarfrumvarp
stjórnarinnar. Íhaldsflokkurinn
studdi þó frumvarpið þegar þingið
samþykkti það í gær. bogi@mbl.is
Segir kosningar
líklegri kost
Løkke hyggst ekki víkja Hansen frá
Lars Løkke
Rasmussen
Gufulestin fræga Skotinn fljúgandi
hélt í fyrstu ferð sína í tíu ár frá
King’s Cross-lestarstöðinni í Lond-
on í gær. Henni er lýst sem einu
helsta djásni breskrar iðnaðarsögu
en hún var smíðuð fyrir rúmum
níutíu árum og var fyrsta gufulest-
in til að ná hundrað mílna hraða á
klukkustund (160 km/klst.). Fyrstu
ferðinni lauk í York og þaðan fór
Skotinn til breska lestarsafnsins
þar sem hann verður geymdur þar
til í mars. Nota á lestina í ferðir fyr-
ir ferðamenn og sýningar.
BRETLAND
Skotinn flýgur á ný