Morgunblaðið - 26.02.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.02.2016, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 57. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Alvarlegt slys í Gufunesi 2. Þungt haldinn á gjörgæslu 3. Virtist vera sokkin til botns 4. Grunaður um árás í Hafnarfirði »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Íslenski flautukórinn flytur 18. ald- ar tónlist á upprunaleg barokkhljóð- færi í Listasafni Íslands í dag kl. 12.10. Leikið verður á efri hæð safns- ins þar sem sýningin Udstilling af is- landsk kunst – upphaf kynningar á íslenskri myndlist í Kaupmannahöfn stendur yfir. Aðgangur er ókeypis. Íslenski flautukórinn með hádegistónleika  Í tilefni vetrarfrís skólabarna bjóða Bíó Paradís og Stockfish upp á frí- ar barnakvik- myndasýningar. Í dag verður kvik- myndin Skýjahöllin sýnd kl. 10 og myndin Stikkfrí kl. 12. Báðar myndir eru leyfðar öllum aldurshópum og er frítt inn og allir velkomnir, svo lengi sem húsrúm leyfir. Bíó Paradís býður í bíó í vetrarfríinu  Rúnar Þórisson heldur tónleika á Græna hattinum í kvöld. Þar leikur hann ásamt hljómsveit lög frá sóló- ferli sínum auk þess sem nokkur Grafíklög fá að hljóma. Í hljómsveit Rúnars eru tvær dætur hans, Lára og Margrét, sem syngja, radda og spila á hljómborð, Arnar Þór Gíslason á trommur, Birkir Rafn Gíslason á gítar og Guðni Finnsson á bassa. Rúnar Þórisson á Græna hattinum Á laugardag Hæg breytileg átt, léttskýjað og víða talsvert frost í innsveitum, en þykknar upp um landið sunnanvert og dálítil él við suðurströndina þegar kemur fram á daginn. Á sunnudag Gengur í hvassa suðaustanátt. Hlýnandi veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Léttir til víðast hvar á landinu. Kaldast í inn- sveitum norðaustanlands, en hiti kringum frostmark sunnanlands. VEÐUR Það verða Grótta og Stjarnan sem mætast í úr- slitaleiknum í bikarkeppni kvenna í handknattleik í Laugardalshöllinni á morgun. Grótta vann Hauka í æsispennandi og tvíframlengdum leik, 30:29, en Stjarnan lagði Fylki að velli, 26:21. Í kvöld eru svo undan- úrslitin í karlaflokki á dag- skrá í Laugardalshöllinni. »2-3 Grótta og Stjarn- an í úrslitaleik „Þetta er tvímælalaust stærsti sigur íslenska kvennalandsliðsins í körfu- knattleik fram til þessa. Mér líður hrikalega vel þrátt fyrir að vera lurk- um lamin eftir þennan leik. Ég er bara svo glöð að allt annað hverfur í skuggann fyrir gleðinni,“ segir Pálína Gunnlaugs- dóttir, landsliðskona í körfuknattleik, um frækinn sigur Íslands á Ungverjalandi í fyrra- kvöld. »4 Allt annað hverfur í skuggann fyrir gleðinni Höttur eygir enn von um að halda sæti sínu í Dominos-deild karla í körfuknattleik eftir stórsigur á ÍR, 93:70, á Egilsstöðum í gærkvöld. KR er einum sigri frá deildarmeistaratitl- inum eftir að hafa lagt Grindavík með nítján stiga mun. Snæfell vann yf- irburðasigur á FSu og Stjarnan sigr- aði Njarðvík í háspennuleik suður með sjó. »2-3 Höttur eygir enn von um að halda sér uppi ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Rannsókn Jóhönnu Katrínar Frið- riksdóttur, doktors í miðaldafræð- um, á eigendasögu handrita Kon- ungs skuggsjár hér á landi leiddi hana að óvæntum vísbendingum um hlutverk kvenna í bókmenningu og menntun. „Ég hef áhuga á síðmiðöldum og sérstaklega á ólíkri menningu milli landsvæða og að fólk hafi verið að lesa mismunandi sögur og texta á ólíkum stöðum,“ segir Jóhanna. Með því að skoða eigendasögu handrita er hægt að komast að ýmsu um handritin sjálf og í hvaða tilgangi þau voru notuð. „Ég vissi af hópi handrita frá Möðruvöllum og þar leyndust 14 handrit af Kon- ungs skuggsjá, inn á milli Íslend- ingasagna og riddarasagna,“ segir Jóhanna. Mest lesið af konum í Eyjafirði Konungs skuggsjá er norskt rit sem samið var um miðja 13. öld við hirð Hákonar Hákonarsonar kon- ungs. Í ritinu er að finna ráðlegg- ingar til kaupmanna, hirðmanna og konunga. Jóhanna rakti eigenda- sögu nokkurra af þeim 14 hand- ritum sem hún fann og það kom henni mikið á óvart að meirihluti eigendanna var konur. „Einn eig- andinn var kona úr Eyjafirði og ég komst að því að hún er skyld sama fólki og hafði búið til annað handrit af Konungs skuggsjá. Ég gat hins vegar ekki sannað það og skoðaði því nafn konu sem krotað hafði verið í hand- ritin og gat einnig rekið hennar ættir til Eyjafjarðar.“ Jóhanna starfar hjá Stofnun Árna Magnússonar þar sem hún er Marie Curie-styrkþegi og stundar rannsóknir á bókmenntum og handritamenningu síðmiðalda. Að- spurð af hverju miðaldafræði urðu fyrir valinu sem fræðigrein segir hún: „Mér finnst heillandi að kom- ast í snertingu við þennan tíma í gegnum handritin. Sú staðreynd að það var einhvern tímann fólk sem hélt á þeim og las og lagði mikinn kostnað í að búa þau til er einnig heillandi.“ Jóhanna segir að það sé margt í síðmiðaldafræðunum sem eigi eftir að skilja betur og hyggst hún rannsaka það. „Að mörgu leyti er erfiðara að finna heimildir frá þessum tíma. En þegar maður fer að skoða þetta kemur í ljós mikil dramatík, átök og valdabarátta, sem gerir þetta svo skemmtilegt.“ Fjöldi kvennanna kom á óvart  Jóhanna rann- sakaði eigendur Konungs skuggsjár Morgunblaðið/Árni Sæberg Miðaldir Jóhanna Katrín Friðriksdóttir, doktor í miðaldafræðum, komst að því að hópur íslenskra kvenna las Kon- ungs skuggsjá. Áður var einungis talið að karlmenn hefðu lesið ritið, sem fjallar um ráð til kaupmanna og konunga. Meðal þeirra 14 handrita af Konungs skuggsjá sem Jóhanna skoðaði vakti eitt þeirra athygli hennar sérstaklega. Handrit sem er merkt Halldóru Sig- urðardóttur. „Ég hélt að handritið hefði bara verið ætlað yfirstéttarkörlum. Hennar handrit var lítið og fallegt og greinilega útbúið sérstaklega fyrir hana. Mér fannst sérstakt að einhver skyldi velja akkúrat þennan texta til að láta dóttur sína lesa,“ segir Jóhanna, sem hafði tengt textann við karla- menningu. „Textinn er skrifaður fyrir son kon- ungsins og í honum er einnig að finna leiðbein- ingar um hirðsiði. Þetta er mjög karllægur heimur sem er dreginn upp í textanum. Þess vegna kom mér á óvart að finna allar þessar konur.“ KONUNGS SKUGGSJÁ Í EIGU KVENNA Merkt Nafn Halldóru má sjá neðst í ha ndritinu. Ekki bara fyrir yfirstéttarkarla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.