Morgunblaðið - 26.02.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 26.02.2016, Síða 14
Ljósmynd/Þórunn Sigþórsdóttir Hótel og kirkja Stór hluti af dagskránni á Júlíönu, hátíð sögu og bóka, um helgina fer fram á Hótel Egilsen og í gömlu kirkjunni í Stykkishólmi. SVIÐSLJÓS Gunnlaugur A. Árnason Stykkishólmi Það verður mikið um að vera í Hólminum um helgina. Júlíana, há- tíð sögu og bóka, verður þá haldin í Stykkishólmi. Þetta er í fjórða skipti sem hátíðin er haldin síðustu helgi febrúar. Upphafið var að fjórar konur tóku sig saman um að skipuleggja helgardagskrá sem tengdist bók- menntum og sögum. Vel hefur til tekist og hafa konurnar fengið mikla hvatningu til að halda áfram. Yfirskrift Júlíönuhátíðar í ár er „En hvað það er skrítið“ og fjallar dagskráin um fólk sem ekki bindur bagga sína sömu hnútum og sam- ferðamennirnir. Hátíðin verður sett fimmtudagskvöldið 25. febr- úar í Vatnasafninu. Þar flytur Ell- lert Kristinsson erindi um eftir- minnilegar persónur í Hólminum og nemendur tónlistarskólans flytja frumsamið verk við texta Júlíönu Jónsdóttur skáldkonu, en eftir henni er hátíðin nefnd. Einn- ig verður veitt viðurkenning og lesið ljóð. Þá verður fjölbreytt dagskrá allan föstudag og laug- ardag. Gaman í góðum félagsskap Dagbjört Höskuldsdóttir er ein þeirra sem koma að hátíðinni. Hún var spurð hvernig hefði staðið á því að farið var af stað með þriggja daga dagskrá á miðjum vetri. Dagbjört segir að hvatamaður hátíðarinnar sé Gréta Sigurð- ardóttir hótelstjóri á Hótel Egilsen. „Hún kallaði okkur saman og kveikti áhugann. Mér fannst spenn- andi að gera eitthvað varðandi bækur og var til í slaginn. Það er meiri vinna en við gerðum okkur grein fyrir að standa að og und- irbúa svona menningarvöku. En í góðum félagsskap er gaman að tak- ast á við verkefnið og nú erum við mættar í fjórða skipti.“ Að sögn Dagbjartar verður rithöf- undum boðið að koma og lesa upp úr bókum sínum og spjalla við gesti um verk sín og það sem þar liggur á bak við. „Við byggjum líka á heimafólki sem kemur inn í dagskrána með sögum, erindum, myndlist og tónlist. Að þessu sinni heimsækja okkur rit- höfundarnir Einar Már Guðmunds- son, Gunnar Helgason, Hrafnhildur Schram og Sigmundur Ernir Rún- arsson. Við höfum líka lagt áherslu á að virkja unga fólkið okkar og unnið verkefni með Grunnskólanum og nú líka tónlistarskólanum.“ Hólmari, hommi, heimsborgari Dagbjört segir að hryggjar- stykkið í verkefninu sé leshópur, sem ávallt fari af stað í byrjun hvers árs, og lesi saman áhuga- verða bók einu sinni í viku. Þátttakan hafi alltaf verið mjög góð. „Að þessu sinni varð fyrir valinu bókin Hundadagar, eftir Einar Má Guð- mundsson. Ólafur Ólafsson, sýslu- maður og bókamaður hefur leitt hópinn og það hefur verið mjög gaman. Það er allt öðruvísi að lesa bók í hóp. Þar fær maður allt aðra sýn á söguna þegar umræður skap- ast sem geta verið mjög fjörlegar. Þá vil ég vil minna á að á föstu- dagskvöldið verður gestum boðið til stofu á tveimur heimilum í bænum. Á öðrum staðnum mun Reynir Þór Eggertsson flytja erindið „Hólmari, hommi og heimsborgari“ og hinum staðnum mætir Þórdís J. Sigurð- ardóttir með erindið Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.“ Dagbjört segir að Júlíönuhátíð hafi fengið mjög jákvæðar umsagn- ir. „Allir sem leitað var til voru bón- góðir. Það léttir störfin og hvetur mann til að halda áfram.“ Hún segist vona að dagskráin þessa helgi falli í góðan jarðveg og hvetur orlofshúsaeigendur í Hólm- inum og aðra gesti til að mæta og eiga saman skemmtilega helgi með bæjarbúum þegar mikið er um að vera. Það er stutt í Stykkishólm. Menningarhelgi í Hólminum Morgunblaðið/ Gunnlaugur A. Árnason Lesið saman Leshópurinn les nú saman bókina Hundadagar eftir Einar Má Guðmundsson. Ólafur Ólafsson, sýslumaður og bókamaður er lesstjóri og segir Dagbjört allt öðruvísi að lesa bók í hóp, önnur sýn fáist á söguna.  Fjölbreytni fyrir gesti og heimafólk 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 Umhverfisvæn áhersla ! lífrænt trjákurl í kattaklósett ........................................... náttúruleg lyktar- og bak- teríueyðing (stóri rauði miðinn) klumpast vel og er 100% niðurbrjótanlegt (rauði miðinn í miðjunni) mhverfisvæn áhersla! LÍFRÆNT TRJÁKURL í kattaklósett Náttúruleg lyktar- og bakteríueyð ing Klumpast ve l og er 100% niðurbrjótan legt, má los a í salerni Mjög hagkv æmt botnlag má vera 4-6 vik ur í kattakló settinu – fyrir dýrin þín Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is Föstudaginn 26. febrúar heldur Gunnar Helgi Kristinsson pró- fessor fyrirlestur sem ber heitið: „Hvar eru lögin samin? Samspil þings og stjórnar á Íslandi með samanburði við Norðurlönd.“ Fyrirlesturinn hefst kl. 12, fer fram í stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands og er öllum opinn. Fyrirlesturinn fjallar um með hvaða hætti laga- setning er undirbúin á Íslandi og hvernig það ferli sé ólíkt því sem gerist á Norðurlöndum. Fyrirlestur um laga- gerð hér og erlendis Gunnar Helgi Kristinsson Line Barfod, fyrrverandi þingmað- ur Enhedslisten á Danska þjóð- þinginu, heldur erindi um mansal, þrælahald nútímans, í Norræna húsinu á föstudaginn 26. febrúar, klukkan 17. Line Barfod er hér á samráðsfundi Vinstri grænna og leiðtoga evrópskra vinstriflokka um flóttamannavandann. Eyrún Eyþórsdóttir lögreglufulltrúi verð- ur kynnir fundarins, sem fer fram á íslensku og dönsku. Erindi um mansal Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Það hefur verið hugmynd hjá mér að gefa það út sjálfur að ég myndi ekki vera í ríkisstjórn þar sem ráð- herrar væru líka þingmenn,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, en Píratar samþykktu á dög- unum með 94% atkvæða að flokkur- inn skuli ekki eiga aðild að ríkisstjórn þar sem ráðherrar sitji jafnframt sem þingmenn. „Ég ákvað þó að segja það ekki upphátt fyrr en nú, því það hefði getað þvælst fyrir öðrum málum,“ bætir hann við en mikil ánægja sé með málið. Þörf sé þó á því að framkvæmda- valdið hafi lýðræðislegt umboð úr kosningum og hugnast Helga því síð- ur að leita til einstaklinga utan þings til að gegna ráðherrastöðu, þótt það komi til greina. Í greinagerð með tillögunni kemur fram að krafan skuli vera alger og ófrávíkjanleg af hálfu Pírata. Einu gildi hvort Píratar væru leiðandi í stjórnarsamstarfi eða ekki. Ekki væri þó verið að útiloka að Píratar gætu varið minnihlutastjórn flokka, sem skipuð væri þingmönnum. Óttast þú að aðrir flokkar hafni samstarfi á þessum grunni? „Af hverju væru menn ekki til í þetta. Ég óttast það ekki en þá er alltaf hægt að sannfæra þá um það. Þeir hefðu til dæmis fleiri talsmenn á þingi.“ Vaxtarverkir og áskoranir Halldór Auðar Svansson, borgar- fulltrúi Pírata í Reykjavík, segir að- spurður að aukið fylgi flokksins virki sem hvati til að vinna mikið og vel. „Við finnum til mikillar ábyrgðar og höfum meiri áhyggjur af því hvað við setjum út því við vitum að það er lík- legt til að hafa meiri afleiðingar og vekja meiri athygli,“ bætir hann við en flokksmenn séu þó misánægðir með auknar vinsældir. Helgi Hrafn telur að aukið fylgi flokksins hafi góð áhrif að því gefnu að flokkurinn vaxi með. „Hann hefur verið að gera það að miklu leyti en ekki öllu. Þá koma oft vandamál í ljós sem áður voru ekki sjáanleg.“ Takast þurfi á við vaxtarverki og áskoranir. Ekki formannsembætti Þá telur Halldór Auðar að betur hefði mátt leysa ágreining milli flokksmanna undanfarna daga án þess að bera það á torg. En þegar mikil kergja sé í mönnum þá sé skilj- anlegt að málið springi út. Mikilvægt sé að viðurkenna að aðstöðumunar gæti milli manna í flokknum en ekki eigi að bregðast við því með stofnun formannsembættis. Alger og ófrávíkjanleg krafa  Píratar samþykkja skilyrði fyrir samstarfi í ríkisstjórn  Aðskilja löggjafar- og framkvæmdavaldið  Óttast ekki viðbrögðin  Miklu fylgi fylgir aukin ábyrgð Morgunblaðið/Styrmir Kári Skýlaus krafa Píratar vilja ekki að ráðherrar sitji jafnframt sem þingmenn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.