Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.11.1993, Page 6

Víkurfréttir - 25.11.1993, Page 6
6 25. NÓVEMBER 1993 VlffURFRÉTTIR F R E T T I R Útgefandi: Víkurfréttir hf. Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717, 15717. Box 125,230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. - Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, heimas. 13707. • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heimas. 27064 bílas. 985-33717. - Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir - Upplag: 6400 eintök sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. - Fréttaþjónusta fyrir Stöð 2 og Bylgjuna. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Umbrot, filmuvinna og prentun: Grágás hf., Keflavík Leiðari: 64 Garðmenn og 14 Vognbúar Það vantaði ekki nema 14 Vogabúa og 64 Garðmenn til þess að fimm sveitarfélög á Suðurnesjum yrðu sameinuð - og það án annarra kosninga. Sameining var samþykkt með yfirburðum í Keflavík, Njarðvík og Höfnum og ætti því að liggja beint fyrir að sameina þau þrjú sveitarfélög. En með tilliti til úrslita í Vogum og Garði er full ástæða fyrir stjórnendur þessara sveit- arfélaga að skoða úrslitin í ljósi þess að mjög lítið vantað upp á til þess að JÁ-in yrðu fleiri en NEI-in. Einnig ber að hafa það í huga að margir gengu í kjör- klefann vitandi að íbúar Grindavíkur og Sandgerðis voru mjög á móti sameiningu. En því var ekki fagna í Garði og Vogum. Það sést á úrslitunum. Og komi upp önnur tillaga, þ.e. að sameina Keflavík, Njarðvík, Garð,Voga og Hafnir í kosningum eftir áramót má segja fyrir víst að kjósendur í þessum byggðarlögum geta farið að kjörborðinu með meiri vissu en þegar kosið var um sameiningu allra sveitarfélaganna á Suð- urnesjum, - því vitað var um hina miklu andstöðu í Grindavík og Sandgerði. Helstu rök NEI-kjósenda í Garði og Vogum voru þau að það væri of mikil óvissa um framtíðina. „Rödd Garðmanna mun ekki heyrast í stóru sveitarfélagi", „hvernig eigum við að koma að manni í stóra bæj- arstjórn?", og sama sögðu andstæðingar sameiningar í Vogum. Þetta eru óþarfa áhyggjur. Og það vita íbúar þessara sveitarfélaga. Auðvitað munu „raddir“ þeirra heyrast. Nærtækasta dæmið er Hitaveita Suðurnesja. Þegar raf- vejtur sveitarfélaganna á Suðurnesjum voru sam- einaðar þurfti svo sannarlega að taka til hendinni í minni sveitarfélögunum og hvað var gert? Því er fljótsvarað! Það var byrjað á þeim stöðum! Og þetta með að minni staðirnir komi ekki fulltrúum að í stóru bæjarfélagi er því til að svara að auðvitað er það rangt. Frambærilegir fulltrúar komast alltaf að. Sýnum nú samstöðu Suðurnesjamenn. Með „litlu“ átaki verður hægt að sameina fimrn sveitarfélög með um 12 þúsund íbúa. Kjósum um það í næstu kosningum eftir áramót og sýnum skynsemi. Samstarfið er búið að vera mjög gott í 15 ár og það er engin spurning að minni sveitarfélögin hafa hagnast á því. Með sam- einingu á stórt og öflugt bæjarfélag, sem yrði meðal fimm stærstu á landinu verður hægt að taka á móti öll- um þeim verkefnum sem okkur bjóðast frá ríkinu, halda uppi góðri þjónustu á öðrum sviðum, s.s. fyrir aldraða, sjúka, fatlaða og fleira mætti nefna. Og senni- lega stærsta atriðið: á sviði atvinnumála. Þetta er ekki spurning lengur. Stillum saman strengi í sterku sveitarfélagi og horfum til framtíðar. Páll Ketilsson WLmsí8mg,«Ji« tískuþáttur FYRIRSÆTA: ingibjörg bergmi! LJOSM: oddgeir karlsson FÖRÐUN: nýtt útlit-gloría HÁRGREIÐSLA: elegans n magnúsdóttir öbruvísi húsgögn Iðavöllwn 14b (i Gœðakjorsliúsiittt) Keflavík Brvndís Líndal Arnbjörnsdóttir, Fegurðarsdrottning Suðurnesja 199.L Ábendingar óskast Undirbúningur fyrir Feg- urðarsamkeppni Suðumesja er hafin. Keppnin verður haldin í febrúar. Leit að þátttakendum stendur nú yfir og er fólk beðið að koina ábendingum á framfæri til Ágústu Jónsdóttur í síma 16021 eða til Páls Ketilssonar á Víkurfréttum í síma 14717. Þær stúlkur sem hafa áhuga á að ger- ast þátttakendur geta komið á skrifstofu Víkurfrétta og fengið þar sérstakt eyðublað til þess. Hólmgarðsjól íÞotunni I kvöld verða Hólmgarðsjól í Þotunni. Það eru verslanir í Hólmgarði 2 í Keflavík sem standa að skemmtuninni. Á boðstólum eru tískusýningar, kökukynningar, skemmti- kraftar og kaffi fyrir gesti. Boðsmiðar liggja frammi í öllum Hólmsgarðsverslunum. DAGB0K o SÍMI15717 Fundaherferðin um kynlífið: í Njarðvík á þriðjudaginn Ottar Guðmundsson, læknir, heldurfundaherferð sinni um kynlífið áfram í Njarðvík á þriðjudaginn, 30. nóvember. Þá er stúlkum og mæðrum þeirra boðið til fundar í Grunnskóla Njarðvíkur kl. 20:15. Firnmtu- daginn 2. desember eiga síðan strákarnir að draga pabba sína á fund með Ottari og það er einnig í Grunnskóla Njarðvíkur kl. 20:15

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.