Víkurfréttir - 25.11.1993, Blaðsíða 11
WfíURFRÉTTIR
25. NÓVEMBER 1993
11
VALUR KETILSSON / fimmtudagsfjasarinn
ÞA VAR TOFF
AO REYKJA!
Úff, kúff, hóst, hóst!!
„Mikið andsk... er þetta óþol-
andi“ hvæsti ég önugur á svipinn
þegar við hjónin fórum yfir
gestalistann í sameiningu, fyrir
þrítugsafmælið.
Við sátum í mak-
indum inn í stofu og
svældum þessi líka
ósköp með kaffinu
og Tíu Maríunni.
Púff og Sog
„Það verða Stormsfélagarnir,
Vináttu hópurinn..........sog,
...púff..sog....Óli, Palli og
..púff....sog....ekki gleyma
bræðrunum og Benna........púff,
....sog..
Svona hélt þetta áfram þar til
talið barst að Bóa félaga, sem
hætti í smóknum í sumar.
..Helvíti er hann sterkur strák-
urinn að halda þetta út" urraði ég
öfundsjúkur og drap í Salem-
stubbnum í keramik ösku-
bakkanum, sem við keyptum
okkur á markaði út á Spáni í
sumar.
..Konan hans reykir ekki held-
ur“ bætti ég við borubrattur og
fannst ég heldur betur hafa slegið
illþyrmilega undir beltisstað með
þessari staðhæfingu.
..Já, Guð, við verðum að fara að
hætta þessu í eitt skipti fyrir öll“
stundi frúin gráleit í kófinu og
saug stubbinn svo að birti til í
stofunni.
Upphafið
Við rifjuðum það upp fyrir
okkur hvenær við byrjuðum og af
tillitssemi við foreldrana, þá
verður fyrsta fiktið ekki ald-
Veitingamað-
uf/itif axlar-
og rifbeins-
brotinn
Veitingamaðurinn á Ránni,
Björn Vífill Þorleifsson, er axlar-
og rifbeinsbrotinn eftir tilefnis-
lausa árás inni á veitingahúsinu
Ránni um sl. lielgi. Veitinga-
maðurinn var að vísa 19 ára gam-
alli stúlku út af skemmtistaðnum
þegarunnusti hennarslótil Bjöms
Vífils í stiga á milli hæða og tók
hann síðan hálstaki og sarnan
hentust þeir niður stigann. Björn
Vífill varð undir og axlar- og rif-
beinsbrotnaði í lendingunni.
Kölluð var til sjúkrabifreið og var
veitingamaðurinn fluttur á slysa-
móttöku í Reykjavík.
Skömmu áður hafði annar
sjúkrabíll sótt stúlku á Ránna sem
hal'ði skorið í sundur slagæð í fæti
svo blæddi inikið. Sjúkrabíllinn
var vart farinn með stúlkuna þegar
Björn Vífill varð fyrir árásinni.
Hann sagði í samtali við blaðið að
verr hefði getað farið og segist
hcppinn að hafa bara sloppiö með
áðurnefnda áverka.
ursgreint. Við vonum bara og
trúúm að börnin okkar byrji ekki
á svipuðum aldri og byrji helst
aldrei.
Eg vil meina og náttúrulega
kenna öðrum um að hafa kennt
mér þennan ósið og má sá vel-
þekkti arkitekt og bæjarvillingur
taka það til sín, þegar hann les
þessar línur. Ef ekki fyrir hans
tilstilli og villingaskap, í bland
við nýbyggingar Konna og Arna
Sam á áttunda áratugnum. sem oft
litu út fyrir að vera reykhús
Kaupfélagsins á Hafnargötunni,
þá væri ég sennilega með öllu
reyklaus í dag!
Allt fyrir píurnar
Imyndið ykkur fíflaskapinn að
þykjast ganga í augun á
píunum í gaggó, við
það eitt að reykja! Að
skjótast út í frí-
mínútur og bræla
eina „Kántrý", til
þess eins að sýnast
töff. Hún Jóna
Björg ætti að vita
það!
Núna, gráleitum,
andstuttum, þollausum og
andfúlum fimmtán árum seinna,
finnst píunum ég ekkert lengur
töff. Bara ósköp þreytulegur
þriggja barna faðir. Eða hvað?!
Auðvitað hefur maður svo sem
tekið sig á og hætt þessari vitleysu
en alltaf flaskað á viljastyrknum.
Núna hugsar maður til reyklausu
tímabilanna, þegar morg-
unvakningin var ekkert vanda-
mál, andtremman var í lagi og
útlitið litglaðara. Hér skiptu pen-
ingarnirengu máli þvíheilbrigðið
vó tvöfalt.
Gylfi pípa
Eg vildi óska þess að vera laus
við þetta allt saman. Mín vegna
og þó einkum barnanna.
En á meðan ég man. hvernig
ætli Gylfi Guðmunds standi sig?
Hann dró einhverja með sér í
hópsefjun, var það ekki? Ætli
honum langi ekkert í pípuna
sína?
Eg veit það vel og hef látið
reyna á þetta, að þetta er ekkert
mál. Hverjir kannast svo sem ekki
við að ætla að hætta í dag en hugsa
svo. æi, það er saumó um helgina,
spilakvöld í vikunni og karoke
kvöld þar á eftir og.....
Reyklaus vél
Eg var svo illa stíflaður um
daginn. þegar ég fór austur yfir
haf, að ég ætlaði hreint út sagt
að kæra flugfélagið fyrir
að Ieyfa ekki reykingar
um borð í vélinni.
Ykkur að segja, þá
leið mér miklu betur
en áður í „smoking"
og ég vona svo sann-
arlega að þetta sé að-
eins upphafið á
reyklausu landi fyrirárið
2000.
Engu að síður er komið að þe im
tímapunkti í lífinu að velja á milli
reyks eða reykleysis. Hvora vél-
ina maður tekur!!!
Ég held að þegar maður hefur
náð því „takmarki", að reykja
hálfa ævina og fundið því allt til
foráttu, sérstaklega hin seinni ár,
þá hlýtur þroskinn og virðingin
fyrir líkamanum að ná yfírráðum
yfir fíkilshætti töffarans úr gaggó,
áður en allt verður um seinan.
Ég held ég bíði samt með þetta
þar til eftir afmælið...!!
Elegans tilboð
vikuna 29. nóv. - 3. des.
KERASTASE
SHAMPO
fylgir dömu- og herraklippingu.
Vikuna 6. - 10. desember
20% afsláttur
af barnaklippingum
KERASTASE
kynning
3. desember
Opið
nmudaga kl. 13-18
þriðjudaga ■ föstudaga kl. 9-18
laugardaga kl. 10-?
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
£L
Q0cn5
Vatnsnestorgi-Sími 14848
V
!l Sókabúi Ketfaúíkur
Sólvallagata 2, 230 Keflavík V 92-11102
Daglega í leiöinni
... í vinnuna !
FEB
ELDRI BORQARA
Gömludansarnir í Þotunni
Föstudaginn 26. nóvember kl. 21:00.
Ragnar Jónasson veröur dansstjóri.
Öllum heimill aðgangur.
Reynum aö fá yngra fólk til aö vera meö okkur í
stofnun Eldridansa félags.
Skemmtinefndin.
Islenskt
i'Siahlaðborð
frá Matarlyst
‘Jomttir:
Sitmepssííd
Si(d i tómatj sfierry með epíum og (aulj
%arrúsi(d
!Kúg6rauo opjsmjör
Qrafin b(ei(qa með di(bósu
Sjávarréttafœfa með agúrlqisósu
‘Taðrepf(tur íundi með piparrótarsósu
eðaprajingœsabringa með sinnepssósu
(dðaírettir:
‘Reylf grisalgöt með tiíheprandi meðbzti
‘W(ilqyddaður (ambapottréttur
Meðíceti:
‘Brúnaðir IjartöjTur, rauðvínssósa,
ep(asa(at, rauðljáí,grcenar baunir, hrísgrjón,
hrásaíat, heittgmnmeti og mömmutartalettur.
ÁScetir
Sherrytjómarönd
Verð pr. mann kr. 1.560,-
Sendum í heimahús
og fyrirtœki, getum
einnig útvegað góða
sali til veisluhalda.
___ Upplýsingar veittar
V ^ ísíma 14797
Góð þjónusta er okkar fag!