Víkurfréttir - 25.11.1993, Blaðsíða 13
yfffUHFRÉTTIR
25. NÓVEMBER 1993
13
Sandgeröi:
Heildar■
aflinn
aðeins
81 tonn
Heildaraflinn í Sandgerði í
síðustu viku var aðeins 81 tonn.
Annað eins gæftaleysi hafa nienn
þar á bæ ekki komist í kynni við
í háa herrans tíð. Sveinn Jónsson
landaði 14 tonnum í síðustu viku
og Sænes landaði 12 tonnum, en
það er á trolli.
Dragnótabáturinn Benni Sæm
GK landaði 16.1 tonni úr einni
sjóferð í síðustu viku. en heild-
araflinn í dragnótina í síðustu
viku var 28 tonn. Sigþór var afla-
hæstur stærri línubáta með 5
tonn. en heildarafli þeirra var
11,5 tonn. Vala var aflahæst
netabáta með 3,5 tonn í þremur
róðrum, en heildarnetaaflinn í
Sandgerði í síðustu viku var 7,6
tonn.
• Sægarparnir á Skarfakletti GK:
Á ÞRIDJA TONN AF
VÆNNI ÝSU
• Gunnar Pór Grétarsson inetí tvær vænar ýsur úr aflanuin. I'ær voru
flestar af þessari stærðargráðu. Mvnd: Hilmar Bragi
Gunnar Þór Grétarsson og Al-
bert Einvarðsson gerðu það gott
á línuna úti fyrir Garðskaga á
mánudagsmorguninn. Þá fengu
þeir vel á þriðja tonn af vænni ýsu
á línuna. Aflanum lönduðu þeir í
Keflavík um kaffileitið á mánu-
dag.
Þeir Gunnar og Albert róa á
Skarfakletti GK. Síðustu daga
hafa þeir landað í Keflavík, þar
sem erfitt hefur verið að komast
inn á Sandgerði. Aflann á niánu-
daginn fengu þeir á 24 bala, allt
væna ýsu. Þeir hafa verið fisknir
á Skarfakletti GK síðustu vik-
urnar og oft eru þeir aflahæstir
línubáta yfir vikuna. enda oft sagt
að þeir fiski sern róa.
Það er á fleiri stöðum en úti
fyrir Garðskaga sem ýsan er að
fást, því Jónas Arnason á Gamla
Valda fékk svipaðan afla úti fyrir
Keilisnesi á mánudaginn. Hann
gerði betur, því á einn krókinn
kom patróna af gömlu vélbyssu-
skoti úr flugvél.
Keflavík:
Togarinn Olafur Jónsson
með 174 tonn af síld
Togarinn Ólafur Jónsson
GK úr Sandgerði landaði sam-
tals 174 tonnum af síld í
Njarðvík í síðustu viku úr sinni
fyrstu veiöiferð á síld. Var það
nijög góð síld, sem var geymd
ísuð í körum í lest skipsins, en
síldina veiddi Ólafur Jónsson
GK fyrir austurlandi.
Haförn var aflahæstur drag-
nótabáta í Keflavík í síðustu
viku, með samtals 17.4 tonn.
Stafnes var aflahæst netabáta
með 27 tonn og Þuríður Hall-
dórsdóttir landaði 36,1 tonni,
en hún er á trolli. Þrjátíu og
fimm smábátar lönduðu 23,3
tonnum í síðustu viku í 68
löndunum.
í þessari viku ber það liæst
að Happasæll KE var með 10
tonn í netin á mánudag og Á-
gúst Guðmundsson GK 8.3
tonn.
Smábátamir fengu einnig
ýsuskot á mánudaginn, en lítil
veiði hefur verið í snurvoðina.
AFGRCIÐSLUTÍMI
VERSLANA
í DCSCMBCR
4. desember laugardagur til kl. 16:00
11. desember laugardagur til kl. 18:00
12. desember sunnudagur kl. 13:00-17:00
18. desember laugardagur til kl. 22:00
19. desember sunnudagur kl. 13:00-17:00
21. desember þriöjudagur til kl. 19:00
22. desember miðvikudagur til kl. 22:00
23. desember fimmtudagur til kl. 23:00
24. desember Aöfangadagur kl. 09:00-12:00
27. desember flestar verslanir veröa lokaöar
31. desember Gamlársdagur kl. 09:00-12:00
fi FEB - FRÉT7IR
Gömlu dansarnir fyrir
alla aldurshópa
Starf félagsins er nú kontið í
fullan gang. Næsta verkefni þess
er að mynda hóp innan félagsins
sem setur eldri dansana framar en
flestar aðrar skemmtanir. Stofn-
fundur þessa félags verður á
dansleiknum í Þotunni á föstu-
dagskvöldið, en þá þarf að finna
því nafn. Margar tillögur hafa
borist, t.d. Danssporið. Gamlar
glæður. Ung í anda. Gæðingur.
ðli Skans og Nátthrafnar. Það er
okkar von. að fólk sem er yngra
en við, komi til móts við okkur og
verði með. Dansstjóri verður
Ragnar Jónasson. Tveir dans-
leikir í Þotunni eru í okkar dag-
skrá, en ef vel tekst til á föstu-
dagskvöldið getum við fjölgað
þeim og tekið upp samskipti við
önnur félög sem starfa á þessum
nótum.
Segja má að hauststarf okkar
hafi byrjað með eins dags ferð 26.
ágúst. Þátttakendur voru á annað
hundrað. Farið var um Hvolsvöll.
Fljótshlíð og stansað í Hlíð-
arendakoti. en síðan farið niður
Landeyjar og Landeyjarkirkja
skoðuð. Kór FEB starfar af krafti
en vantar ennþá fleira fólk. eink-
um karlmenn.
BOCCIA er íþrótt sem byrjað
var að æfa í okkar félagi í haust.
Aðsókn hefur verið misjöfn, en
þetta er boltaleikur sem allir geta
iðkað, eins þótt setið sé á stól.
Boccia er mikið spilað í ná-
grannalöndum okkar og víða hér
á landi. Vonandi getum við síðar
keppt í Boccia við önnur félög
eldri borgara sem spila þetta nú
af miklum krafti.
19. okt. vorurn við með ferða-
myndir og dans í Þotunni. en 24.
fóru rúmlega 40 félagsmenn á
skemmtikvöld á Hótel Sögu. I
tilefni af opnun Bókasafns
Keflavíkur í nýju og glæsilegu
húsnæði hafa eldri borgarar Iesið
í nokkur skipti fyrir grunn-
skólabörn í safninu. en 6. nóv.
var farið í Ásbæjarsafn og fleiri
staði í Reykjavík.
14. nóv. var svo Ijóðakvöld
félagins þar sem lesin voru ljóð
höfuðsnillinga okkar, en auk þess
Ijóð eftir Suðurnesjamenn. Þessi
kvöldvaka var mjög vel sótt. sem
auk ljóðalesturs bauð upp á söng
eldri borgara.
Sigfús Kristjánsson
L.
F JOLVARP
- oslitid fjölskyldusjónvarp
Sökum mikillar eftirspurnar
eftir loftnetsuppsetningum
vegna Fjölvarpsins, viljum við benda viðskipta-
vinum á að panta uppsetningar í tíma
ísíma 15991.
i8dB loftnet með Converter kf. 19.800.
24dB loftnet með converter
og innbyggðum radarfilter kr. 28.900.
ATH: Verðin eru án uppsetningar
RAD/O-
KJALLAfí/m
Hafnargötu 39 - Keflavík
Sími: 15991