Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.06.1994, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 15.06.1994, Blaðsíða 2
2 15. JÚNÍ 1994 VÍKI/HFRÉTTIR GARÐAUMÖNNUN ogGARÐAÚÐUN ✓ Guðm. O. Emilssonar Auk allrar almennrar garðvinnu býð ég upp á úðun (varist þó ótímabæra og jafnvel óþarfa úðun), svo og úðun gegn hinum hvimleiða roðamaur. Uppl. í símum 985-30705 og 12640. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA Sendum Sudumesja- mönnum okkai* besiu óskii' um c/leöilecia pjóonáiío. LÍFEYRISSJÓÐUR SUÐURNESJA Hrafna afhjúp- aður á trjárækt ardegi Varnarliðsmenn á Kefla- víkurflugvelli héldu trjáræktar- dag hátíðlegan laugardaginn sl. en auk hefðbundinnar gróð- ursetningar var vígður sérstakur reitur fyrir framan gömlu flug- stöðina. Á reitnum var afhjúpuð stytta af Hrafna Flóka en hún er höggv- in úr marmara af bandaríska listamanninum Mark J. Ebbert og er gjöf frá honum og Varnarliðinu til íslensku þjóðarinnar. Hraunsvegur 2, Njarðvík 145 ferm. einbýlishús ásamt stórum bílskúr. Húsið er mikið endurnýjað m.a. nýtt þak og ný hitaveitulögn og ofnar. Cílæsilegt hús. Skipti á minni fasleign möguleg. 12.500.000.- 0* Hringbraut 95, Keflavík 154 ferm. íbúðarhús á tveimur hæðum ásamt 50 ferm. bílskúr. Séríbúð á hvorri hæð. Góður staður. Laus strax. 9.900.000.- Hólabraut 6, Kctlavík 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í mjög góðu ástandi. 4.500.000.- Hringbraut 136A, Keflavík 101 ferm. 4ra herbergja ibúð á fyrstu hæð með bílskúr. Ibúðin er í góðu ástandi. Skipti á 3ja herbergja íbúð kemur til greina. 7.200.000,- Heiðarbolt 16, Keflavík 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í ntjög góðu ástandi. Hagstæð lán áhvílandi. 4.000.000.- Greniteigur 13, Keflavík 108 ferm. efri hæð með sér- inngangi. Hagstæð lán á- hvílandi. Góðir greiðslu- skilmálar. 6.900.000.- Heiðarholt 12, Keflavík 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í mjög góðu ástandi. Hagstæð lán áhvílandi. 5.900.000,- Heiðarholt 18, Keflavík 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð. Vönduð íbúð. Hagstæð lán áhvílandi. Skipti á stærri íbúð kemur til greina. 5.800.000.- Víkurbraut 29, Grindavík 120 ferm. einbýlishús ásamt bílskúr. Skipti á fasteign í Keflavík eða Njarðvík kemur til greina. Tilboð. Garður: Meiðastaðavegur 7, Garði 4ra herbergja íbúð á annari hæð. Nýleg raf- magns- og hitaveitulögn. 4.200.000.- Hér sjást Charles 'l'. Butler kapteinn, Ebbert, Micbael D. Haskins flota- foringi og Davíð Oddsson við styttuna. Sandgerði: Einar gaf Einar Magnússon, skipstjóri á Ósk KE 5 frá Keflavík gaf Sand- gerðishöfn átta björgunarvesti á börn á dögunum. Sandgerðishöfn hafði nýlega keypt átta björgunarvesti á börn sem stunda það að koma niður á bryggju til að veiða. Einari fannst þetta gott framtak og bætti um bet- ur og gaf átta barnabjörgunarvesti til viðbótar. Krakkarnir í Sandgerði koma alltaf við á hafnarvoginni og fá átta vesti lánað björgunarvesti áður en þeir halda til veiða niður á bryggju. Þeir sem eru staðnir að veiðum án þess að vera í vesti eru umsvifalaust reknir af bryggjunum og eru þar að auki settir í bryggjubann. Reglan um bryggjubannið á þau börn sem eru ekki með björgunarvesti er eitt- hvað sem taka ætti upp á öllum höfnum á Suðurnesjum. Þá er björgunarvestagjöfin gott framtak sem aðrir ættu að taka til fyr- irmyndar. • A föstudaginn sl. var námskeið fvrir grindavíska sjómenn þar sem þeir fengu að kynnast því belsta sem viðkemur björgunarstarfi. Mynd SiP Skóli á floti fyrir sjómenn Slysavarnaskóli sjómanna heimsótti Grindvíkinga í seinustu viku en skólinn er með alla sína aðstöðu í skipinu Sæbjörgu sem var áður varðskipið Þór. „Sæ- björg er skólaskip í eigu Slysa- varnafélagsins og hefur þessi slysavarnaskóli sjómanna verið starfræktur í hart nær 10 ár. Á þessum tíma hafa 9.000 sjómenn fengið þjálfun í öryggismálum. Skólinn er staðsettur í Reykja- víkurhöfn yfir veturinn en á sumrin ferðumst við um allt landið. Þetta er í 4. skiptið sem við höldum nántskeið hér í Grindavík og hér hefur alltaf ver- ið mjög góð þátttaka." segir Hilmar Snorrason skólastjóri. Hilmar segir ennfremur að verið sé að prófa nýja tegund af nám- skeiðum fyrir grunnskólanema í sjómennsku og samhliða því hafi Páll Ægir Ketilsson unnið að bók sem ætlað er að vera kennslubók fyrir verðandi fiskimenn. Flugeldhúsið: Mettar 900 þúsundir Flugeldhúsið á Kefla- víkurflugvelli gerði nýverið samning við kanadíska flug- félagið Canada 3000 um sölu á mat fyrir farþega og áhafnir Boeing 757 flugvéla félagsins sem millilenda á Kefla- víkurflugvelli í sumar. Kanada- mennirnir kaupa um 56.000 máltíðir á þremur mánuðum. í blaði starfsmanna Flugleiða segir að meginástæða þess að Canada 3000 valdi Keflavík sem áningarstað umfram aðra á leið frá Kanada til Evrópu var þjónusta, verð og gæði matarins frá flugeldhúsinu, auk þess sem lendingargjöld, eldsneytisverð og afgreiðslusjöld eru vel sam- keppnisfær við nágrannaflug- velli, segir í Flugleiðafréttum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.