Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.06.1994, Side 8

Víkurfréttir - 15.06.1994, Side 8
8 15. JÚNÍ 1994 WKURFRÉTTIR Mikið eignatjón í stærsta bruna sögunnar í fjölbýlishúsi á íslandi: • Fjórtán á aukavakt • Reykjarlyktin barst víða Reykjarlyktin frá brunanum við Sól- vallagötu og Faxabraul barst víða. Reykinn lagði yfir byggðina í Keflavík og einnig fannst sterk reykjarlykt út í Garði, í um 10 km. fjarlægð frá bruna- stað. Það var mikið að gera hjá Lögreglunni í Kefla- vík í tengslum við brunann í Stóru blokkinni. Þegar útkallið barst voru t'imm á vakt, en vegna brunans voru fjórtán lögregluþjónar kallaðir á aukavakt. Þá var einnig fenginn liðs- auki frá Lögreglunni á Keflavíkurflugvelli, sex menn. ♦ l’að var engu líkara eu slökkviliBsmenn vxru að bcrjast á máti stórluið þegar léttvatnsfroðau úðaðist ijfir allt. ♦ Þessi iiiynd var tekiu á því auguabliki þegar eláuriun braust upp ígegn- um þak hússins. ♦ Slökkviliðsmenn BS berjast við eldinn við eitm stigaganginn. Léttvatn bargóðan árangur. Tilkynning uin eldinn í Stóru blokkinni við Sólvalla- götu og Faxabraut í Keflavík barst kl. 23:05 á fimmtu- dagskvöld. Vegfarendur unt Hringbraut urðu varir við reyk frá húsinu og gerðu lögreglu viðvart. Lögregla og slökkvilið fóru strax á vettvang, enda aðeins nokkra tugi metra frá húsinu. Þegar fyrstu menn höfðu skoðað aðstæður glumdi í talstöð- inni: „Við ráðum ekkert við þetta - sendið allt tiltækt slökkvilið á staðinn“. Það voru um 70-80 slökkviliðsmenn af Suður- nesjum sem börðust við eld- inn. Tuttugu og fimm lög- reglumenn voru við störf á vettvangi eða í stjómstöð og fjölmargir björgunarsveitar- menn, einhverjir tugir, úr Björgunarsveitinni Suðurnes og Björgunarsveitinni Sigur- von aðstoðuðu á brunastað og í næsta nágrenni. Strax var lögð áhersla á að koma öllum íbúunum út úr Garðaúðun Sturlaugs Ólafssonar Úða gegn roðamaur og óþrifum á plöntum. Nýtt: Blanda lífrænum áburði i alla úðun. í áburði þessum hafa greinst u.þ.b. 70 bætiefni sem styrkja gróður og verja hann gegn sjúkdómum. Eyði mosa og iligresi úr grasflötum. Nota eins hættulítil efni og unnt er. Leiðandi þjónusta. Upplýsingar i síma 12794 og 985-37145 Plöntusalan Drangavöllum 3 Fjölbreytt úrval af garðplöntum. Mold, áburður, blómaker, pottaro.fi. Cróðursetjum í ker og potta fyrir einstaklinga og fyrirtæki. kurlum afklippur. Opið virka daga frá kl. 13-22 og um heigarfrá kl. 10-17. Upplýsingar i sima 15248 og 12794. húsinu. Það tókst fljótt og vel. Síðustu íbúamir þurftu að vaða þykkan reyk í stiga- göngunum til að komast út. Ungur drengur var fluttur á sjúkrahús með reykeitrun. Hann fékk að fara heim að lokinni skoðun. Þremur mínútum eftir að slökkvilið Brunavarna Suð- urnesja kom á vettvang varð sprenging í risinu og þakið varð alelda á nokkrum ntín- útum. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja hefur ekki yfir neinum stigabíl að ráða og því var í fyrstu barist við eldinn í gegnum stigaganga fjölbýlishússins. Þegar menn gerðu sér grein fyrir hversu alvarlegt ástandið væri, var strax kallað eftir aðstoð frá slökkviliðinu á Keflavíkur- flugvelli og frá Slökkviliði Sandgerðis. Sú ákvörðun slökkviliðs- manna af Keflavíkurflugvelli að kalla til tvo risavaxna slökkvibíla, eina þá kraft- mestu á landinu, sern búnir eru vatnsbyssum og léttvatni skipti sköpum um að ekki fór verr. Bílarnir dæla vel á annað þúsund lítrum af vatni á mínútu. Þrentur tímum eftir að út- kallið barst höfðu slökkvi- liðsmenn náð tökum á eldin- um, en þá á var allt þakið á blokkinni Sólvallagötumegin ónýtt og bróðurparturinn af þakinu Faxabrautarmegin brunninn eða mikið skemmdur. Ætlunarverkið, að bjarga íbúðunum í húsinu frá eldi tókst.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.