Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.06.1994, Síða 15

Víkurfréttir - 15.06.1994, Síða 15
WKURFRÉTTIR 15. JÚNÍ 1994 15 STELPUR ATHUGIÐ! Hinir bráðmyndar- legu MÆÐRA- SYNIR leika við ÓTTANN fimmtu- daginn 16. júní kl. 20:30 á velli við Heiðarból. ATHUGIÐ: Frjálst sætaval. Hátíðarhöld 17. og 18. júní Þjóðhátíðardagskrá verður í flestum byggðarlögum á Suður- nesjum. Tveggja daga dagskrá hefst í Keflavík þann 17. með skrúð- göngu frá Iþróttahúsinu kl. 08:00. Fánahylling verður kl. 08:25 í Skrúðgarði en morgundagskránni líkur með helgistund kl. 09:05. Síðdegisdagskrá byrjar svo kl. 16:30 einnig í Skrúðgarðinum. Kvöldskemmtun verður loks í Z- unni sem opnar kl. 21:()() og í Þot- unni kl.20:30. 18. júní verða haldnir rokktónleikar á Hafnargöt- unni kl. 19:00. I Njarðvík hefst 17. júní á þjóð- hátíðarmessu í Ytri-Njarðvíkur- kirkju kl. 9:30. Fánahylling verður kl. 10:15 og að lokinni þjóðhá- tíðaræðu bæjarstjóra og ávarpi fjallkonu líkur dagskránni með kórsöng. A laugardag. þann 18. verður skrúðganga kl. 14:00 og endar við Stapann þar sem skemmtidagskránni verður haldið áfram. Kl. 20:00 verður síðan fjöl- skyldudansleikur í Stapa. Sand- gerðingar hefja hátíðina kl. 11:00 með víðavangshlaupi og kl. 14:00 verður fánahylling. Dagskráin mun standa allan daginn með ýmsum leikjum og skemmtiatrið- um en kl. 21:00 verður svo Fjöl- skyldudansleikur. I Garðinum verða hátíðarhöldin 16. júní. Um kvöldið hefst dagskráin með úti- grilli og rekur hvert atriðið annað. Síðasti liðurinn í Garðinum er dansleikur í samkomuhúsinu. Afmæli Elsku Mæja! Þarna ertu ung og falleg. Nú ert þú 30 ára og enn falleg. Til hamingju með daginn. Mnninia pubbi, Venni og Bergur Örn Jæja Sveina. þótt þú liggir í baðinu þarft þú ekki að liggja í bjðrnum þann 16. júní. Til hamingju með 30 árin Hnlldór og Þorgerður Þetta er hún litla systir okkar sem verður 16 ára á sunnudag- inn og óskum við henni til hamingju með daginn. Þín elskulegu stóru svstkini. Grindvíkingar taplausir eftir 4 leiki: Komnir á topp 2. deildar Grindvtkingar heimsóttu KA- menn síðasta fimmtudag og sigruðu 2:1. Þórarinn Olafsson skoraði fyrsta markið af stuttu færi á 11. mín. en Akureyringar jöfnuðu 20 mín. seinna. Leikur- inn róaðist síðan nokkuð í seinni hálfleik en Grindvíkingar komust þó yfir þegar stundar- fjórðungur var eftir af leiknum, þar var að verki fyrirliðinn Ólafur Ingólfsson sem skoraði úr erfiðri stöðu mjög glæsilegt mark. Grindvíkingar eru þar með efstir í 2. deild með 10 stig eftir 4 leiki. Víðismenn taplausir Opna Guerlain: Klsa og Guðfinnu sigruðu Opna Guerlainmótið í golfi var haldið í Leirunni sl. laugar- dag. Keppt var í tveimur flokk- um, forgjöf 21 og mejra og svo forgjöf 20 og undir. Úrslit urðu þessi: Forgj. 21 og mcira: Elsa Eyjólfsdóttir...................71 Sigurbjörg Gunnarsdóttir.............72 Hafdís Gunnlaugsdóttir...............72 Forgjöf 20 og lægra Guðfinna Sigurþórsdóttir..............93 Gerða Halldórsdóttir..................93 Guðbjörg Sigurðardóttir...............89 Fióröa jafntefli ÍBK KeflvÍKtngar og Vestmannaeyingar gerðu jafntefli í leik liðanna í Trópi-deildinni í knattspyrnu í Kellavík sl. fimmtudagskvöld. Hvor- ugt liðið skoraði mark. Mjög erfiðar aðstæður voru á meðan leiknum stóð, rok og rigning. Keflvíkingar hafa nú gert fjögur jafntefli og aðeins sigrað í einum leik en eru þó í 3.-4. sæti með 7 stig. Þeir leika gegn FH annað kvöld í Hafnarfirði og er ljóst að þar getur orðið um erfiða viðureign að ræða, því heimamenn eru í 2. sæti með 10 stig. Víðir heimsótti Dalvíkinga í síðustu viku og áttu heimamenn aldrei möguleika gegn sterkum Víðismönnum, 1-4. Sigurður Valur Arnason var heldur betur á skotskónum. A 25. mínútu fékk Sigurður boltann í miðjum vítateig og skaut viðstöðulaust yfir markmanninn. Sigurður var felldur innan vítateigs á 30. mfn. og var það Hlynur Jóhannsson sem kláraði dæmið með öruggri vítaspyrnu. Heimamenn minnk- uðu muninn skömmu seinna. Þegar 15 mín. voru liðnar af seinni hálfleik gaf Vilberg fall- ega sendingu fyrir markið en Sigurður sendi boltann við- stöðulaust efst í vinstra hornið. Um miðjan seinni hálfleik kom síðasta mark Vt'ðis, Atli sendi boltann inn í vítateig á Sigurð sem tók boltann á bringuna og lyfti honum yftr markmanninn. Reynismenn fengu sinn fyrsta skell gegn BI 0-4 í Sandgerði og urðu þeir einnig að láta BI- mönnum eftir efsta sætið og sitja nú í öðru sæti 3. deildar með 9 stig. Víðir er í 5. sæti með 6 stig. -------------------------► Róbert hlutu báðir 72 punkta en Kristján var með betri árangur á síðustu holunum sem tryggði honum sigurinn. I þriðja sæti varð Grindayíkurlæknirinn, Kristmundur Asmundsson með 71 punkt og fjórði Sigurður Jónsson, GG. með sama punkta- fjölda. Opna Sandgerðismótið Opna Sandgerðismótið í golfi verður nk. sunnudag. Leiknar verða 18 holur og eru glæsileg verðlaun, m.a. flugferð til Akur- eyrar og gisting á hótel KEA. Sandgerðingar standa í stór- ræðum þessa dagana. Sunnu- daginn 26. júní verður nýi golf- völlurinn að Vallarhúsum opn- aður formlega, og skóflustunga að nýjum golfskála tekin. Hjóna og parakeppnin Hjóna- og parakeppnin sem vera álti um síðustu helgi var frestað og verður örugglega á laugardag, 18. júní. Ræst verður útfrákl. 12 til 14. Langbest mót á Jóel í sumar verða mót hverjum fimmtudegi á nýja 9 holu vellin- um á Jóel-svæðinu, sem opnað- ur var í síðustu viku. Allir geta tekið þátt í þessum mótum, jafnt byrjendur sem lengra komnir og það er ekki skilyrði að viðkom- andi sé í klúbbnum. Mótin fara þannig frant að leiknar eru 9 holur og er mótsgjald kr. 200. Spila má eins ntarga hringi og hver vill, en greiða þarf 200 kr. fyrir hvern hring. Þrenn pizzu- verðlaun er gefin af Langbest fyrir þrjú bestu skorin með for- gjöf. ---------------------► ‘) Sparisjóðsmótið í goifi: Hörkubarátta Kristjáns og formannsins Kristján Björgvinsson og Ró- bert Svavarsson háðu harða bar- áttu um sigurinn í Sparisjóðs- mótinu í golfi sem fram fór um síðustu helgi. Leiknar voru 36 holur. fyrri 18 í Grindavík og þær seinni í Leiru. Kristján og Ljósmyndasamkeppni Myndarfólks og Víkurfrétta: Þorsteinn tók bestu myndina Þorsteinn Jónsson, Heiðar- vegi 16 Keflavík sigraði í Ijós- myndamaraþoni Myndarfólks og Víkurfrétta sem fram fór sl. Iaugardag. Mynd hans tekin eft- ir þentanu „hvítt og blátt" var valin besta myndin. (Mynd að ofan.) I 2. sæti varð Eggert Þór Agústsson fyrir bestu heildar- filmuna og í 3. sæti varð Óskar Asgeirsson fyrir frumlegustu myndina, undir verkefnisheitinu „Bein Iína“. A ntyndinni að neðan eru verðlaunahafarnir Oskar t.v., Þorsteinn ásamt þeim Hauki Inga í Myndarfólki og Páli Ketilssyni frá Víkur- fréttum. A myndina vantar Egg- ert Þór sem hlaut 2. sætið. Við segjum nánar frá úrslitum keppninnar og sýnum fleiri myndir úr henni í næsta tölu- blaði. Sögusýning « bókasafninu Sögusýning uni 17. júní í máli og mynduni. Sýningin Keflavík hefur verið opnuð í er á vegum Vatnsness, bæjar- og héraðsbókasafni Byggðasafns Suðurnesja. Keflavíkur við Hafnargötu Sýningin er opin á sania tíma 57. Þar er til sýnis margt seni og bókasafnið og mun standa tengist hátíðarhöldunum í yfir í tvær vikur.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.