Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.12.1995, Page 2

Víkurfréttir - 07.12.1995, Page 2
2 7. DESEMBER 1995 vIiíiirfréttir Teppahreinsun Hreingerningar í íbúhum GLUGGAHREINSUN riíHl £ /íj i g Alliliða lircwgcrninyar! Móttaka i w»Jwu 1 Sim 421 2604 Atvinna Óskum að ráða fólk til starfa á leikskóla bæjarins frá 1. janúar 1996, um er að ræða 50 og 100% störf. Nánari upplýsingar veitir leikskólafulltrúi í síma 421-6700 milli kl. 13:00 og 14:00 alla virka daga. Umsóknarfrestur rennur út 15. desember. Brynja Vermundsdóttir leikskólafulltrúi í Reykjanesbæ. Skólamálaskrifstafa Skólamálaskrifstofa Suð- urnesja var ofarlega á baugi á bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar sl. þriðju- dag en þá var skýrsla Helga Jónassonar, sem í eru drög að tillögum að skólamála- skrifstofu, til umfjöllunar. Til stendur að ráða skóla- málastjóra nú eftir áramót- in en skrifstofan, sem gert er ráð fyrir að verði staðsett í Reykjanesbæ, mun einnig sinna nágrannasveitarfélög- unum með ýmsum hætti. Tilgangur skrifstofunnar er að hafa yfirumsjón með öllu grunnskólastarfi bæjarins en verkefnafiutningur ríkis- ins til bæja í skólamálum, sem áætlaður er þann 1. ágúst 1996, verður vitanlega fyrst að koma til áður en hægt verður að setja hana á stofn. Það má þó segja að þessi skýrsla sé fyrsti prófsteinninn á verkefnið en skólanefnd bæjarins hafði einmitt gagn- rýnt bæjaryfirvöld harðlega á fundi sínum um miðjan nóv- ember, fyrir að hafa gengið fram hjá henni í allri undir- búningsvinnu. I umræðum um þessi mál taldi Jóhann Geirdal að bæta þyrfti inn í skýrsluna að skólamálaskrifstofan heyrði undir bæjarapparatið og þar með skólanefnd en nauðsyn- legt yrði að hafa samræmda skólastefnu sem tæki m.a. til skiplags og þjálfunar kennara. Anna Margrét Guðmunds- dóttir vakti athygli á að þetta væri einn veigamesti tilflutn- ingur frá ríki til bæja og fannst verkefnið mjög spenn- andi, en tryggja þyrfti að sveitarfélagið fengi jrað tjár- magn sem þyrfti til þessara mála. Hún ítrekaði að það þyrfti að fá hæfa manneskju til forstöðu sem hefði bæði þekkingu og reynslu til starf- ans og þyrfti háskólaprófið að fylgja með. Kjartan Már Kjartansson, varafulltrúi Framsóknar- manna, sem sat fund að þessu sinni í fjarveru Drífu Sigfús- dóttur, bað um að allri vinnu við þetta verkefni yrði hraðað sem mest þvf einungis væru rúmir átta mánuðir til stefnu og þeir liðu fljótt. Að vísu mátti heyra það á Jónínu Sanders að með ráðningu skólamálastjórans myndu mál skipast fjótt og vel enda færi þá öll vinna í gang um leið. Einnig var fjallað um fleira er viðkom skólamálum, s.s. fíkniefna-, tóbaks- og áfengis- varnir, sem flestir töldu að þyrfti að sinna meira og gekk Sólveig Þórðardóttir þar fremst í flokki meðal jafn- ingja. Hringbraut 78, Keflavík 63 ferm. n.h. ásamt 44 ferm. bílskúr. Mjög eiguleg íbúð fyrir litla fjöl- skyldu. 4.500.000,- Mávabraut 7, Keflavík,(0303) 3ja herbergja ibúð á 3. hæð. Laus strax. Mjög góðir greiðsluskilmálar. hagstætt söluverð Suðurvellir 3, Keflavík 142 ferm. einbýlishús ásamt 49 ferm. bílskúr. Húsið er í góðu ástandi. Hag- stæðir greiðsluskilmálar. Losnar fljót- lega. Skipti á minni fasteign koma til greina. 10.900.000.- Faxabraut 25, Keflavík 4ra herbergja íbúð á 2. hæð. íbúðin er í góðu ástandi, m.a. ný eldhúsinnrétt- ing. Tilboð Hringbraut 86, Keflavík 77 ferm. n.h. ásamt 41 ferm. bílskúr. íbúðin er í góðu ástandi. Laus strax. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Tilboð Hringbraut 50, Keflavík 3ja herbergja 86 ferm. íbúð með sér- inngangi. Hagstæð lán áhvílandi. Losnar fljótlega. 4.700.000,- Apótek í gömlu Sölvabúð - fjögnr apótek í Reykjanesbæ á nýju ári? Annað tveggja apóteka sem opna munu í Keflavík í mars á næsta ári verður að Hringbraut 99 (gömlu Sölvabúð). Það er Þorvaldur Arnason, lyfjafræðingur sem starfað hef- ur í Apóteki Keflavíkur síðustu fimmtán ár sem hefur ákveðið að hefja rekstur lyfjaverslunar. Hann hefur hætt störfum í Apó- teki Keflavíkur og sagði í sam- tali við blaðið að undirbúnings- vinna fyrir opnun apóteksins væri í fullum gangi. Aðspurður um það hvort hann teldi grund- völl fyrir þremur lyfjaverslun- um á svæðinu utan Grindavík- ur, sagðist hann telja svo vera. Markaðurinn ætti vel að þola það. Þorvaldur sagðist stefna á opnun apóteksins 15. mars 1996 eða þegar ný lyfjalög taka gildi. Eins og við greindum frá í Víkurfréttum í síðustu viku hefur Höskuldur Höskuldsson, lyfjafræðingur einnig ákveðið að hefja rekstur apóteks í Keflavík. Það verður staðsett að Hafnargötu 88 eða þar sem sem Afengisverslunin var stað- sett til margra ára. Þá hefur blaðið öruggar heimildir fyrir því að þriðja nýja apótekið muni einnig líta dagsins ljós og hefur Samkaup verið nefnt sem hugsanlegur staður fyrir það. Það stefnir því í fjögur apótek í Reykjanesbæ á nýju ári. Með kók í skóhælnum Tæplega þrítugur íslendingur var handtekinn af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi með 27 grömm af kókaíni. Fannst efnið falið í skóhælum mannsins en hann var að koma frá Amster- dam. Maðurinn hefur aldrei áður komið við sögu hjá lögreglu. Málið er nú til rannsóknar hjá fíkniefnadeild rannsóknarlögreglu ríkisins. Hciðarból 10, Kcflavík 3ja herbergja íbúð á I. hæð. Hagstæð lán áhvílandi. Góðir greiðsluskilmál- ar. Skipti á 2ja herbergja íbúð koma til greina. Losnar fljótlega. 4.900.000.- Faxabraut 5, Kcflavík 62 ferm. 2ja herbergja íbúð á 1. hæð. Góður staður. Losnar fljótlega. 3.900.000,- Sólheimar 7, sandgerði 85 ferm. einbýlishús ásamt 42 ferm. bílskúr. (3 svefnh., stofa og eldhús.) 4.800.000,- Hnausþykkt og seðjandi jólablað í næstu viku. Fullt af spennandi efni. Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.