Víkurfréttir - 07.12.1995, Page 5
ViílflfHFRÉTTIR
7. DESEMBER 1995
5
Lagður í gólfið
þegar hann bað um launin
-ótrúlegar raunir 18 ára pilts þegar hann hætti störfum í íslenskum ígulkerum íNjarðvík.
-Mikið um samskiptavandamál milli eigenda og starfsmanna í fyrirtækinu og höfum fengið margar
kvartanir vegna þess segir Guðmundur Finnson hjá Verkalýðsfélagi Keflavíkur og nágrennis
s
Atján ára piltur lenti í
stympingum við forráða-
menn Islenskra ígulkera í
Njarðvík þegar hann kom til
að vitja launa sinna eftir að
hafa hætt störfum hjá fyrir-
tækinu.
Forsaga málsins er sú að
pilturinn hóf störf í fyrirtækinu
30. okt. sl. og hætti 10. nóvent-
ber án þess að láta forráða-
menn fyrirtækisins vita. Hann
hóf störf í Byko-Rantma hf.
13. nóvember. Þegar pilturinn
fór að sækja laun þau sem
hann átti inn eftir tveggja
vikna vinnu í ígulkeravinnsl-
unni, fimmtudaginn 23. nóv. á
skrifstofu fyrirtækisins, lenti
hann í ótrúlegum hremming-
um. Tveir forrráðamenn ígul-
kera áttu sarntal við drenginn
sem snerist m.a. um það hvort
það hafi verið rétt hjá honum
að hætta án þess að tilkynna
það og viðurkenndi pilturinn
að það hefði verið rangt. Að
sögn piltsins lásu þeir yfir hon-
um og hótuðu að hringja á nýja
vinnustað hans, og tilkynna
hverskonar „pappír'* hann
væri. Þeir héldu yfirlestrinum
áfram og segir pilturinn að þá
hafi farið að þykkna í sér, þar
sem hann hafi einungis ætíað
að ná í launin sín. Brást annar
forráðamanna fyrirtækisins
þannig við að hann rak piltinn
út af skrifstofunni þar sem
samtalið átti sér stað. Pilturinn
neitaði að fara án iaunanna. Þá
þreif annar mannanna með
báðum höndum í brjóstið á
piltinum. Þegar hann reyndi að
verjast veitti maðurinn honum
högg í kviðinn og bakið. Af
urðu stympingar í smástund að
sögn piltsins. Náði maðurinn
taki á handlegg piltsins og
sneri honum óþyrmilega aftur
fyrir bak og lagði hann síðan í
gólfið, lá þar ofan á honum og
barði hann. „Ég spurði hanti þá
hvort hann væri klikkaður.
Hann svaraði á móti með því
að hóta því að slíta af mér höf-
uðið", sagði pilturinn.
Eftir þetta stóðu þeir á fætur.
Pilturinn hótaði manninum
barsmíðum og kæru. Kom þá
fljótlega hinn forráðamaður
fyrirtækisins og fór að ræða
við piltinn. Hinn hvarf inn á
skrifstofu sína. Fljótlega kom
lögreglan á staðinn og fór pilt-
urinn með henni út og heim.
Eftir að hafa sagt föður sfn-
um atburðarásina fór hann með
honum á skrifstofu ígulkera.
Urðu snarpar orðahnippingar
milli föðursins og annars for-
ráðamanna fyrirtækisins sem
neitaði að afhenda piltinum
kaupið. Kallaði hann á lögregl-
una öðru sinni og urðu feðg-
arnir að yfirgefa staðinn.
Faðirinn, Sigurjón Hreiðars-
son, sagði í samtali við blaðið
að hann hafi tilkynnt verka-
lýðsfélaginu um atburðinn sem
jafnframt var beðið að taka að
sér innheimtu launanna. Eftir
átökin var pilturinn með
eymsli í öxl og kvið en sjáan-
legir áverkar voru ekki. Faðir
hans segir að ekki hafi verið
tekin ákvörðun um hvort þeir
kæri fyrirtækið. Það greiddi
laun piltsins daginn eftir atvik-
ið.
„Við fórum á staðinn og
ræddum við fonáðamenn fyrir-
tækisins. Svona samskipti eiga
ekki að geta átt sér stað í dag.
Þeir leysa ekki málin með
handalögmálum", sagði Guð-
mundur Finnsson, skrifstofu-
stjóri Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur og nágrenn-
is. Guðmundur sagði að frá því
fyrirtækið hóf rekstur hafi ver-
ið mikið um samskiptavanda-
mál milli forráðamanna Is-
lenskra ígulkera og margra
starfsmanna sem hafa komið til
vinnu þar. Fyrrnefnt atvik væri
ekki það fyrsta sem hafi komið
inn á borð verkalýðsfélagsins.
Hefur fyrirtækinu sem stofn-
að var fyrir tveimur árum hald-
ist illa á starfsfólki á meðan
fiskvinnsluhús við hlið þess
sem greiðir sambærileg laun
hefur haldið sama fólki f mörg
ár.
Blaðið náði ekki sambandi
við forráðamenn íslenskra íg-
ulkera vegna þessa máls.
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
HAFNAR6ÖTU15 - SÍMI 421 AA40
Kjólar frá 2.990.-
Dragtir frá 9.980.-
Jakkaföt frá 8.990.-
Herrabuxur frá 3.990.-
Skyrtur frá 1.990.-
Peysur frá 1.990.-
Úlpur frá 3.990.-