Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.12.1995, Síða 6

Víkurfréttir - 07.12.1995, Síða 6
7. DESEMBER 1995 VÍKURFRÉTTm Útgefandi: Víkurfréttir hf. Afgreiösla, ritstjórn og augiýsingar: Vallargötu 15, símar 421-4717, 421-5717. Box 125, 230 Keflavík, myndsími 421-2777, bílas. 853-3717. Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, heimas. 421-3707, GSM 893-3717. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heimas. 422-7064, bílas. 854-2917. Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir, heimas. 421-1256. Víkurfréttum er dreift ókeypis um öll Suðurnes. Fréttaþjónusta fyrir Stöð 2 og Bylgjuna. Aðiili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Útlit og auglýsingahönnun: Víkurfréttir hf. Umbrot, filmuvinna og prentun: Stapaprent hf. Njarðvík. SBK með skoðanakönnun Sérleyfisbifreiðir Keflavík- ur dreifa ineð Víkurfrétt- um í dag skoðanakönnun um áætlunarferðir fyrirtækisins. „Við viljum fá að heyra frá fólki um ferðaáætlun fyrir- tækisins milli Keflavíkur og Reykjavíkur“, sagði Steindór Sigurðsson, framkvæmda- stjóri SBK í samtali við blað- ið. Þeir sem taka þatt í könnun- inni eru beðnir að merkja við eina ferð á dag frá 6.30 á morgnana til miðnættis, þ.e. þann tíma sem viðkomandi myndi vilja að væri áætlunar- tími SBK. Steindór sagði að þetta væri að sjálfsögðu gert í þeim eina tilgangi að bæta þjónustu fyrirtækisins. Aðspurður um aukna ferða- tíðni sagði Steindór að ákveðið hefði verið að bæta við kvöld- ferð í tvo mánuði á næsta ári til reynslu, í febrúar og mars. Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verió að viðhafa allsherjargreiðslu í Verkalýðs- og sjómannafé- lagi Keflavíkur og nágrennis, um kjör aðalstjórnar og stjórnar sjómannadeildar ásamt trúnaöarmannaráði, stjórn sjúkra og orlofsheimilasjóðs. Tillögum skal skila á skrifstofu félagsins í síðasta lagi fyrir klukkan 13:00 föstu- daginn 15. desember næstkomandi. Hverri tillögu skal fylgja stuðningsyfirlýsing tilskilins félagafjölda. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. Kjörstjórn Hugmyndin er hafa ferðirnar kl. 22.30 frá Keflavík og 23.30 frá Reykjavík. „Ég vona bara að fólki taki þátt í skoðanakönnun okkar svo við getum haft ferðaáætlun okkar þannig að hún nýtist við- skiptavinum okkar sem best“, sagði Steindór. Þeir sem skila inn skoðana- könnunar-blaðinu á Umferða- miðstöðina í Keflavík geta unnið 10, 15 eða 20 ferða-kort frá SBK en dregið verður úr innsendum blöðum. Þrfr heppn- ir þátttakendur fá vinning. Þess má einnig geta að skoðana- könnunar-blaðinu er dreift í bílum SBK og fáanlegt á Um- ferðarmiðstöðinni. Tónlistarskólinn í Keflavík: Þrennir jólatónleikar á fjórum dögum Jólatónleikar Tónlistar- skólans í Keflavík verða í Iþróttahúsi Keflavíkur nk. sunnudag 10. des. kl. 15. Hljómsveitir og kórar flytja fjölbreytta efnisskrá. A þriðjudag 12. des. verða tónleikar eldri nemenda skól- ans í Keflavíkurkirkju og daginn eftir, miðvikudaginn 13. des. verða sérstakir tón- leikar söngdeildar í Ytri- Njarðvíkurkirkju. A efnisskrá verða einsöngur, samsöngur og kór. Aðgangur að öllum tón- leikunum er ókeypis.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.