Víkurfréttir - 07.12.1995, Qupperneq 17
WffURFRÉTTIR
7. DESEMBER 1995
15
Ekkert kvartað
síðan eggjabakka-
dýnurnar komu í rúmin
Ekkert hefur verið kvart-
að undan rúmunum á
Sjúkrahúsi Suðurnesja síð-
an eggjabakkadýnur frá
Innbúi hf. í Keflavík voru
settar í rúmin. Þetta stað-
festi Olafur Hákansson
læknir á fundi með blaða-
mönnum í síðustu viku. Til-
efnið var formleg afliending
á eggjabakkadýnum í öll
rúni á fæðingadeild Sjúkra-
húss Suðurnesja.
Olafur sagði að það væri
oft erfitt fyrir konur að koma
úr rúmum sem þær eru vanar
og leggjast í rúm á sjúkra-
húsi. Ekki hafi verið kvartað
undan rúmunum síðan eggja-
bakkadýnurnar komu og
sagði Ólafur það vera góða
dóma.
Gunnlaugur Hilmarsson
hjá Innbúi afhenti dýnurnar
en hann hefur selt umræddar
eggjabakkadýnur á fleiri
sjúkrastofnanir á landinu.
Innbú flytur á næstunni í nýtt
húsnæði við Smiðjuvelli í
Keflavík.
Vcrid mcð í jólaleil
Víkurfrétta 03 Rafhú:
ukin fjfóumta
i ^tpóteki Uefl&oíku*
Mánudaginn 18. desember 1995 byrj-
ar Apótek Keflavíkur aö senda lyf beint
heim til fólks í Sandgerði, Garöi, Keflavík og
Njarövík því aö kostnaðarlausu.
Þjónustan er miöuö viö ellilífeyrisþega, ör-
yrkja og aöra sem ekki eiga heimangengt.
Lyfseölar vegna lyfja sem senda á í Sand-
gerði eöa Garð verða aö hafa borist Apóteki
Keflavíkur fyrir kl. 16:00 og í Keflavík og
Njarövík fyrir kl. 17.
Lokað
Verslunin veröur lokuö laugardaginn 9.
desember frá kl. 12:00 vegna jarðarfarar.
Opiö sunnudag 10. desember.
Raflagnarvinnustofa
Sigurðar Ingvarssonar,
Garði
- Sjúkrahúsið fékk fyrsta miðann
Astkœr móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halldóra Jóna Valdimarsdóttir
frá Bjargi, Garði
andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði, nuínu-
daginn 4. desember. Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju,
laugardaginn 9. desember kl. 14:00.
Guðbjörn Ingvarsson
Hafsteinn Ingvarsson
Agnes Ingvarsdóttir, Khoberger
Sigurður Ingvarsson
Kristjana bigvarsdóttir
Matthildur Ingvarsdóttir
IngvarJón Oskarsson
Einar Jón Pálsson
Sigríður Lúðvíksdóttir
Hjördís Traustadóttir
Krístín Guðmundsdóltir
Jóhannes Agústsson
Magnús Magnússon
Karen Pétursdóttir
Hildur Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnubörn
Fyrsti vinningur í jóla-
hujipdrætti Kionsklúbbs-
ins Oðins í Keflavík er
Volkswagen POLO árgerð
1996 að andvirði 965.000
krónur. 2.-5. vinningur eru
14“ sjónvörp að andvirði
samtals 100.000 krónur. Út-
gefnir miðar í happdrættinu
eru 1000 og dregið verður á
Þorláksmessu.
Fyrsti miðinn í happdrættinu
var afhentur Sjúkrahúsi Suður-
nesja í síðustu viku. Miðinn
sem ber númerið 1000 hefur
sömu vinningsmöguleika og
hinir 999 miðarnir í happdrætt-
inu. Anna Margrét Guðmunds-
dóttir, stjórnarformaður SHS,
veitti miðanum móttöku.
Lionsmenn í Óðni afhentu
fleira en happdrættismiða á
Sjúkrahúsinu í síðustu viku því
í sömu ferð var formlega af-
hentur hægindastóll sem stað-
settur er á fæðingadeild sjúkra-
hússins. Stóllinn er ætlaður
fyrir mæður sem gefa brjóst og
fyrir þreytta nýbakaða feður.
♦ Asgcir Jónsson afliendir
Onnu Margréti Guðmundsdótt-
ur fyrsta liappdrættismiðann í
jólahappdrxtti Óðins.
♦ Trausti Hanncsson formaður líkuarnefndar Óðins afliendir Önnu
Margréti Guðmundsdóttur gjafabréfið fyrir hægindastólnum.
VF/myndir: hbb
Lionsklúbburinn Óðinn:
P0L01AÐALVINNING
♦ Gunnlaugur Hilmarsson aflienti eggjabakkadýnur íöll rúm á
fxðingadeild Sjúkrahúss Suðumesja. Hér þakkar stjómarfor-
maður sjúkrahússins, Anna Margrét Guðmundsdóttir, fyrir
gjöfina. VF/mynd: Hilmar Bragi
Apótek Keflavíkur
Sími 421-3200