Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.12.1995, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 07.12.1995, Blaðsíða 24
22 7. DESEMBER 1995 VÍKURFKÉTTm ♦ Birgir Giiðnasou, Harpa eiginkona lians og fjölski/hlan öll saiitnn kontiit á góðri stundii í afmælisveislunni. VF-inynd/pket. Tvö þrítugsafmæli Tvö stórfyrirtæki í Keflavík og Grindavfk héldu upp á þrítugsafmæli sín um sfðustu lielgi, annars vegar BG Bílakringlan i' Keflavík og hins vegar Útgerðafélagið Vfsir hf. í Grindavfk. Var mikið fjör á báðunt stöðum en BG-teitið var haldið í snókersalnum í Grófinni en Vísis-veislan var í Veitingahúsinu við Bláa lónið í Grindavík. Voru meðfylgjandi myndir teknar við þessi tækifæri en við birtum fleiri myndir úr þessum afmælisveislum íjólablaðinu í næstu viku. ♦ Hluti Vísis-fjölskyld- unnar. Páll H. Pálsson og ciginkona hans Margrét Siglwatsdóttir og sonur þeirra Pctiir og eigiiikona haits, Ágiísta Óskarsdóttir. Aðalfundur GS: Fjölga þarf félögum Tæplega finim þúsund manns léku golf í júní, júlí og ágúst síðastliðið suniar á Hólmsvelli í Leiru. Þetta koni frant á aðalfundi Golf- klúbbs Suðurnesja 26. nóv. sl. Þrátt fyrir jiað fækkaði félög- um unt 10% á árinu. Róbert Svavarsson var end- urkjörinn formaður klúbbsins og sagði hann það vera eitt af mörgum verkefnum GS að vinna að fjölgun félaga í GS. Óneitanlega hefði óhagstætt veðurfar haft neikvæð áhrif á meðlimafjölgun á nýliðnu sumri en engu að síður þyrfti að huga enn frekar að ýmsu málurn til að laða að nýtt fólk í klúbbinn. Á fundinum voru samþykkt- ar breytingar á tveimur braut- um Hólmsvallar í Leiru, sjö- undu og þeirri áttundu sam- kvæmi teikningum Hannesar Þorsteinssonar, golfvallararki- tekts. Hannes var beðinn, eftir mikla umræðu á aðalfundi 1994 að koma með úttekt á þessum tveimur holum og hug- myndir um framtíðargerð þeirra. Hann lagði til að þeim yrði breytt á nýjan leik, þ.e. að 7. holan yrði par 4 og sú átt- unda par 3. En Hannes gerði meira því hann lagði fram teikningu að framtíðarskipulagi Hólmsvallar. Þar kom hann fram með breytingar á nokkr- um holum á vellinum. Þessi skipulagsteikning hans verður kynnt betur á félagsfundi á næsta ári þar sem farið verður í saumana á henni áður en hún verður lögð fram til samþykkt- ar. í bréft frá Hannesi sem lesið var á fundinum kom fram að hann hafi rætt við tjölda kylf- inga, bæði heimamenn og aðra um hin ýmsu atriði vallarins áður en hann lauk við gerð þessarar teikningar. Hann hrós- aði Hólmsvelli í hástert og telur hann einn besta völl landsins en taldi upp nokkur atriði sem hann vill breyta. Þá voru einnig kynntar fleiri framtíðartillögur, s.s. bygging vélahúss sem haf- ist verður handa við á næsta ári, bygging nýs æfingasvæðis sem verður með yfirbyggðum skýlum og loks nokkrum skemmtilegum breytingum á golfskálnum. Rekstur klúbbsins er í ágætu horfi. Þó var minni rekstraraf- gangur á árinu en áætlað var, sem kemur fram í fækkun fé- laga og minni vallargjöldum. Félagar í GS eru nú 270. Veðr- ið spilar inn í báða þessa þætti, sem eins og fyrr segir var ekki hagstætt í sumar fyrir golfleik. I máli Einars Guðbergs fram- kvæmdastjóra kom fram að fimmtíu manns hefðu leikið golf að meðaltali hvern dag í júní, júlí og ágúst í sumar eða samtals 4870 manns. Nýja stjórn GS skipa: Róbert Svavarsson forntaður, aðrir í stjórn eru Jóna Gunnarsdóttir, Elías Kristjánsson, Þórður Karlsson, Sæmundur Hinriks- son, Sigurður Lúðvíksson og Sturlaugur Ólafsson. Stjórn Heimis, félags ungra sjálfstæðismann: Fagnar ákvörðun baqar- yflrvalda Sljórn Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanes- bæ, fagnar þeirri ákvörðun bæjaryfirvalda að auka ekki álögur á bæjarbúa á árinu 1996. Jafnframt skorar stjórn fé- lagsins á bæjarráð og bæjar- stjórn að gæta þess við gerð fjárhagsáætlunar að skuldir bæjarfélagsins aukist ekki, heldur þvert á móti lækki á komandi ári, enda eru lántökur dagsins í dag, reikningur kom- andi kynslóðar, segir í ályktun félagins frá föstudeginum 3. sept. sl. ♦ Á aðalfitndi Golfklúbbs Siiðurnesja á dögunum voru samþykktar breytingar á sjöundu og áttundu braut Hólmsvallar í Leiru. Að ofan má sjá framtiðarskipulag golfvallarins t' Leiru. VF/mynd: pket. Sjúkrahús Suðurnesja: Islenskt lækna og hjúkrunarfólk á hersjúkrahúsið? Heilbrigðsráðherra hef- ur stofnað nefnd til að eiga viðræður við forráða- menn hersjúkrahússins á Keflavíkurflugvelli unt að Sjúkrahús Suðurnesja þjónusti hersjúkrahúsið. Hersjúkrahúsið kaupir nú þegar þjónustu af Sjúkrahúsi Suðurnesja sem það getur ekki veitt sjálft. Hrafnkell Óskarsson, yfirlæknir SHS er einn Suðurnesjamanna í fimm manna nefnd sem ráð- herra hefur ákveðið en ekki enn skipað. Hann sagði að hugmyndin sem ræða eigi sé um það hvort ekki sé hægt að veita hersjúkrahúsinu alla þjónsutu sem þeir þurfa á að halda á því verði sem þeir greiða sfnu fólki í dag. Ingibjörg Pálmadóttir Iteil- brigðisráðherra hefur gefið það út að náist samningar við hersjúkrahúsið geti það kom- ið sem nýr flötur í samninga um byggingu D-álmu við Sjúkrahús Suðurnesja. Steindór á sex sléttum í síðustu viku var farið með nokkra bæjarfulltrúa í rútuferð um tilvonandi leiðarkerfi al- menningsvanga bæjarins og var með í för starfshópur um al- menningsvagnasamgöngur. Óhætt er að segja að þar hafi sjálfur framkvæmdastjórinn hrist ærlega upp í liðinu því menn og konur gengu víst náföl út úr þeirri reisu og var engu líkara en menn væru enn hálf- skelkaðir á bæjarstjórnarfund- inum í fyrrakvöld þegar þetta mál bar á gónta í glettnum tón. Þótti mönnum framkvæmda- stjórinn aka heldur greitt enda skilaði hann liðinu til baka á sex mínútum sléttum. Svaraði fra m sóknarm aðu ri n n fó t fi m i því til. að ástæðan fyrir þessum föla' lit farþeganna hefði verið sú að hann hafði látið þvotta- manninn hella úr heilum þrif- brúsa í rútuna, áður en haldið var í förina og uppgufunin hafi valdið því að aílir Itafi orðið svo fölir á eftir. Tóku fundar- menn lítt undir þessa afsökun og óskuðu eftir að hann héldi öllum hjólum niðri á næstunni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.