Víkurfréttir - 07.12.1995, Síða 25
WfíURFRÉTTIR
7. DESEMBER 1995
23
Tveir tapleikir
hjá Keflvíkingum
að var ákaflega sárt að
tapa þessum leikjum og
sérstaklega þar sem misstum
niður álitlega stöðu í þeim
báðum, sagði Jón Kr. Gísla-
son þjálfari og leikmaður
Keflvíkinga í samtali við Vík-
urfréttir uni tvo tapleiki
Keflvíkinga í síðustu viku.
Keflvíkingar töpuðu fyrst
mjög óvænt fyrir Breiða-
bliksmönnum í Kópavogi
80:79 fyrir viku og í kjölfarið
kom svo tapleikur gegn
Haukum í Keflavík á sunnu-
dagskvöldið sem endaði
108:102 fyrir Hauka eftir
framlengdan leik. í báðum
þessum leikjum höfðu Kefl-
víkingar vænlega töðu í hálf-
leik en í þeim síðari fór flest
úrskeiðis og Ijóst er að Kefla-
víkurliðið þarf að taka sér
tak ef þeir ætla að verða með
í baráttunni um íslands-
meistaratitilinn.
Keflvíkingar léku vel í fyrri
hálfleik gegn Haukum og skor-
uðu þá 60 stig gegn 47 stigum
Hauka sem segir sína sögu. þar
af voru níu 3ja stiga körfur. En
í þeim síðari fór smám saman
að halla undan og á lokasek-
úndunum jöfnuðu Haukarnir
með mikilli baráttu. í fram-
lengingunni gerðu Keflvíkingar
sig seka um of mörg mistök
sem kostuðu þá sigurinn í
leiknum og var þetta fyrsta tap
þeirra á heimavelli í vetur.
„Við eigum þrjá erfiða leiki
eftir fram til áramóta þar sem
við verðum að ná hagsæðum
úrslitum," sagði Jón Kr. Gísla-
son. Næsti leikur okkar er gegn
ÍR-ingum í Reykjavík og það
verður áreiðanlega hörðu
viðureign þvf þeir virðast vera í
svipuðum styrkleikaflokki og
við. Síðast töpuðum við fyrir
þeim eftir framlengingu en við
ætlum okkur að gera betur
núna. þar á eftir leikum við
gegn Njarðvíkingum heima og
síðasi leikurinn verður gegn
Tindastóli á útivelli og eins og
sést þá eru þetta allt úrslitaleik- i
ir um sæti,“ sagði Jón Kr. enn-
fremur.
Stig Keflvfkinga gegn Hauk-
um: Guðjón Skúlason 23,
Lenear Burns 19, Falur Harðar-
son 16, Sigurður Ingimundar-
son 13, Albert Óskarsson 13,
Gunnar Einarsson 11, Jón Kr.
Gfslason 7.
I Kópavogi var leikur Kefl-
víkinga svipaður og gegn
Haukum þeir höfðu 17 stig yfir
í hálfleik 52:35, en í þeim síð-
ari skoruðu þeir aðeins 27 stig!
Ótrúlegt hjá liði sem hefur yfír
að ráða jafn snjöllum leik-
mönnum og Keflavík.
Stigin: Falur Harðarson 23,
Guðjón Skúlason 21, Lenear
Burns 17, Sigurður Ingimund-
arson 16, Albert Óskarsson 2.
Kvennakarfa:
Kaninn kominn
Bandaríski leikmaðurinn
sem von var á til kvenna-
liðs Keflavíkur er komin.
Hún heitir Veronica Cook og
hefur leikið með Kentucky
háskólanum sl. fjögur ár.
Cook er 22 ára og mun byrja
leik með Keflavíkurliðinu
uni leið og öll tilskilin leyfi
fást.
Njarðvíkurstúlkur léku við
Tindastól á heimavelli sínum
sl. laugardag. Leikurinn var
mjög kaflaskiptur og í fyrri
hálfleik leit út fyrir öruggan
sigur gestanna. Njarðvíkur-
stelpur fóru á kostum í seinni
hálfleik og skoruðu 56 stig á
meðan Tindastólsstelpur skor-
uðu bara 16 og urðu lokatölur
84-64 fyrir Njarðvík. Suzette
Sargent var stigahæst hjá
Njarðvík með 25 stig.
Grindavík bar sigurorð af
Val, 41-58, að Hlíðarenda.
Leikurinn var jafn lengi vel, en
Sígur hjá
Reyni
Reynismenn gera það gott í
körfunni þessa dagana og um
síðustu helgi unnu þeir frækinn
sigur á Leikni, 71-83. Með þess-
um sigri hafa Reynismenn svo
sannarlega blandað sér í barált-
una um úrslitasæti í 1. deildinni.
Reynismenn eru nú í fjórða sæti
deildarinnar, hafa sigrað í fjórum
leikjum, en tapað ftmm.
Grindavíkurstúlkur keyrðu
fram úr í síðari hálfleik og
tryggðu sér þar með sigurinn.
Penny Peppas var stigahæst í
liði UMFG með 22 stig.
Staðan Suðumesjaliðanna í
deildinni hefur lítið breyst, en
rétt er að taka fram að stórleik-
ur Breiðabliks og Keflavíkur
átti að fara fram í gærkvöldi
eftir að blaðið var farið f prent-
un.
Nk. þriðjudag, 12.desem-
ber verður leikið í 8 liða úr-
slitum bikarkeppninnar. Um
stórleik er að ræða þar sem
mætast lið Grindavíkur og
Keflavíkur. Leikurinn fer
fram í íþróttahúsinu í
Grindavík og hefst kl. 20.
Rétt er að hvetja alla stuðn-
ingsmenn þessara liða til að
fjölmenna því leikurinn
verður örugglega æsispenn-
andi!
Keflvíkingar
ppúðastin
Kellvíkingar hlutu Drago styttuna
svokölluðu fyrir að vera prúðasta lið-
ið í l.deild í knattspymu sl. sumar.
Styttan var afhent á 50. ársþingi KSÍ
um síðustu helgi og hlutu Keflvík-
ingar 32 stig í kjörinu.
Þess má einnig geta að dregið var
um töfluröð í Islandsmótinu og mun
fyrsti leikur Keflvíkinga á næstu
leiktíð verða heima, gegn KR.
Njarðvíkingar
aftur á sigurbraut
Eftir tvo tapleiki í röð hjá
Njarðvíkingum sem voru
báðir gegn Haukum réttu
þeir út kútnum með tveim
sigurleikjum f vikunni og eru
þeir því enn aðeins tveim
stigum á eftir Hafnarfjarðar-
liðinu. Fyrst léku þeir gegn
IR-ingum í Ljónagryfjunni
og unnu þar sannfærandi sig-
ur 93:80 og síðan sigruðu
þeir Blika 102:79 í Kópavogi
á sunnudagskvöldið.
Leikurinn gegn IR-ingum
var afar þyðingamikill þar sem
bæði liðin voru á svipuðum
slóðum í riðlinum. Fyrri hálf-
leikur var jafn og munurinn að-
eins eitt stig í hálfeik 45:44, en
í þeim síðari snéri Teitur Ör-
lygsson blaðinu við fyrir
Njarðvíkinga með frábærum
leik hann setti þá 21 stig og þar
af voru 5 3ja stiga körfur. það
munar um minna. „Þetta var
ágæru leikur af okkar hálfu og
sigurinn kærkominn eftir ófar-
irnar gegn Haukum,“ sagði
Hrannar Hólm þjálfari Njarð-
víkinga eftir leikinn. „Njarð-
víkingar geta leikið vel það
sýndi sig að þessu sinni, en við
afar slakir í vörninni í síðari
hálfleik og vorum þá eins og
sagt er á hælunum," sagði John
Rhodes þjálfari og leikmaður
ÍR.
Stig Njarðvíkinga: Teitur
Örlygsson 28, Rondey Robin-
son 20, Páll Kristinsson 10,
Gunnar Örlygsson 8, Rúnar
Arnason 8, Friðrik Ragnarsson
7, Jóhannes Kristbjörnsson 7,
Sverrir þór Sverrisson 3, Krist-
inn Einarsson 2.
I Kópavogi gerðu Njarðvík-
ingar nánast út um leikinn í
fyrri hálfleik með afar kröftug-
um leik og náðu þá upp 20
stiga forskoti 56:36. í síðari
hálfleik fór leikurinn úr bönd-
unum en lokatölur urðu
102:79.
Stig Njarðvíkinga: Rondey
Robinson 24, Páll Kristinsson
17, Kristinn Einarsson 16, Jó-
hannes Kristbjörnsson 12,
Gunnar Örlygsson 8, Jón Júlíus
Arnason, Sverrir þór Sverris-
son 6, Teitur Örlygsson 5,
Friðrik Ragnarsson 4, Örvar
Kristjánsson 2.
Fpekap
slappt í
vestupbænum
Grindvíkingar báru sigutorð
af KR í frekar tfðindalitlum
leik á Seltjarnarnesi sl. sunnu-
dagskvöld. KR leiddi leikinn
framan af, en Grindvíkingar
jöfnuðu rétt fyrir leikhlé. Stað-
an í leikhléi var jöfn 37-37.
Liðin skiptust á um forystuna í
byrjun síðari hálfleiks, svo
náðu KR-ingar forskoti en mis-
stu taktinn og Grindvíkingar
sigldu framúr. Lokatölur leiks-
ins urðu 74-67. Margir reynd-
ustu leikmenn UMFG sýndu
ekki sitt rétta andlit og segja
má að ungu mennirnir hafi
bjargað deginum. Helgi Guð-
finnsson og Páll Axel Vi 1 -
bergsson áttu góðan leik og var
Helgi stigahæstur Grindvík-
inga með 20 stig, en Guð-
mundur Bragason kom næstur
með 17.
UMFG
lagði Val
Grindvíkingar sigruðu einn-
ig í viðureign sinni við Vals-
menn á Hlíðarenda á fimmtu-
dag í síðustu viku. Lokatölur
urðu 89-110 fyrir Bikarmeist-
arana. Leikurinn varð að hálf-
gerðu einvígi útlendinganna
sem endaði með þvf að nýi
Valsmaðurinn Bayless skoraði
39 stig en Hermann Myers
skoraði 30. Einvígi liðanna fór
hins vegar á annan veg því
Grindvíkingar tryggðu sér sig-
ur á Iokakafla leiksins. Stiga-
hæstir voru Myers með 30 stig
eins og fyrr segir, Guðmundur
Braga var drjúgur að venju og
skoraði 26 stig, Hjörtur Harðar
skoraði 14 og Helgi Jónas 13.
Grindvíkingar eru með örugga
forystu í B-riðli og virðist fátt
ætla koma í veg fyrir að þeir
verði á toppi hans f vor.
♦ Guðmundur Brngason skor-
nði 43 stig fyrir UMFG í síð-
ustu tveimur sigurleikjum
Grindavíkurliðsins sem er
langefst í B-riðli DHL-deildar-
innar í körfu.
PfíNTIÐ SNITTCIR
TÍMVMW’'
\\\\\\l jolw
MATARLYST
■mjm
XELS
SIMI 421 4797