Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.02.1996, Side 6

Víkurfréttir - 22.02.1996, Side 6
MUNDll Titrar allt í Sand- gerði og stefnir alltíklofið....!! Útgefandi: V fkurfréttir hf. Kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar421-4717 og 421-5717. Box 125, Keflavík. Fax 421-2777. Bflas. 853-3717. Ristjóri og ábm.: Páll Ketilsson, heims. 421-3707 ogGSM 893-3717. Frcttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heims. 422-7064 ogbflas. 854-2917. Auglýsingadeild: Sign'ður Gunnarsdóttir og Inga Brynja Magnúsdóttir. Víkurfréttuni er dreift ókeypis um öll Suðurnes. Fréttaþjónusta fyrir Stöð 2 og Bylgjuna. Aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Stafræn útgáfa: http://www. spomet.is/vikur fr/index.html Netfang/rafpóstur: vikurfr@spomet.is Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt, nema heimildar sé getið. Útlit og auglýsingahönnun: Víkurfréttir hf. Umbrot, tilmuvinna og prentun: Stapaprent hf. s. 421-4388. F erðalög og ílugvöllurinn Þá er hin árlega samkeppni ferðaskrifstof- anna hafin. Á heilsíðuauglýsingum í dag- blöðum keppast skrifstofurnar við að bjóða landsmönnum sumarfrí á lægra verði en keppinautamir. Alls konar verð- dæmi og útreikninga má ftnna í auglýsing- unum og þykjast allir hafa vinninginn. En verðið segir ekki allt. Það sem skiptir tnestu ntáli er hvað fólk fær í staðinn. Þjónustustig ferðaskrifstofanna er mjög mismunandi. Sumir bjóða lágt verð með fullri þjónustu bæði hér heima og erlendis, íslenska fararstjóra og glæsilegar gistingar, á meðan aðrir bjóða svipað verð með lítilli sem engri þjónustu, hvorki hér heima né erlendis. Þegar vísitölufjölskyldan stendur frammi fyrir því að eyða háum íjárhæðum í sumarfríið er mikilvægt að fólk kynni sér vel hvað er í boði, hvað er innifalið og hvað fæst f staðinn svo fríið fari ekki til spillis vegna vonbrigða þegar á áfangastað er komið. Tilraunir til þess að gera sum íslensk flug- félög tortryggilegri en önnur eru mjög varasamar fyrir ferðaþjónustuna í heild. Flughræðsla hrjáir margan landann og eiga sumir ferðalangar virkilega bágt dög- um og jafnvel vikum saman áður en hald- ið er af stað svo ekki sé talað um flugferð- ina sjálfa. / gamni og alvöru KJARTAN MÁR KJARTANSSON Eftirlit með flugvélum er rnjög strangt á Islandi og ekki nokkur ástæða til þess að ætla að flugfloti eins flugfélags sé hættu- legri eða lakari en annars. Eitt af þvt' sem getur gerst þegar slík umræða fer í gang er að flughræðslan nái svo sterk- um tökum á þeim sem veikir eru fyrir að þeir kjósi að fara hvergi, hvorki með þessari skrifstofunni né hinni. Þá tapa allir. Suðurnesjamenn eru ferðaglaðir mjög. Leiða má getum að því að nálægðin við flugvöllinn ráði þar miklu um. Fjölmargir hafa beina og óbeina atvinnu af starfsemi tengdri fluginu fyrir utan þá sem starfa fyrir herinn. Nú liggur fyrir að gera þurfi endurbætur á Reykjavíkurflugvelli fyrir nokkra milljarða króna svo hann geti áfram þjónustað innanlandsflugið og hann uppfyllt ströngustu öryggiskröfur sem gerðar em. Þá er ekki reiknað með slysa- hættunni sem fylgir því að hafa flugvöll- inn í hjarta höfuðborgarinnar. Eg held að til mikils væri að vinna fyrir alla landsmenn ef innanlandsflugið yrði flutt til Keflavíkur og þeir fjármunir sem ann- ars færu í að gera við Reykjavtkurflugvöll yrðu settir í að lagfæra Reykjanesbrautina. Það þykir ekkert til- tökumála í nágranna- löndunum þótt aka þurfi í 30-40 mínútur frá höfuðborginni út á flugvöll. Það tekur þennan tíma að aka frá Heathrow til London, frá Arlandaflugvelli til Stokk- hólms, frá Kastmp til Kaupmannahafnar, frá Schiphol til Amsterdam o.s.frv. Með því að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur myndi skapast mörg ný at- vinnutækfæri fyrir okkur Suðurnesja- menn. Ég skora á þingmenn okkar að halda áfram þessari baráttu því ég veit að sumir þeirra hafa þegar hafið hana. Fengu 15 af 30 verölaunum íslandsmóti unglinga í keilu 1996 lauk nú um helgina í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. Unglingarnir af Suðurnesjum stóðu sig einstaklega vel og komu heim með 15 verðlaun af 30 mögulegum sem þykir stór- kostlegur árangur. Unglingamir sem kepp- tu eru úr tveimur félögum af Suðumesjum, Keflavík og KFS. Urslit urðu annars þessi: 1. fl. kvenna: 1. Sigríður Rut Hilmarsdóttir......KR 2. fl. kvenna: 1. Alda Haiðardóttir.............KITi 2. Vilhelmína Amardóttir...........KFS 3. Jóna K. Þórisdóttir.............KFR 3. fl. kvenna: 1. Dagný E. Þórisdóttir...........KFR 2. Edda L. Lámsdóttir..............KGB 4. fl. kvenna: 1. Sigurborg Haraldsd........Keflavík 2. Ingibjörg E. Þórisd........Keflavík 3. Erla L. Gunnarsd...........Keflavík 5. fl. kvenna: 1. Ásgerður B. Bjamad........Keflavík 1. fl. karla 1. Már G. Amarson.................KFS 2. Bjarki M. Ámason................KFS 3. Sigurður B. Bjamas.........Keflavík 2. fl. karla: 1. Gunnar E. Annelsson.............KFS 2. Steinþór Jóhannss..........Keflavík 3. Hjörvar I. Haraldsson...........KFR 3. fl. karla: 1. Orri F. Jóhannsson...............KR 2. Ámi H. Gunnarsson................ÍR 3. Magnús Magnússon................KFR 4. fl. karla: 1. Andri Þ. Halldórsson............KFR 2. Atli Þ. Annelsson...............KFS 3. Guðlaugur F. Agnarsson..........KFS 5. fl. karla: 1. Ámi Þ. Finnsson.................KFR 2. Hafþór Harðarson................KFR Opinn fl. stúlkur: 1. Vilhelmína O. Amaidóttir........KFS 2. Sign'ður R. Hilmarsdóttir........KR 3. Alda Harðardóttir...............KFR Opinn fl. piltar: 1. Sigurður B. Bjamas. Keflavík 2. Gunnar E. Annelsson.............KFS 3. Bjarki M. Ámason................KFS Pizza 67 tviheilan: Sigurvin og Om bestir Sigurvin Hreinsson og Öm Högnason sigmðu í tvíkeilu Pizza 67 sem fram fór í Keilubæ um þar síðustu helgi. Sigurvin (608) og Öm (617) fengu 1225 stig. í 2. sæti urðu þau Ólafur Kristjánsson (606) og Edda Bergmannsdóttir (546) með samtals 1152 stig og þær Auður Sigurðardóttir (510) og Heiðdís Búadóttir (607) í þriðja sæti með 1117 stig. ♦ Verðlaunahafar í Pizza '67 tvíkeilunni Tvíkeila K-sports: Bjarnveig og Haukur sigruðu Bjarnveig Björnsdóttir (598) og Haukur Hauksson (572) sigmðu í K-sports tvjkeilunni urn sl. helgi með samtals 1170 stig. I 2. sæti urðu þau Jón Pálmi Sigurðarson (634) og Sig- urður Lúðvíksson (501) með 1135 stig. Þriðju urðu Ólafía Sigurbergsdóttir (544) og Ómar Ámason (575) með 1119 stig. 6 V íkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.