Víkurfréttir - 22.02.1996, Side 16
Það er búið að vera mikið líf á Strikinu undanfarnar helg-
ar og Keflavíkurnætur hafa svo sannarlega slegið í gegn.
Ljóst er að haldnar verða aukasýningar. Um síðustu helgi
var María Baldursdóttir gestasöngkona og um næstu
helgi mun Rut Reginalds mæta til leiks en hún hefur verið
í „fæðingaorlofi" frá Keflavíkurnóttum. Meðfylgjandi
myndir eru frá frumsýningarkvöldinu. VF/myndir: Hilmar
Bragi
EXILE
SHOW
Exile-hópurinn af Suður-
nesjum mætti með enn
eina sjóðheitu sýninguna
á Strikið sl. föstudags-
kvöld. Hápunktur sýning-
arinnar var þegar eini
karlmaðurinn í hópnum
hóf að fækka fötum við
mikinn fögnuð stúlkn-
anna í salnum. Undirfötin
voru hins vegar ekki karl-
mannleg. VF/myndir:
Hilmar Bragi
Verð að syngja
eitthvað á
hverjum degi
segir Sigríður Aðalsteinsdóttir, söngnemandi í Vínarborg
Ifjölskrúðugri flóru
menningarlífsins í
Vínarborg má finna
nokkra íslenska tón-
listarnemendur. Fyrir
ekki margt löngu síðan birt-
um við viðtal hér í blaðinu
við Bjarna Thor Kristins-
son sem stundar söngnám
ytra. I sömu erindagjörðum
er Sigríður Aðalstcinsdóttir,
ung kona úr Keflavík. Sig-
ríður söng í Þeytingi,
skemmtiþætti á Ríkissjón-
varpinu sem tekinn var upp
í Reykjanesbæ, og vakti
verðskuldaða athygli. Sig-
ríður er í sambúð með
Gunnari Valdimarssyni
húsasmíðameistara og á 3
börn. Tvö þeirra, stúlkurn-
ar Helga og Guðný eru með
móður sinni ytra en hjá
Gunnari hér heima er son-
urinn Cristian Bjarki. Móð-
ir Sigríðar, Björk Friðriks-
dóttir, er einnig út í Vín með
Sigríði.
„Christian þarf á sérfræði-
þjónustu að halda vegna fölt-
unar sinnar og hana fáum við
ekki jafngóða ytra og hér
heinta. Þess vegna er þessu
nú svona háttað" sagði Sigríð-
ur þegar blm. spurði hana
hvernig stæði á því að fjöl-
skyldan væri ekki öll í Aust-
urríki.
En hver er hún þessi kona ?
„Eg er fædd og uppalin í
Reykjavík og að hluta til hjá
bróður mínu Reyni Aðal-
steinssyni hestamanni í Borg-
arfirði og konu hans Jónínu
Hlíðar. Sumaiið 1986 flutti ég
til Austurríkis, bjó og starfaði
þar um tíma á hestabúgarði
hjá bróður mínum. Höskuldi
Aðalsteinssyni. Hann hefur
starfað þar um árabil og kepp-
ir m.a. fyrir Austurríki í hesta-
íþróttum. 1988 fluttist ég til
Keflavíkur og bjó þá til að
bytja með hjá móður minni á
Sóltúninu en við Gunnar hóf-
um sambúð í ársbyrjun 1991.
Þá um haustið fæddist svo
Helga dóttir okkar en Guðný
fæddist 1993. Ég Iauk stúd-
entspróf frá FS í desember
1991 og fannst mjög gaman í
Fjölbrautaskólanum. Þar var
mjög gott kennaralið og ég á
mjög góðar minningar þaðan.
Ég er ættuð að vestan en
langamma mín, Guðný
Sveinsdóttir, bjó hér í Kefla-
vík hjá dóttur sinni og ömmu-
systur minni Bergþóru Magn-
úsdóttur á Hafnargötunni, auk
þess sem ég átti hér aðra
ömmusytur Svövu Magnús-
dóttur. Þessar hefðarkonur
heimsótti ég oft setn barn
þegar ég bjó í Reykjavík og
því má segja að Keflavík hafi
alls ekki verið mér framandi
þegar ég fluttist hingað ásamt
syni mfnum Christian Bjarka
frá Austurríki".
Hvenær fórstu svo að læra
söng ?
„Þegar ég kom heim frá Aust-
urríki 1988 vissi ég alveg
♦ Sigríður ásamt Huldu Björk Garðarsdóttur en þær
sungu saman í kórnum í La Traviata sem íslenska Óper-
an setti upp í febrúar 1995
16
V íkurfréttir