Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.02.1996, Síða 17

Víkurfréttir - 22.02.1996, Síða 17
hvað ég vildi. Söngnámið hóf ég strax um haustið hjá Eli'sa- betu F. Eiríksdóttur í Söng- skólanum í Reykjavík og lauk burtfaraiprófí þaðan s.l. vor undir handleiðslu Þuríðar Pálsdóttur. Reyndar er ég að ljúka seinni hluta prófsins, sem eru einsöngstónleikar, í kvöld (fnnmtudaginn 18. jan- úar innsk. blm). Er ekki erfitt að vera við nám í útlöndum en skilja hluta fjölskyldunnar eftir heima? „Auðvitað er það mjög erfitt. Eg verð einnig vör við að fólki finnst þetta skrýtið, sér- staklega af því að ég er kona. Það er langt þangað til að konur geta í rauninni leyft sér að gera allt jafnt á við karla. Ef ég væri karl og konan sæti eftir heima með bömin horfði málið örðu vísi við. En ég er svo heppin að eiga yndisleg- an eiginmann sem er alveg einstakur auk þess sem mamma og foreldrar Gunn- ars, Jóhanna Sæmundsdóttir og Valdimar Gunnarsson hafa reynst okkur ómetanleg hjálp". Hvemig gengur námið í Vín? „Mjög vel. Eg er í söngtfm- um hjá frábæmm söngkenn- ara, Sebastian Vittucci, en sæki alls konar önnur fög í Tónlistarskóla Vínarborgar. Þar er ég í ópemdeildinni og mun syngja hlutverk Niku- lausar í óperunni Ævintýri Hoffmanns f apríl. Eru margir góðir söngnem- endur í skólanum ? .Já og alls staðar úr heimin- um, frá Kóreu, Japan, Þýska- landi og víðar. Annars kom mér á óvart hvað ég stóð í rauninni vel í samanburði við hina nemendurna þegar ég kom út, sem sagði ntér að ég hef fengið mjög góða mennt- un hér heima. „ Hvaðan kemur söngáhuginn? „Frá föður mínu Aðalsteini Höskuldssyni, sem nú er lát- inn. Hann var mikill söng- maður af Guðs náð og hafði yndislega rödd. Hann fór í einn söngtíma um ævina og fannst ekki mikið til koma, fussaði og sveiaði. Hann þurfti enga kennslu. Það er mikið af slíkum náttúru- söngvurum á Islandi og má fullyrða að einn slíkur leynist í hverri sveit. Sænskur vinur minn sem er söngkennari fullyrðir að nonænar raddir séu svo bjartar og sérstakar að í rauninni séu þær ein- stakar. Við höfum þetta í blóðinu ef svo má segja. Og framtíðaráformin ? „Eg set nú ekki stefnuna á toppinn í þeim skilningi. Eg hef alltaf verið mjög jarð- bundin og lít á þessa vera mfna úti sem nauðsynlegan tíma til þess að safna reynslu og kunnáttu áður en ég kem heim aftur. Eg vona að ég fái tækifæri til þess að syngja hér heima og starfa í eðlilegu umhverfi þar sem tónlistin er viðurkennd sem fullgilt fag. Kannski mun ég snúa mér að kennslu en ég útiloka ekki störf erlendis ef þau bjóðast. Eg kemst ekki í gegnum dag- inn án þess að syngja. Eg held að fólk verði að hafa mikla og góða reynslu svo það geti miðlað öðrum af ein- hveiju gagni. Eg veit nú samt ekki hvernig þetta fer. Mig langar að fara meira út í ljóða- og oratorfunám en hvort þetta fyrirkomulag á fjölskyldulífinu gengur upp á eftir að koma í ljós. Hugsan- lega mun ég stunda námið með því að búa hér heima en sækja námskeið erlendis og fara þá nokkmm sinnum út á ári. Framtíðin verður að leiða það í ljós “ sagði Sigríður að lokum og kvaddi blm. enda burtfaraiprófstónleikamir eft- ir nokkrar klukkustundir og að ýmsu að hyggja. Hleðslur fá nýtt hlutverk Gamlar steinhleðslur við Hafnargötuna sem fyrir nokkru lentu undir mold og torfi fá nýtt hlutverk. Nú er unnið að því að grafa þær upp og síðan verða þær notaðar í gamla bænum í Keflavík. Mikið hagræði er í þvf að grafa hleðslurnar upp í stað þess að höggva til nýtt gijót. V íkurfréttir 17

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.