Víkurfréttir - 02.05.1996, Qupperneq 3
♦ Frá nafna-mótmælum fyrir framan bæjarskrifstofurnar i
fyrra.
Einharéttur Steinþórs Jónssonar á nafninu Reykjanesbœr:
Getur ekki bannað
okkur að neta nafnið
-segir Ellert Eiríksson bœjarstjóri
„Það er mitt mat að þetta
nýja sveitafélag sem varð til
við sameiningu Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafna heiti
og eigi nafnið Reykjanes-
bær“, sagði Ellert Eiríksson
bæjarstjóri í samtali við
blaðið sl. þriðjudag um
einkarétt Steinþórs Jóns-
sonar á nafninu Reykjanes-
bær. Steinþór segir viðbrögð
fólks við þessu sérkennilega
nýja „nafnamáU“ hafa verið
mjög góð.
Ellert ítrekaði að málið væri
til umfjöllunar en hafi ekki
verið samþykkt. Framhaldið
muni ráðast á næstu tveimur
mánuðum sem Einkaleyfa-
stofan gefur til athugasemda á
einkaréttinum.
„Þetta hefur í raun ekki neina
aðra þýðingu. Auðvitað geta
ákveðnir aðilar sótt um einka-
leyfi á hinu og þessu og ætti
Einkaleyfastofan að sjá um að
það sé athugað hvort nöfn eru
þegar f notkun eins og þetta
bæjarnafn", sagði Ellert og
bætti því við að nafnið hafi
birst í B. deild Stjómartíðenda
10. október 1995 og að kosn-
ingar um nafnið hafi farið
fram 8. apríl 1995. Bæjar-
stjórnin samþykkti síðan í
maíbyrjun 1995 að óska eftir
staðfestingu á nafninu við Fé-
lagsmálaráðuneytið. „Stein-
þór sækir um nafnið 22. sept-
ember á síðasta ári og auglýs-
ing hans birtist síðan seinna
eða nú í apríl 1996“, sagði
Ellert.
Steinþór Jónsson hótelstjóri á
Hótel Keflavík segir marga
hafa hringt í sig út af þessu
máli og hafi viðbrögð fólks
veriðjákvæð.
“Það hefur verið miskilningur
í gangi og vil ég af því tilefni
ítreka það að ég hef einkarétt
á nafninu Reykjanesbær. Ef
það gengur eftir geta ekki aðr-
ir notað það á sama tíma.“
Steinþór sagði Einkaleyfastof-
una hafa sagt að tveir aðilar
gætu ekki notað sama nafn.
Það gæti orðið mglingslegt.
Hann segist ekki hafa heyrt
frá bæjarstjóm Reykjanesbæj-
ar ennþá og að málið yrði
bara að hafa sinn farveg en ít-
rekaði að hann væri aðeins að
fylgja eftir sannfæringu sinni.
„Reykjanesbær er gott nafn
en það getur aldrei yfirtekið
Keflavík sem er þekktasta
nafn okkar Islendinga" sagði
hann ennfremur.
Ellert sagði vera ákveðið sam-
komulag í sveitastjórnarlög-
um um nafngiftina og væri
hún ákveðin á grundvelli
þeirra laga. „Ég sé ekkert at-
hugavert við það að Hótel
Keflavík noti nafnið við
ferðaskrifstofurekstur en það
em engar forsendur fyrir því
að þeir geti bannað okkur að
nota það. Það væri þá ekki
nema að bæjarfélagið færi út í
svipaðan rekstur og hótelið.
Ég vil þó taka það skýrt fram
að ég hef ekki skoðað málið
út frá lagalegum hliðum og
hef í raun ekki fengið neinar
upplýsingar urn það“, sagði
Ellert.
Félagsmálaráðuneytið hefur
gert athugasemd við ummæli
Steinþórs í Víkurfréttum í
síðustu viku varðandi einka-
réttinn á nafninu Reykjanes-
bær og Steinþór sagði það rétt
að ráðuneytið hefði í raun
ekkert með málið að gera en
það hafi staðfest að hann sótti
um nafnið á undan sem þýddi
að hann hefði lögin sín megin
„Það em lögin sem gilda skýrt
og skorinort" sagði Steinþór.
Ellert sagði málið snúa að Fé-
lagsmálaráðuneytinu þar sem
það hafi staðfest umsókn
þeirra á sfnum tíma. „Við
munum síðan að sjálfsögðu
senda Einkaleyfastofunni
upplýsingar um málið" sagði
bæjarstjórinn að lokum.
Lambahamborgara-
hryggurfráKjötsel
597
KRONUR KILOID
Grillsneiðar
frá Kjötsel
540
KRONUR KILOID
Hrásalat frá
Gæðasalati, 215 gr.
75
KRONUR
Hrásalat frá
Gæðasalati, 360 gr.
99
KRONUR
Ommupizza
400 gr.
298
KRONUR
Ross9"pizza
149
KRONUR
Vínber,
blá eða græn
348
KRONUR KILOID
Kiwi
149
KRONUR KILOID
Ferskarperur
89
KRONUR KILOID
- ■
KYNNING Á FÖSTflDAGWsö|unnl
Kvnnum osta fra OsjaG°® atvælum
paSt„Tkexfrá Götaborgs-
OPIÐ
LAUGARDAGA KL. 10-16
SUNNUDAGA KL. 12-18
ihMsamkmip
V íkurfréttir
3