Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.09.1996, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 19.09.1996, Qupperneq 2
Ekki á leiö í samstaní með minni' hlutanum Að sögn Drífu Sig- fúsdóttur forseta bæjar- stjórnar eru sögur af væntanlegu samstarfi hennar og minni- hlutaflokkanna stórlega ýktai'. Þetta tók hún fram á fundi Bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sl. þriðjudag. „Ekkert er til í þessum orðrómi og á hann sér ekki stað í raun- veruleikanum. Hvorki formlegar né óformlegar viðræður eru í gangi og kannast ég ekki við að flokkarnir hafi verið að hittast á fundum“, sagði Drffa og var öðrum bæjarfulltrúum skemmt og gamanmál flugu ekki síst vegna baksíðufréttar DV um málið sem birtist sama dag. ATVINNA Yfirvélstjóra vantar á m/b Þorstein Gíslason GK 2, véíastærð 625 hestöfl. Upplýsingar í síma 426 8325 eða 852 1078 Halldór Hreingerningarfyrirtæki óskar eftir ábyrgum starfskrafti í fullt starf sem fyrst. Viðkomandi verður að geta starfað sjálfstætt og hafa góða framkomu ásamt því að vera vel skipulagður. Stundvísi erskilyrði. Um er að ræða góð laun fyrir réttan aðila sem leggur sig fram. Umsóknir leggist inn á skrifstofu Víkurfrétta fyrir 27. september. G L U G G aTr#E IN S U N f Stórhveli, um fimmtán metra löng Sandreyður synti inn í höfnina í Sandgerði um klukkan hálf fimm á þriðjudag. Hvalurinn sem synti í gegn- um innsiglinguna meðfram björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein sem var að koma úr hringferð um landið fór fyrst suður fyrir ísverksmiðju en tók þaðan „strauið" yfir að norður- garðinum. framhjá bátaröð en strandaði síðan rétt hjá garðinum að vestanverðu. Þar reyndi skepnan að losa sig í um tvær klukkustundir en færðist einungis nær grjótgarðinum, svo nálægt að mannfólkið gat nánast snert hana. Þar var henni hjálpað örlítið því einn heimamanna ýtti henni með góðri stöng og hjálpaði það henni meðal annars til að snúa sér. Tveimur klukkus- tundum síðar á flóðinu los- naði síðan hvalurinn. Hann komst á haf út stuttu síðar með hjálp björgunarsveitar- rnanna frá Sigui-von á bjötg- unarskipinu Hannesi Þ. Hafstein. Raunum hvalsins var ekki lokið þó svo hann væri kominn út úr höfninni því í gærmorgun kom liann aftur að hafnargjaftinum en synti síðan í strand á eyrinni framan við hafnarkjaftinn og bar þar beinin. Trillu- karlar hafa slegið eign sinni á dýrið og Sandreyðurinn verður því örugglega á borðum þegar kemur fram á þorrann. Sandreyður í Sandgeröisheimsokn Fasteimasalan HAFNARGÖTU 27 - KEFLAVÍK C3 SÍMAR421 1420 OG 4214288 Heiðarvcgur 14, Kcflavík Eldra einbýlishús, hæð, kjallari og ris. Húsið er mikið endurný- jað og í mjög góðu ástandi. Laust strax. 7.200.00« Eyjavellir 7, Kellavík 116 ferm. einbýlishús ásamt 22 ferm. bíiskúr. Húsið er í góðu ástandi. Skipti koma til greina m.a. á 2ja hæða húsi með tveimur íbúðum. 8.600.000 Hjallavegur 1, Njarðvík 3ja herb. íbúð á 3ju hæð í góðu ástandi. Skipti á fasteign á Reykjavíkursvæðinu kemur til greina. 4.700.000 Þverholt 18, Keflavík 135 ferm. einb. hús ásamt 36 ferm. bílskúr. Húsið er í góðu ástandi. Eftirsóttur staður. Ýmsir góðir greiðslumögu- leikar koma til greina. 11.500.000 Faxabraut 8, Keflavík 127 ferm. raðhús ásamt 28 ferm. bílskúr. Húsið er í góðu ástandi. Tvær íbúðir eru í hús- inu á sitt hvorri hæð með sérin- ngangi. Geta selst saman eða sitt í hvoru lagi. Efri hæð laus strax. Tilboð. Mávabraut 9b, Keflavík 3ja herb. íbúð á 1. hæð með sérinngangi. Hagstæð Húsbréfalán áhvflandi. 4.900.000 Miðtún 5, Keflavík 4ra herb. n.h. ásamt 32 ferm. bílskúr. Skipti á sérhæð, raðhúsi eða einbýlishúsí eru möguleg. 5.500.000 Kirkjuvegur 10, Keflavík 3ja herb. íbúð á 1. hæð (nýleg íbúð) í góðu ástandi. Losnar fljótlega. Lækkað verð. 7.500.000 Fríholt 2-10 Garði 104 ferm. raðhús ásamt 37 ferm. bílskúr. Húsunum er ski- lað fullfrágengnum að utan, en fokheld að innan. Hagstæð Húsbréfalán áhvíl.(4,7 millj.) Tilbúin til afhendingar. Útborgun aðeins kr. 100.000 Eftirstöðvar lánaðar. Lækkað verð. 6.000.000 Ath. Skoðið myndaglugga okkar, þar eru sýnisliorn afýmsum fasteignum sem eru á söluskrá hjá okkur. Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.