Víkurfréttir - 19.09.1996, Síða 6
FRETTIR
Útgefandi:
Vikurfróttir ehf. kt. 710183-0319
Afgreidsla, ritstjórn og auglýsingar:
Vallargötu 15, Keflavik,
simar 421 4717 og 421 5717 fax 421 12777
• Ritstjóri og ábyrgdarmadur:
Páll Ketilsson, heimas: 421 3707 og GSM 893 3717 Bill: 853 3717
• Fróttastjóri:
Hilmar Bragi Bárdarson, heimas: 422 7064 Bíll: 854 2917
• Auglýsingadoild:
Inga Brynja Magnúsdóttir
• Blaðamadur:
Dagný Gísladóttir, heimas: 421 1404
• Afgreidsla:
Stefanía Jónsdóttir og Aldis Jónsdóttir
• Vikurfróttum er droift ókoypis um öll Sudurnes.
• Fróttaþjónusta fyrir Stöð 2 og Bylgjuna a Sudurnosjum.
• Fróttaþjónusta fyrir Dag-Tímann á Sudurnesjum.
Eftirprentun, hljódritun, notkun Ijósmynda og annad er óheimilt, nema
heimildar sé getid.
• Útlit, auglýsingahönnun, litgroining og umbrot:
Vikurfréttir ehf.
• Filmuvinna og prentun:
Stapaprent ehf., Grófin 13c Keflavík, sími 421 4388
Stafræn útgáfa Víkurfrétta: http://www.ok.is/vikurfr
Netfang/rafpóstur: vikurfr@ok.is
Leiðarinn
Barátta íferðaþjónustu
Sumarið er nú senn á enda og er ekki hægt að segja annað en að veð-
urguðirnir hafi verið okkur hér á suð-vesturhomi landsins hliðhollir,
reyndar allt þetta ár. Mörg bæjarfélög, stór og smá hafa gerðu sig áber-
andi í fjölmiðlum með einhvers konar húllumhæi. Það gerðu þau með
því að setja upp og auglýsa margs konar hátíðir, sem ýmist stóðu yfir í
eina eða fleiri helgar eða hreinlega í allt sumar. Boðið var upp á
skemmtanir og menningarafþreyingu sem gestir og bæjarbúar gátu sótt.
Ljóst er að bæjarfélög leggja orðið áherslu á að vera í umræðunni og
áberandi til að lokka til sín sem flesta sumarleyfisfara enda hefur það
sýnt sig að ferðamenn, og þá frekar íslenskir skilja eftir sig talsvert fé
þegar þeir koma í heimsókn.
Ekki er hægt að segja að Suðurnesjamenn hafi farið mikinn í þessum
málum. Reykjanesbær, eitt af fimm stærstu bæjarfélögum landsins gæti
til að mynda gert miklum mun betur í þessum málum enda ætti ekki að
vera vandkvæðum bundið að setja upp og fylgja eftir einhvers konar
sumarvaka með tilheyrandi aðdráttarafli. Bæjarfélagið komst þó í fram-
línuna þegar Byigjan og Stöð 2 koinu í heimsókn og voru með útsend-
ingar héðan. Fjölskyldudagar í Reykjanesbæ voru haldnh' á sama tíma
og tókust mjög vel. Þá má ekki heldur gleyma ágætri tilraun Grindvík-
inga um hvítasunnuna með „Sjóaranum síkáta".
Það kostar peninga ef menn vilja ná frekari landvinningum í ferðaþjón-
ustu. Þó svo auðvelt sé að gagnrýna bæjar- og sveitarfélög á svæðinu er
Ijóst að ekki er hægt að setja ábyrgðina eingöngu á þau . Fyrirtæki og
aðilar í ferðaþjónustu og rekstri henni tengdri hljóta að þurfa að sama
skapi að „taka upp budduna" og leggja til í þessa fjárfestingu til fram-
fara. Sama hvort hátíðirnar heita „Sumar á Selfossi", Humarhátíð á
Hornafirði eða Listasumar á Akureyri svo eitthvað sé nefnt þá er ljóst að
aðilar þuifa að taka höndum saman svo gera megi betur.
Páll Ketilsson.
Flugleiðir
Flugleiðir óska eftir verðhugmyndum í
að hreinsa og ganga frá heyrnartólum
Verkið felst í að:
1. Leysa úr víraflækjum
2. Setja svampa á heyrnartólin
3. Athuga virkni
4. Pakka í plastpoka og loka
Áætlað magn á ári eru u.þ.b. 600.000
sexhundruðþúsund heyrnartól.
Verðhugmyndir skulu miðast við að
varan sé sótt í þjónustubyggingu í
Flugleiða og skilað þangað aftur að
verki loknu.
Frekari upplýsingar gefur Edda Björk
Bogadóttir deildarstjóri þjónustu-
deildar Flugleiða Flugstöð
Leifs Eiríkssonar - sími 425 0320
Myllubakkaskóli:
llutningup grunnskólanna
gengið vel fyrir sig
-segir Vilhjálmur Ketilsson, skólastjóri
Skólastarfið er hafið í
Myllubakkaskóla og hefur
Reykjanesbær nú tekið við
rekstri skólans vegna tlutn-
ings grunnskóla fi'á riki til
sveitarfélaga. Að sögn
Vilhjálms Ketilssonar,
skólastjóra hefur flutn-
ingurinn gengið mjög vel
fyrir sig og í raun miklu
betur en menn áttu von á.
„Það er greinilegt að
skólamálaskrifstofa og
bæjaryfirvöld hafa vandað
sig í þessu máli og eiga
hrós skilið1’, sagði
Vilhjálmur og taldi hann að
nentedur rnyndu ekki fmna
fyrir breytingum
Gengið verður frá lau-
naskýrslum kennara þann
1. október og sagði
Vilhjálmur útkomuna vera
mælikvarða á hvernig til
hefði tekist.
„Ég held að foreldrai' verði
virkari í skólastarfinu í
framtíðinni vegna þeirrar
nálægðar sem nú er komin.
Hafa þeir nú beinan aðgang
að skólamálaskrifstofu,
skólamálastjóra og jafnvel
bæjaryfirvöldum. Þannig
tengjast þau beint rekstri
skólanna".
ÚTILEIKFIMI"
Nú er timi útileikfiminnar og virtist sem þessar stúlkur, sem
eru nemendur í 8. bekk í Holtaskóla, tækju útiverunni fegins
hendi. VF-mynd: Dagný Gísladóttir
Reykjanesbœr tekur
við rekstri
Njarðvíkurskóla:
Nálægðin
ergóð
-segir Gylfi Guðmunds-
son, skólastjóri.
Skólastarf í Njarðvíkurskóla
hófst þann 3. september s.l. og
verður það með hefðbundnu
sniði. Þó hefur orðið breyting
á rekstri grunnskólanna vegna
flutnings þeina til sveitarféla-
ga og sagði Gylfi Guðmunds-
son flutninginn leggjast vel í
sig og væri nálægðin góð.
„Krakkamir munu engan mun
finna en það er gott að hafa þá
sem taka ákvarðanir varðandi
skólann í nágrenni við okkur",
sagði Gylfi. „Nálægðin er af
hinu góða og getum við frekar
búist við því að fá lausn á
okkar rnálum".
Lára Guðmundsdóttir er
nýráðin aðstoðarskólastjóri og
fóru kennarar skólans í náms-
ferð til Hollands í ágúst. Það
hefur orðið örlítil fækkun í
fjölda nemenda og verða þeir
490 í vetur.
SKÓLAJVLÁX.
Umsjón:
Dagný Gísladóttir
Tónlistarskólarnir í Reykjanesbæ:
Afmælishatiöir og fjölbreytileiki
Tónlistarskólarnir í Kefla-
vík og Njarðvík verða
reknir með svipuðu sniði í
vetur en þó ber hæst að
báðir fagna stórum starfsaf-
mælum.
Tónlistarskólinn í Njarðvík
fagnar 20 ára starfsafmæli í
vetur og haustið 1997 verð-
ur Tónlistarskólinn í Kefla-
vik 40 ára.
Kennsla hefst í dag í
Tónlistarskólanum í Njarðvík
og sagði Haraldur Arni
Haraldsson, skólastjóri að
skólinn yrði rekinn með sama
sniði og síðasta vetur. Er
skólinn ætlaður nemendum
frá 6 - 16 ára aldri auk þess
sem Suzuki deildin verður
rekin áfram. Er hún ætluð
bömum allt frá 2 ára aldri.
Nemendur eru ívið fleiri en í
fyira eða um 100. og verður
boðið upp á ýmsar nýjungar.
„Við munum bjóða áfram
kennslu á rafmagns- og bassa-
gítar sem er annað áiið í röð“
sagði Haraldur „Þar er mikil
aukning og nú bjóðum við
upp á reglulegt nám í stað
námskeiðanna sem vom áður.
Einnig bjóðum við áfram upp
á nám í tölvudeild sem lofar
góðu og er hjóðið bara gott í
okkur“.
Tónlistarskólinn getur enn
bætt við sig nemendum á
málmblásturshljóðfæri og
selló auk nokkurra á klarinett.
Tónlistarskólinn í Keflavík er
nú fullsetinn en þó er hægt að
bæta við söngnemendum. Það
em mörg spennandi verkefni
framundan hjá skólanum að
sögn Kjai'tans Más Kjartans-
sonar, skólastjóra. Nú þegar er
hafinn undirbúningur að
afmælishátíð skólans og hefur
verið saminn nýr söngleikur
fyrir skólann af því tilefni sem
verður fmmsýndur að áii.
Að öðru leyti verður skóla-
starfíð með hefðbundnu sniði
og kennt á öll algengustu
hljóðfæri. Má þar nefna
strengjahljóðfæri, blásturs-
hljóðfæri, slagverkshljóðfæri,
jasssamspil, tölvudeild, söng-
nám og forskóla fyrir 6-8 ára
börn. Hljómsveitarstarf er í
miklum blóma og í skólanum
eru starfræktir tveir kórar,
þrjár lúðrasveitir, léttsveit,
strengjasveitir, popphljóm-
sveitir og fleira.
Strengjasveit Tónlistarskólans
er nýkomin úr tónleikaferð til
Danmerkur og í júní fór
Léttsveitin til Bandaríkjanna.
Kennsla fer fram á tveimur
stöðum. Að Austurgötu 13 og
í útibúi skólans í Myllubakka-
skóla. Sagði Kjaitan Már að
húsnæðisskortur væri farinn
að há starfseminni verulega
og væri úrbóta þörf.
Víkurfréttir