Víkurfréttir - 03.01.1997, Blaðsíða 9
ÁRSINS
ÁRSINS
Suðurnesjamenn kættust
mjög þegar vora tók, því það
stefndi í gott sumar. Þær óskir
rættust og í Itönd fór eitt besta
sumar á Suðurnesjum- í ára-
raðir. Sundstaðimir fylltust af
fólki hvern sólardaginn á
fætur öðrunt og fólk notaði
hvert tækifæri til að fækka
fötum og fá fallegan lit á
kroppinn eins og sést hér til
hliðar af mynd úr lóninu.
Þær skipta örugglega orðið
hundruðum mannlífsmynd-
irnar sem birtar hafa verið í
Víkurfréttum árið 1996. Þessi
niynd hefur aldrei birst en hún
sýnir bætt samskipti þjóðanna.
ÁRSINS
Fyrsta skóflustungan að nýju
safnaðarheimili við Keflavík-
urkrikju var tekin á árinu
1996. Þar með lauk fyrsta
kafla í mikilli franthaldssögu
um það hvort safnaðarheimili
yrði byggt eða ekki.
Himininn grét þennan dag
þegar Matthildur Óskarsdóttir
tók skóflustunguna. Stuðn-
ingsmenn safnaðarheimilisins
sögðu himininn gráta af gleði.
Andstæðingar byggingarinnar
voru viðstaddir en skýldu sér
undir húsvegg...
Það var voðalegur klaufi sem
braust inn í Áhaldahús
Reykjanesbæjar á árinu og
var klukkustundum saman að
brjóta upp skjalaskáp. Þjófur-
inn hefði getað sparað sér
ómakið með því að rusla ekki
svona mikið til því lykillinn
af skápnum var fyrir allra
augum á borði fyrir framan
skápinn...
ÁRSINS
Ráðist var inn á heimili eldri
hjóna í Keflavík og húsbónd-
anurn veittir talsverðir
áverkar. „Þarna ertu helv...
þitt, nú er nóg komið," var
það sem húsráðandi fékk að
heyra áður en hann fékk högg
á andlitið. Lögreglan mætti á
svæðið og tók fingraför og
hefur nú upplýst rnálið...
Það fór betur en á horfðist þegar eldri bresk kona nauðlenti
flugvél sinni á Vogastapa um 400 metra frá byggðinni í
Innri- Njarðvík. Konan var flutt á Sjúkrahús Suðumesja og
reyndist ekki alvarlega slösuð. Kraftaverk kont í veg fyrir
að konan létist í flugslysinu því annar hreyftll vélarinnar
skarst í gegnum búk flugvélarinnar og staðnæmdist nokkra
sentimetra fyrir aftan flugstjórasætið. Mörg vitni voru að
slysinu sem varð á sólfögmm sunnudegi í mars.
en9'nn
0 n*'V
ÁRSINS
Nýja bakaríið er án efa bakan
ársins 1996. Þeir Ólafur og
Hafsteinn bakarameistarar
tóku upp á ýmsu á árinu. Þeir
gjörbreyttu bakaríinu, fengu
hvern snillinginn á fætur
öðrunt í heimsókn, bökuðu
risastóra tertu ofan í þúsundir
munna á afmælishátíð Stöðvar
2 og Bylgjunnar í skrúð-
garðinum í Keflavík. Þeir
gerðu síðan útslagðið með því
að auglýsa á dönsku í heilsíðu
auglýsingu. Það besta er að
svakalega margir skildu aug-
lýsinguna. Hver segir að
danska sé leiðinleg?
VINSÆLAR
Á NETINU!
VíkurJ'rúltir njóla
niikilla vinsœlda á
intanwlinu.
Hi'inisóknir til okkar
á sídasla ári skipta
Inisnndnni.
Vió l>ökknni góð
viðbrögð og höldnin
áfrani af kraj’ti.
MSSSSSSí
ÁRSINS
Kanadískar stúlkur komust í
fréttimar á Suðumesjum og
víðar á árinu. Barþjónn sem
horfði tii hafs kom auga á
myndarlegar snótir sem
strippluðust í fjöruborðinu á
Evuklæðunum einum. Þama
voru á ferð kanadískar
flugfreyjur sem gistu í
Keflavík og vildu smá til-
breytingu. Aðrar kanadískar
stúlkur gerðu meiri usla og
það hjá bamavemdamefndar-
konum eftir að hafa sést á
síðum Víkurfrétta á Evu-
klæðum að skemmta körlum
í Sandgerði...
(irviö\ln|)j(iuusia
%|tarlsji»Áaniui
KsmuiMURIMM
ÁRSINS
Landburður af þorski var á
vormánuðum og komu bát-
arnir lunningafullir af fiski
viku eftir viku. Þar var þorsk-
urinn sem einna helst fyllti
bátana og unnið var dag og
nótt við frystingu og söltun.
Loðnuvertíðin gekk einnig vel
og flotinn tók nokkrum
breytingum á árinu. Loðnu-
skip stækkuðu og bygging
nýrrar loðnuverksmiðju í
Helguvík gengur vel. Búist er
við enn stærri vertíð í ár...
ÁRSINS
Það var líf og fjör í fótboltan-
um á síðasta sumri. Ótrúleg
björgunarafrek voru unnin í
fyrstu deildinni. Grindavík
bjargaði sér fyrir hom á síð-
ustu sekúndu deildarkeppn-
innar og staðan var ekki góð
hjá Keflvíkingum. Sandgerð-
ingar unnu síðan Víðismenn í
úrslitaleik um hvort liðið færi
upp í 2. deild. Alltaf fjör í
boltanum...
ÁRSINS
Fréttir um hugsanlega mag-
nesíumverksmiðju við Hafnir
eru vonarglæta ársins fyrir
Suðurnesjamenn. Bygging
verksmiðjunnar yrði mikil
lyftistöng fyrir atvinnulíf á
svæðinu...
ÞETTA GERÐIST
LÍKAÁRIÐ1996
Gamla Kvennó í Grindavík
var gert að menningar-
miðstöð og þar sýndu lista-
menn ókeypis á árinu.
Tilkynnt var að
Reykjanesbrautin yrði
raflýst og verkinu yrði
lokið fyrir áramót.
Starfsmaður Miðness hf. í
Sandgerði slapp ótrúlega
vel eftir 7-8 metra fall ofan
af þaki og niður á steypt
gólf. Hann úlnliðsbrotnaði.
Ungum dreng var bjargað
frá drukknun í drullupolli í
Sandgerði í aprfl.
Steinþór Jónsson hótel-
stjóri fékk einkaleyfi á
nafninu Reykjanesbær.
Knattspymufélagið Víðir í
Garði fagnaði 60 ára
afmæli nteð mikiili veislu í
Iþróttahúsinu í Garði.
Innsiglingin til
Grindavíkur var prófuð í
líkani og hafnarbætur kosta
um 700 milljónir.
Arabískt kóngafólk gisti í
Keflavík og tlugvél
sjeiksins var sögð eins og
úr ævintýri utn Alladín.
Karen Sævarsdóttir vann
sinn áttunda íslands-
meistaratitil í golfí í
Vestmannaeyjum.
Ambjöm hætti sent he^i-
gæslulæknir í Keflavík.
Kaupfélag Suðumesja
seldi rekstur Jám og Skips
en opnaði verslun
á ísafírði í desember.
Víkurfréttir
9