Víkurfréttir - 14.08.1997, Qupperneq 8
Sólveig Sigfúsdóttir eða hún Veiga í Apóteki Keflavíkur er
flestum Suðurnesjamönnum kunn enda hefur hún starfað í
apótekinu í 36 ár. Hún hóf störf þar þegar Jóhann Ellerup var
apótekari árið 1959, nánar tiltekið 1. ágúst og hefurstarfað þar
óslitið síðan að undanskildum þremur árum. Hún átti því 36 ára
starfsafmæli sama dag og nýir eigendur tóku við apótekinu 1.
ágúst síðastliðinn. Geriraðrirbetur! VF-mynd/pket.
NÝIR APÓTEKARAR í KEFLAVIK
Eigcndaskipti hafa orðið á
Apóteki Keflavíkur en lijón-
in Heiðrún Þorgeirsdóttir
og Benedikt Sigurðsson
hafa selt lyfjafræðingunum
Asgeiri Ásgeirssyni og Sig-
urði Gestssyni apótekið og
tóku þeir við rekstrinum 1.
ágúst sl.
„Við erum bjartsýnir en þetta
er mikil fjárfesting og ljóst að
þetta verður erfitt og mikil
vinna“,sögðu þeir Ásgeir og
Sigurður. Aðspurðir um hvort
þeir hyggju á einhverjar breyt-
ingar svöruðu þeir: „Hvemig
er hægt að breyta því sem er
nánast fullkomið. Hér er úrval
og þjónusta og aðstaða eins
og hún gerist best. Við ætlum
til að byrja með að reyna að
viðhalda þvf‘.
Ásgeir sem kemur frá Akra-
nesi hefur starfað í Apóteki
Keflavíkur síðastliðin tæplega
tólf ár. Hann er fæddur í
Reykjavík en ólst upp á Isa-
firði en þaðan lá leið hans á
Skagann. Sigurður er ekki
ókunnur í Apóteki Keflavíkur.
Hann starfaði þar í tíð Jó-
hanns Ellerups, apótekara,
árin 1976 til 1978. Þaðan lá
leið hans í frekara nám í Sví-
þjóð en að því loknu varð
hann apótekari á Siglufirði og
var þar tii ársbyrjunar 1994
þegar hann tók við Rangár-
apóteki. Sigurður er Garð-
maður og má því segja að
hann sé að koma í heimahag-
ana á ný.
Benedikt Sigurðsson, fráfar-
andi apótekari sagðist ánægð-
ur með kaupendurna. „Eg
treysti þeim félögum vel til að
viðhalda góðri þjónustu. Auð-
vitað er ákveðinn tregi sem
kemur upp í huga manns þeg-
ar maður hættir f rekstri og
hættir að vinna. Eg er kominn
á sjötugsaldurinn en ég er á
því að maður eigi að hætta að
vinna þegar maður getur. Hjá
okkur Heiðrúnu tekur nú fyrst
við gott sumarfrí, það lengsta
sem við höfum nokkum tíma
tekið“, sagði Benedikt Sig-
urðsson.
Hnfiiiiætis
17. apríl - 4. maí(
10-40% afsláttur af
Tandurhreint tilboð á handlaugmn, blöndunartækjuin, baðkermn,
sturtubotnum, sturtuklefum, salernum, stálvöskmn, sturtuhengjmn
baðvogum
.. .og ýmsu öðru sem tilheyrir baðherberginu.
Húsasmiðjan er opin:
Verslun Skútuvogi 16 • Sími 525 3000 Verslun og timbursaia Helluhrauni 16, Hafnarfirði
Opið mán. - fös. 8-18 Sími 565 0100
Lau. 10- 16 Opið mán. - fös. 8-18
Sun. 12-16 Lau. 9- 13
Timbursala Súðarvogi 3 -5 • Sími 525 3000 Verslun og timbursala Smiðjuvöllum 5, Keflavík
Opið mán. - fös. 8 - 12 og 13 - 18 Sími 421 6500
Lau. 10- 14 Opið mán. - fös. 9-18 Lau. 10-16
Munið cftír l'tííkortinu!
50 frípimktar fvrir hveijar 1000 kr.
við staðgreiðslu
og ef greitt er ineð kreditkorti.
Grænt númer Húsasmiðjunnar 800 6688
HUSASMIÐJAN
8
Víkurfréttir