Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.08.1997, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 14.08.1997, Blaðsíða 10
Fjórir nýjir veitingastaðir og fullkomin líkamsræktarstöð opna á næstunni: Ólafur Sálemann veitinga- maður og Steinþúr Jónsson inni i húsnæði Kína., take a u way". Á minni myndinni eru IþeirAlfreð Möllerrek- straraðili Lífsstíls og Steinþór. Framkvæmdir á lohastigi Nú standa yfir lokafram- kvæmdir á Hótel Kellavík sem stefnir aö því aö opna fjóra nýja veitingastaði í húsnæðinu ásamt full- kominni líkamsræktarstöö. Veitingastaðirnir eru sjávar- réttarstaðurinn Sólsetrið sem jafnframt mun þjóna sem veitingastofa fyrir hótelgesti, Kínverskur „takeaway", Subway og kaffi Iðnó sem verður rekið í hinum unt- deilda Iðnó glerskála.Hús- næði Hótelsins hefur tekið stækkaskiptum og verða um þúsund fermetrar lagðir undir hinn nýja rekstur. Að sögn Steinþórs Jónssonar hótel- stjóra eru staðirnir hluti af heildarmynd hótelsins sem býður nú upp á fjölbreytta þjónustu fyrir gesti. „Hugmyndin er sú að bjóða fólki á Suðurnesin þar sem það getur gist og farið síðan á sólbaðstofuna í nudd eða lík- amsrækt og fengið sér kaffi og léttan bita í hádeginu. Við ætlum að reyna þetta og sjá hvemig það kemur út“, sagði Steinþór. Hótel Keflavík opnaði nýja álmu í april sl. auk þess sem húsnæðið var stækkað á síð- asta ári. Býður það nú gist- ingu á 67 herbergjum með gistiheimilinu sem er gegnt hótelinu. Framkvæmdir hafa gengið vel að undanfömu og munu staðimir opna í lok vikunnar. Formleg opnun verður síðan föstudaginn 22. ágúst þar sem fólki mun gefast kostur á að skoða hótelið og breytingam- ar. M-augardagur 1G. ágúst DsgsMsrá: 10:30-11:30. Veiðikeppni í Seltjörn. Verdlaun verda veitt fyrir stærsta fiskinn. Þátttakendur 7 ára og yngri verða ad vera í fylgd með fullordnum. Ókeypis veidileyfi en greitt fyrir þann fisk sem veiddur er. Rútuferd frá SBK og Bidskýlinu Njardvík kl. 10.00. og til baka ad veiði lokinni kl. 12.00. 10:30-12:30. Púttkeppni á púttvellinum í Njarðvík fyrir 5-50 ára. Keppt er í aldursflokkum. (Ath. keppni fyrir 51 árs og eldri á sun- nudeginum). 13:00-14:00. Kassabílarallý við púttvöllinn í Njarðvik fyrir börn að 12 ára aldri. Allir heimasmiðaðir bílar fá þátttöku. Tveir keppendur eru í liði, annar ýtir en hinn stýrir. Keppt er um fljótasta kassabílinn, einnig er verðlaun fyrir skemmtilegasta útlitið á kassabíl. 14:00-15:00. Göngurferð um gamla bæinn í Keflavík með leiðsögumanni. Lagt af stað frá Kjarna. Leiðsögumaður er Sturlaugur Björnsson. 15:00-16:00. Dorgkeppni í Keflavíkurhöfn fyrir börn að 12 ára aldri. Keppt er um stærsta fiskinn, minnsta fiskinn, mesta aflann og furðurlegustu veiðina. Þátttakendur 7 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum. 16» og 17» ágúst 1997 Sunnuttagur 17. águst Dagsúrá: 10:00-11:00. Hjólreiðaferð um Reykjanesbæ fyrir alla fjölskylduna. Haldið frá Kjarnanum og Duusleið hjóluð (8 km.) Farastjóri er Sigríður Guðbjörnsdóttir (Siddý). 10:30-12:00. Púttkeppni á púttvellinum í Keflavík fyrir 51 ára og eldri. Keppt er í tveimur aldursflokkum. 13:00-17:00. Sumarskemmtun Fjölskyldunnar í Skrúðgarðinum í Keflavík. 13:00 Hópaanaa frá Kjarnanum ifytgd keppenda Hálandaleikanna og sterkustu mönnum Suðurnesja. Fígúrur frá Leikfélagi Keflavíkur slást í hópinn. Gengið um Hafnargötu og Tjamargötu að Skrúðgarðinum. 13:30. ReiðhiólkeDDni fyrir börn 12 ára og yngri þar sem ýmsar léttar þrautir eru leystar. Sterkustu menn landsins sjá um keppnina og veita verlaun. 14:00. Hálandaleikar. Reykanesbæingar takast á við tröllin. Rúnar júlíusson og vinningshljómsveitir frá Rokkstokk troða upp. Grillaðar \ pylsur í boði Kjötsel ofl. Sýning á verkum skólabarna verður opin í Bókasafni Reykjanesbæjar frá 16. ágúst á opnunartíma safnsins. Allir velkomnir. Tómstundaráð Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa Reykanesbæjar (MOA) 10 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.