Víkurfréttir - 21.08.1997, Blaðsíða 10
ATVÍNNA
Óskum að ráða starfskraft til
afgreiðslustarfa, ekki yngri
en 20 ára. Vaktavinna.
Umsóknareyðublöð á staðnum.
FitjagriU
Fitjum - Njarövík
Auglýsingasími Víkurfrétta
er 4214717 Fax 4212777
Grunnskólar Reykjanesbæjar
Upphaf skólastarfs 1997-1998
Skólastarf hefst með starfsmanna-
fundum í skólunum þriðjudaginn
26. ágúst kl. 09:00.
Nemendur eiga að koma í skólana
mánudaginn 1. september
sem hér segir:
Njarð víkurskóli
kl. 09:00 5. bekkur, 6. bekkur, 7. bekkur
kl. 10:00 3. bekkur,8. bekkur,9. bekkur
kl. 11:00 2. bekkur, 4. bekkur, 10. bekkur
Holtaskóli
kl. 09:00 10. bekkur
kl. 11:009. bekkur
kl. 13:008. bekkur
kl. 15:00 7. bekkur
Myllubakkaskóli (íþróttahús)
kl. 08:30 6. bekkur
kl. 09:30 5. bekkur
kl. 10:30 4. bekkur
kl. 11:30 3. bekkur
kl. 13:00 2. bekkur
kl. 14:00 1. bekkur
Innritun nýrra nemenda fer fram í
skólunum daglega kl. 10-12 og 13-15.
Forrádamenn yngri barna eru hvatt-
ir til að koma med börnum sínum til
skólasetningar. Kennsla hefst
skv. stundaskrá þriðjudaginn
2. september.
Skólamálastjóri.
HRAFNKELL ÓSKARSSON SKRIFAR:
Herferðarsögur...
Sunnudaginn 10. ágúst birtist í
Ríkissjónvarpinu viðtal við
undirritaðan um ástæður þess
að ég sagði upp störfúm á
Sjúkrahúsi Suðumesja.Tveim
dögum síðar var viðtal við
framkvæmdastjóra SHS í sama
fjölmiðli, og í Suðumesja-
fréttum er síðan grein eftir
fyrrverandi framkvæmdastjóra
og núverandi stjómarmann í
stjóm SHS með feitletraðri
fyrirsögn: Herferð gegn
Heilsugæslu og Sjúkrahúsi
Suðurnesja?
Þar sem mönnum virðist ganga
illa að muna út á hvað fréttin
gekk og hvað ég sagði þá birti
ég einfaldlega eigin ummæli frá
orði til orðs;
Fréttin hefst á inngangi frétta-
manns um að mikið los virðist á
starfsfólki SHS og HSS, en
helmingur lækna SHS hati látið
af störfum, einn læknir af HSS
sé í ársleyfi og annar að hætta.
Viðtalið við mig er svona :
Fréttamaður: ..enafhverju
ákvað fráfarandi yfirlæknir að
yfirgefa stofnunina ?
Hrafnkell: það er engin ein
ástæða, það er margt sent
spilar saman.En það sem
skipti mestu máli er það að ég
lysti því hér yfir að það væri
ekki hægt að taka faglega
ábyrgð á rekstrinum, eða ég
gæti það ekki eins og hann
væri og það gerðist síðan ekki
neitt í framhaldi af þessu.það
leið heilt ár án þess að þeir
sem hér stjórna gerðu nokkuð
í málunum,eða reyndu að
breyta, og þá gat ég raunar
ekki tekið aðra ákvörðun en
að hætta.
Fréttamaður: Ríkir eitthvað
áhugaleysi hjá stjómendum
sjúkrahússins?
Hrafnkell: Ég myndi kalla
það duglevsi aðalIega.Ég held
að það sé miklu nær. Við
þurfum auðvitað að sækja til
ráðunevtisins um æði margt
og þar er niðurskurðar-
hnífurinn á lofti eins og hefur
alltaf verið.það er ekkert nýtt
og það vissi ntaður svo sem og
var tilbúinn til að takast á við
aftur, ef það væri einhver
stuðningur hérna á heima-
vígstöðvunum.En mér hefur
því miður fundist það vera
mjög takmarkað.
(Hér er klippt aftur yfir á frétta-
stofuna)
Fréttamaður: Hrafnkell leggur
áherslu á að það verði að liggja
fyrir ákveðin stefna á stofnun
sem þessari, sem starfsfólk geti
unnið eftir. Hann bendir á að
vissulega hafi allt tal um
niðurskurð slæm áhrif, sér í lagi
þegar mikill tími fari í spamað-
aráform sem ekki verði af.
Slíku séu þau hins vegar orðin
löngu vön. Of mikill tími fari í
umræðu um samvinnu , spamað
og framtíðaráform sem ekkert
verði úr. Fréttastofan náði ekki í
Jóhann Einvarðsson fram-
kvæmdastjóra vegna málsins í
dag, og Anna Margrét Guð-
mundsdóttir, stjómarfor-
maður.vill ekki tjá sig um málið
á þessu stigi. (Frétt lýkur)
Nokkrar athugasemdir:
Eyjólfur segir viðtalið við mig
greinilega pantað. Ég eftirlæt
Sjónvarpinu að hafa áhyggjur af
að Eyjólfur trúi því, að menn
geti hringt og pantað sér fréttir
eftir þörfum í virtasta fjölmiðli
landsins. Ég ætla ekkert að
móðgast af þessu, heldur líta á
það sem hrós að hann trúi því
að ég sé svona áhrifamikill.
Sannleikurinn er svona;
Jóhanna Vigdfs hringdi í mig
um hádegisbilið þennan dag,
var á leið á flugvöllinn vegna
fréttar um Atlanta þotu er lenti í
vandræðum. Spurði hvort ég
væri tilbúinn að tjá mig um
eigin uppsögn. Hvers vegna
henni fannst fréttnæmt að ég
væri að hætta verða menn að
spyrja hana.
Ég bendi á, að ekki er fjallað
urn ástæður uppsagna annara en
rnína eigin í fréttinni og heilsu-
gæslan kemur lítið við sögu og
því má spyrja sig af hverju lögð
sé slík áhersla á stöðuna þar í
svömm framkvæmdastjóra og
stjómar. Reyndar kom fram í
inngangi fréttamanns að einn
læknir væri í ársleyfi og annar
hefði sagt upp, sem er alveg
rétt.
Fyrir utan það sem ég sagði
sjálfur er haft eftir mér í lok
fréttar ummæli um slæm áhrif
niðurskurðartals og áfomia sem
ekkert verði úr (sjá ofar) og
þetta stend ég að sjálfsögðu við.
þó það komi mér e.t.v. ekki við
þá ætla ég að benda á tvennt.
Stjómin lýsir furðu á að ekki
hafi verið rætt við stjómendur
SHS samdægurs, en í fréttinni
kom ffam að Anna Margrét hafi
ekki viljað tjá sig um málið.
Hvort ætii sé nú rétt? Og hverjir
hafa hætt á SHS af læknunum
(fullyrðum ekki um ástæður)
Sigurjón bæklunarlæknir var í
12,5 % stöðu, hætti í vetur.
Olafur kvensjúkdómalæknir
sagði upp hluta af stöðu sinni
og minnkaði því viðveru úr 4
dögum í 3 .Einar svæfinga-
læknir í 100 % stöðu og ég í
75% stöðu sögðum upp í vor.
þeir sem ekki hafa minnkað við
sig eða hætt em Konráð í 50%
við SHS, Stefán í 25 %,
Ambjöm fór úr 12,5 í 25 % er
Sigurjón hætti og Þórir sem var
í 50 % en er nú í yfirlæknis-
stöðunni 75 eða 100 %. þá
kemur röntgenlæknir sem verk-
taki tvo morgna í viku.
Nú er ykkar að leggja dóm. Er
gagnrýni sú er ég lét frá mér um
stjómendur „herferð gegn
sjúkrahúsinu“ eða er verið að
búa til storm í vatnsglasi til þess
að hræða mig og aðra frá gagn-
rýni ?
Hrafnkell Óskarsson
fSérstakt
holræsagjald
Eins og fram kom á álagningarseðli
fasteignargjalda í janúar sl. er nú í
fyrsta skipti innheimt sérstakt
holræsagjald til hreinsunar á
fráveituvatni.
Gjaldið er kr. 6.000.- sem greiðist
í tvennu lagi, 25. ágúst og
25. september.
Þetta gjald rennur óskert til
framkvæmda við ný fráveitu-
mannvirki sem verið er að hanna
þessa stundina. I framtíðinni verður
því öllu fráveituvatni safnað saman
í dælustöðvar og dælt á haf út.
Allar nánari upplýsingar veitir fjár-
málastjóri í síma 421-6700.
10
V íkurfréttir