Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.09.1997, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 04.09.1997, Blaðsíða 7
ATVINNA BG Bílakringlan ehf, Keflavík er þrjátíu ára gamalt fyrirtæki sem veitir alhlida þjónustu fyrir bíl- eigendur. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega tuttugu manns og er starfsadstaða mjög góð. BG Bílakringlan auglýsir eftir starfsmönnum. Sölumanni í bíla- og varahluta- verslun. Við leitum að þjónustu- liprum, ábyrgum aðila með brenn- andi áhuga á starfinu og helst ein- hverja starfsreynslu. Endurskipulagning á sér stað í versluninni þar sem vöruúrval verður aukið til muna, þá mun auk þess lögð frekari áhersla á hraðþjónustu á sérpöntunum erlendis frá. Enskukunnátta nauðsynleg. Aðstoðarmanni á bílamálunar- og réttingaverkstæði, við leitum að áhugasömum og laghentum ungum manni. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar BG Bílakringlunni ehf, Grófinni 7-8, 230 Keflavík fyrir 12. september. Frekari upplýsingar veitir Birgir í síma 421-4242 á vinnutíma. BÍIAKRINGIAN Hjólreiðar - Hlaup - Sund 13. september 1997 Hópakeppni: Hjólaðir 9,3 km. Hlaupnir 2,9 km. Syntir 320 m. Hefstkl. 12:00. Þátttökugjald kr. 900.- á hóp 3 í liði, aldur og kyn skipta ekki máli. Keppnin fer fram í Iþróttamiðstöðinni, á götum og í næsta nágrenni bæjarfélagsins. Skráning og nánari upplýsingar í íþróttamiðstöðinni íSandgerði ísíma 423-7736. Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 10. september. Framkvæmdanefnd. Einstaklings- keppni: Hjólaðir 9,3 km. Hlaupnir 2,9 km. Syntir 160 m. Hefst kl. 10:00. Þátttökugjald kr. 300.- Föstudagurinn 5. september STYÐJUM ÖRN Kl. 21.00 hefst styrktarhátíd á Staðnum fyrir Örn Kærnested og fjölskyldu. Boðið verður upp á frábæra skemmtun undir stjórn Einars Arnar Einarssonar. Meðal skemmtikrafta verður Bubbi Morhens í fararbroddi. Að lokinni dagskrá leikur hljómsveitin Poppers fyrir dansi. Forsala á styrktarmiðum hefst fimmtudagskvöld á Staðnum. Sjá nánari umfjöllun í blaðinu. Mætum öll og leggjum góðu máli lið. iruutnim koma og vm röKum A Món þeui/i LAUGARDAGINN 6. SERTEMBER I tilefni aflandsleik Islands og Irlands og heimsókn á annad þúsunda Ira hingad til lands efna Samvinnuferðir Landsýn, Ferðamálaráð Dublinar og Veitingahúsið Staðurinn til stórkostlegrar skemmtunar. Dagurinn hefst kl. 14.00 á Staðnum. Þá verður leikurinn sýndur á breiðtjaldi fyrir þá sem ekki komast til að sjá hann í Reykjavík. Tilboðsverð á öli á meðan á leik stendur. Kl. 22.00 sláum við botninn í skemmtun helgarinnar í fótboltabænum Keflavik og fögnum úrslitunum hver sem þau verða. Ferðamálaráð Dublinar mun bjóða upp á veitin- gar við innganginn á Staðnum. Hljómsveitin The Merry Ploughboys kemur beint frá Irlandi í tilefni dagsins og mun halda uppi fjörinu eins og Irum er einum lagið. Nú er tækifæri fyrir alla sem kynnst hafa írskri pöbbamenningu að mæta á Staðinn og rifja upp írskt fjör. Fyrir hina sem ekki hafa til Irlands komið er tækifæri til að upplifa ógleymanlegt kvöld. írskar veigar í hávegum hafðar. Lukkumiðar við innganginn. Allir sem koma með írska lítersölkönnu með sér fá eina fría áfyllingu. Þeir sem mæta með 5 derhúfur með sér geta skipt á þeim og einni áfyllingu. Samvinnuferðir Ferðamáiaráa LandSýn Oublinar RESTAURANT - PUB H.AFNARG.AT.A 3 0 - KEFLAVIK Víkurfréttir 7

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.