Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.09.1997, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 04.09.1997, Blaðsíða 15
Jafnt í bikarúrslitaleik Keflavíkur og IBV: 1 Tökum þáí næsta leik -sagði Gestur Gylfason sem skoraði jöfnunarmarkið á síðustu sekúndunum „Maður á svona eitt skot á ári sem fer inn - og þarna var það. Ég sá boltann í höndunum á markverðinum og sneri mér þá við og lamdi í grasið. Svo komu strákarnir til mín og ég heyrði ógurleg fagnaðarlæti. Það var yndislegt", sagði Gestur Gylfa- son, sem skoraði jöfnunarmark Keflvíkinga gegn ÍBV í 120 mínútna úrslitaleik Coca Cola bikarkeppninnar á Laugardals- velli sl. sunnudag. A sjöunda þúsund manns mættu á völlinn í blíðviðri og hvöttu sína menn eins og þeir best gátu. Stemmningin var stórkostleg og hún smitaði Keflvíkinga í byrjun leiks því þeir voru sprækir og léku mun betri fótbolta en Eyja- menn sem virtust utan við sig fyrstu mínútumar. Uppúr þessum fjörleik Keflvík- inga á upphafsmínútunum fékk Haukur Ingi Guðnason sann- kallað dauðafæri strax á 2. mín- útu. Hann hitti boltann illa og hann fór framhjá. Eyjamenn siuppu við skrekkinn og litlu munaði að skyndisókna-uppskrift Keflvíkinga heppnaðist strax. Stuttu sfðar fékk Haukur Ingi stungusendingu en Zoran Milj- kovic náði að trufla Hauk með j peysutogi þannig að Keflvíking- | urinn ungi missti boltann frá sér. Þetta sést vel á mynd á bis. 13. Svo hart gekk Zoran sem reyndar er einn besti vamarmaður lands- ins, í peysutoginu og tuddaskap að hann uppskar eitt gult spjald en hefði átt að fá annað. Eyjamenn áttu þrjú skot að marki Keflvíkur í fyrri hálfleik og hættulegasta fær- ið var þegar Steingn'mur Jóhann- esson brunaði upp vinstri kantinn í átt að Keflavíkurmarkinu með Elsku pabbi (eilífðartáningur) til hamingju með 40 árin, 6. september. Þúsund kossar. Grisiingamir þrír. Tvítugar orðnar hnátur tvær, töluvert em þær tyrir sportið. Ef þið viljið gleðja þær, þá leggið inná (Ferða)Vísakortið. Til hamingju með tvítugsafmælið þann 9. september elsku frænkur. Þorsteinn Ingi, Thelma Lind og Hilmir Karl. Sunddeild Keflavíkur Sundæfingar - innrítun Dagana 8. og 9. september fer fram innritun nýrra idkenda á sundæfingar hjá Sunddeild Keflavíkur. Börn á aldrinum 6-12 ára eru hvött til að koma og kynnast starfseminni sem verður með fjölbreyttum hætti. Börnin verða að mæta með sundföt svo hægt verði að sjá í hvaða hóp þau fara. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir að mæta með börnunum. Þjálfarar í vetur verða Eðvarð Þór Eðvarðsson og Ragnheiður Runólfsdóttir. Innritun fer fram í gömlu sundhöllinni sem hér segir: Krakkar í 1. og 2. bekk mánudag 8. sept. kl. 17. Krakkarí 3. til 6. bekk þriðjudag 9. sept. kl. 17. Börn sem voru í C-D-E og F hópum síðasta vetur eru einnig beðin um að mæta í innriun. Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður í síma 421-4686. anki jamu Keflavík og KR skildu jöfn í knattspymu gærkvöldsins. Lokastaðan var l-l og skoraði Eysteinn Hauksson mark Kefla- víkur úr vítaspymu. Grindavík gerði einnig jafntefli gegn Fram í fyrrakvöld, 2-2 en Grindvíkingar voru 2-0 undir þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Ámi Slefán og Zoran skomðu mörk Grindavíkur. samherja hinunt megin við Krist- in Guðbrandsson sem var á milli þehra. Kidda tókst að bægja hætt- unni frá eins og frábærum vamar- manni sæmir. Vel gert hjá Kidda sem er orðinn með betri vamar- mönnum landsins. Eyjamenn voru sterkari í seinni hálfleik. Þeir byrjuðu á þrumu- skoti sem Bjarki markvörður varði af snilld út við stöng. Bjarki átti síðan slakt útspark úr víta- teignum sem Sigurvin Ólafsson náði og skaut viðstöðulaust löngu skoti sem endaði í þversiá. Bæði lið áttu eftir þetta þokaleg skot og færi ánjress þó að boltinn færi yfir marklínuna. I framlengingunni gerði Jakob fyrirliði Jónharðsson sín einu mistök í leiknum þegar hann mis- skildi sendingu frá Bjarka mark- verði út á kantinn. Steingrímur sem Jakob bar búinn að „pakka" saman í venjulegum leiktíma náði að gefa fyrir. Bjarki markvörður náði að handsama boltann eftir fjör í teignum en þá kom Ingi Sigurðsson aðvífandi, rak hægra hnéð í hnakka Bjarka. Ingi spark- aði boltanum úr höndum Bjarka og eftir mikla baráttu í markteign- um náði Leifur Geir Hafsteins- son að skjóta að koma boltanum yfir marklínuna, 1:0. Sæmundur Vígiundsson ráðfærði sig við línuvörð en dæmdi síðan markið löglegt. Hreint ótrúlegt og Kefl- víkingar mótmæltu af krafti. Slæm mistök hjá Sæmundi sem greinilega hefur verið illa staðsett- ur að sjá þetta ekki. Keflvíkingar gáfust ekki upp og sóttu stíft að marki ÍBV eftir þetta. Þegar um mínúta var eftir fengu Eyjamenn hornspyrnu og aðeins tveir þeirra fóm inn í vi'ta- teig Keflavíkur en á undan höfðu þeir sparkað langt útaf hvað eftir annað til að tefja. Þá gerðist hið ótrúlega. Kristinn Guðbrands- son gaf langa sendingu út á Adolf Sveinsson sem gaf fyrir markið. Eyjamaðurinn Guðni Rúnar skall- aði bollann við fjærstöngina, liann barst inn í miðjan teig þar sem Gestur Gylfason sá um að skora jöfnunarmark Keflvíkinga. Svo lítil tími var eftir að Eyjamenn rétt náðu að taka miðju áður en flaut- að var til leiksloka. Næsti leikur verður á sama stað 5. okt. nk. „Strákarnir voru frábærir og sýndu mikinn karakter. Stuðnings- menn okkar voru líka frábærir og við viljuin þakka fyrir |iað. Tólfti maðurin skilaði sér og það liafði sitt að segja |ui svo við höf- um ckki sigraö. Við Keflvíkingar hugsum til framtíðar og ég bið stuðningsmenn okkar um að sýna strákunum okkar þolinmæði. Þeir eiga eftir að skila titlum“, sagðir Sigurður Björgvinsson, þjálf- ari Keflavikur. „Eg var eitthvað stressaður þarna í byrjun. Ég liitti ekki boltann en ég skal lofa þér því að ég skora næst“, sagði Haukur Ingi tiuðnason sem átti tvii góð marktækifæri í byrjun leiks. „Þetta var kolólöglegt mark. Ingi rak liippina í Imakkann á mérog þannig missti ég boltann. líg er ánægur með ininn hlut í leiknum, fann inig vel enda er ekki annað liægt með svona stuðning og steininningu", sagði Bjarki Guðmundsson, markvörður Kellavík- ur. „Sæmundiir dóinari klikkaði rosalega þegar þeir skoruðu inarkið. Það var eins óliiglegt og það gat verið. Én við gáfumst ekki upp og það var yndislrgt að jafna. Við tökuni þá næst", sagði Karl Klnn- bogason, varnarmaður. „Þetta var skemmtilegt. Jú, mér gekk vel og náði að lialda Stein- gríini niðri en ég var orðinn ansi þreyttur í lokin. Við vorum orðnir vonlitlir í lnkin en börðumst áfrain. Það skilaði síðasta markinu", sagði Jakob Jónharðsson fyrirliði Kellvíkinga. Hafnasamlag Suðurnesja: HREINSUNARDAGUR Hvað liggur á botni Keflavíkurhafnar? Laugardaginn 6. september munu sportkafarar standa fyrir hreinsun á botni hafnarinnar í Keflavík. Allir sportkafarar velkomnir! Veitt verða verðlaun fyrir þá hluti sem þykja forvitni- legastir, þyngstir o.s.fv. Fiskikör með hinum ýmsu krabbadýrum og fleira for- vitnilegt verður til sýnis við höfnina kl. 12-16. Allir velkomnir að koma og skoða eða hjálpa til. Hafnarstjóri. Víkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.