Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 02.10.1997, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 02.10.1997, Qupperneq 8
r Svona er lífiö *Dagný Gísladóttir y Anna Pála hefur unnið á Pósthúsinu í 40 ár „Póstur og Síini góðan daginn", það er rödd Önnu Pálu Sigurðardóttur sem viðskiptavinir Pósthússins í Keflavík heyra en hún hefur starfað á símanum í 40 ár og geri aðrir betur. Önnu Pálu fannst starfsaldurinn ekki tilefni til viðtals en hún lét þó tilleiðast að segja okkur frá ástæðum þess að starfsaldurinn er svo langur sem raun ber vitni. „Mér líkar vinnan alveg rosalega vel. Eg kann vel við starfsfólkið, mórallinn er góður og vinnan er skemmtileg og fjölbreytt". Anna Pála byrjaði á símanum þann 1. sept- ember 1952 þá 16 ára gömul. Hún hefur hætt í millitfðinni en alltaf verið viðloðandi sím- ann eins og árafjöldinn gefur til kynna og unnið þá á símanum, ritsímanum og öðru sem til hefur fallið. Um 10 konur starfa við af- greiðslu Pósts og Sfrna í Keflavík og að sögn Önnu Pála hafa karlmennimir stoppað stutt við. „Ég man bara ekki eftir því að það hafi verið karlmaður hér hjá okkur síðan að Hjörtur Kristjánsson var hér í stuttan tíma“, segir Anna Pála sem hlýtur að hafa upplifað ýmsar breytingar í símaþjónustu Suðumesjamanna? ,Já, það var rosalega mikil breyting að fara úr því sem er kallað miðstöð og í sjálfvirka símakerfið árið 1962. Það getur enginn ímyndað sér aðra eins breytingu og að sjálf- sögðu hefur þjónustan tnikið breyst í gegnum árin“. Ætlar þú að vera þama lengi? ,Ja, ég ætla bara rétt að vona að ég fái að vera hérna þangað til ég verð 65 eða 67 ára eða í 3 til 4 ár í viðbót. Eg vil endilega fá að klára“, sagði Anna Pála að lokum. L J Sameining orðin að veruleika: Hluthufnfundur í Bakka hf. sem frani fór þann 27. september sl. samþykkti samhljóða samrunaáætlun Bakka lif. og Þorbjarnar hf. Sameiningin tekur gildi frá og með 1. maí 1997. Framkvæmdastjórar hins nýja fyrirtækis verða Eiríkur Tómasson og Gunnar Tóm- asson og stefnir fyrirtækið að skráningu á Verðbréfaþingi Islands í haust. f dag kom inn til Bolungar- víkur nýtt skip í flota hins sameinaða félags en það er rækjufrystiskipið Hraftiseyri IS-10. Hrafnseyri verður gerð út frá Bolungarvík og mun sinna hráefnisöflun fyrir rækjuverksmiðju fyriitækis- ins í Bolungarvík og Hnífs- dal. Eftir fundinn var hluthöfum og velunnurum fyrirtækisins boðið að skoða skipið og þiggja léttar veitingar um borð. Fyrir á félagið frysti- togarana Hrafn Sveinbjamar- son GK-255 og Gnúp GK- 11 ásamt ísfisktogurunum Dagrúnu IS-9 og Sturlu GK- 12. Jafnframt rekur fyriitæk- ið fiskvinnslustöðvar í Bol- ungarvík, Hnífsdal og Grindavík. i fsláttur af GLAUCA rðunarvörum FAGURLIND Hair, nails and make-up saloon iililHMMl EINA STOFAN Á SUÐURNESJUM M SEM BYÐUR UPPÁ: t REDKEN hársnyrtivörur / GLAUCA ROSSI fördunarvörur / OPI gervineglur og naglalölík / Munid tilbodin sem giilda til 10. október: Háralitun, klipping og léttur blástur kr. 2900.- Gervineglur kr. 2900.- Fördun kr. 1000.- JiiUfi Nú bjóðum uið einnig uppá HERRAKLIPPINGU Á KR« 800 - 8 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.