Víkurfréttir - 20.11.1997, Síða 9
Áætlað er ad byggingin verði 600 fermetrar en heildarfjárfesting um 83 milljónir króna.
...hugsuð sem upp-
lýsiugamiðstöð fyrir
ferðamenn. Stuð-
setningin góður
kostur með tilliti til
umferðorliunga og
nólægðar við stór
markaðssvæði...
83 miíiia kr. afyreyingar og þjón
ustumiAstöð vii Grindavíkiirveg
Áætlað er að reisa 600 fer-
metra afþreyingar og þjón-
ustumiðstöð við vegamót
Reykjanesbrautar og Grinda-
víkurvegar sem hýsa mun
ferðamannaverslun, safn og
veitingahús með tilheyrandi
snyrtiaðstöðu.
Hlutafélagið Amór ehf. verð-
ur stofnað um rekstur hússins
sem mun síðan leigja út veit-
inga- og verslunarrýmið en
sjá um að reka tjaldstæði,
hestaleigu og aðra afþreyingu
á svæðinu.
Heildarfjárfesting er áætluð
rúmar 83 milljónir króna.
Maðurinn að baki hugmynd-
arinnar er Þórarinn Þórarins-
son og sagði hann í samtali
við blaðið að slíka þjónustu
haft vantað á Suðumesjum.
„Þetta er hugsað sem upplýs-
ingamiðstöð fyrir ferðamenn
miðsvæðis og er staðsetningin
góður kostur með tilliti til um-
ferðarþunga og nálægðar við
stór markaðssvæði. Þessi
gatnamót em með þeim fjöl-
fömustu á landinu utan þétt-
býlis og í næsta nágrenni við
Bláá lónið þar sem 150 þús-
und gestir koma árlega."
Þórarinn hefur starfað mikið
að ferðamálum og sagði hann
að tími væri kominn til þess
að setja kraft í ferðamanna-
þjónustu á Suðumesjum.
Ætlunin er að þjónusta þann
fjölda ferðamanna sem þama
fer um á ári hverju auk þess
sem Þórarinn sagði miðstöð-
tna
gagn
gert
laða að sér
fleiri ferða-
menn.
Verkefnið hefur fengið já-
kvæðar undirtektir og eru m.a.
Eignarhaldsfélag Suðumesja,
og Islenskir aðalverktakar
með það í athugun.
Bílaumferð er
meiri á Reykjanesbraut
að jafnaði á dag en
samanlagt á
Hellisheiði og yfir
Borgarfjarðarbrú.
32 of hraðir á
Reykjanesbraut
Lögreglan í Keflavík kærði
alls 32 ökumenn í síðustu
viku fyrir of hraðan akstur á
Reykjanesbraut en nú stendur
yfir átak þar sem fylgst er
með hraðanum á brautinni.
Tveir ökumenn voru sviptir
ökuleyfi á staðnum. Annar
þeirra reyndist vera á 122 km
hraða þar sem var 70 km há-
markshraði og hinn var tekinn
á 150 km hraða þar sem há-
markshraði var 90 km. Hann
var einnig grunaður um ölvun
við akstur.
Jafnframt urðu 3 lítilsháttar
umferðaróhöpp á brautinni og
6 ökumenn voru teknir fyrir
umferðarbrot. Alls 11 öku-
menn voru áminntir vegna
vanbúnaðar á ljósabúnaði.
GARÐBUAR!
Senn líður að gerð íbúaskrár
1. desember 1997 og eru þeir
sem eiga eftir að tilkynna breytt
lögheimili, góðfúslega beðnir að
ganga frá skráningu sem fyrst.
Lögheimili martrts er sá staður þar
sem hann hefur fasta búsetu.
Sveitarstjóri.
STARFSLEYFISTILLOGUR
FYRIR FISKMJÖLSVERKSMIÐJU
SNÆFELLS H.F. SANDGERÐI
I samræmi við ákvæði 63. gr. í 8. kafla mengunar-
varnareglugerðar nr. 48/1994, ásamt síðari breytingum,
um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur, sem valdið getur
mengun, liggja frammi á afgreiðslutíma hjá Skrifstofum
Sandgerðisbæjar Tjarnarbraut 4, Sandgerði, til
kynningar frá 26. nóvember 1997 til 12. janúar 1998,
starfsleyfistillögur fyrir Fiskmjölsverksmiðju
Snæfells h.f. Sandgerði.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillögurnar skulu
hafa borist Hollustuvernd ríkisins fyrir 12. janúar 1998.
Rétt til að gera athugasemdir við starfsleyfistillögurnar
hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsmenn
og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir
óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið varðar.
Hollustuvernd ríkisins
Mengunarvarnir,
Ármúla 1a, Reykjavík
VíknrfréHÍr
o