Víkurfréttir - 20.11.1997, Blaðsíða 10
Bæjarmálafélag jafnaðar- og
félagshyggjufólks í Reykjanesbæ
STOFNFUNDUR
Stofnfundur bæjarmálafélags jafnaðar-
og félagshyggjufólks í Reykjanesbæ
verður haldinn laugardaginn 22. nóvember
í leikhúsi Reykjanesbæjar að
Vesturbraut 17, kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Fundarsetning, Theodór Magnússon
formadur samstarfsnefndar.
2. Drög ad samþykktum félagsins,
Reynir Ólafsson.
3. Framtíðarsýn jafnaðar- og félagshyggjufólks,
Eysteinn Eyjólfsson.
4. Aðalfundarstörf.
5. Ávörp, Anna Margrét Guðmundsdóttir
og Jóhann Geirdal.
Fundarstjóri: Logi Þormóðsson.
Kaffiveitingar - Skemmtiatriði og uppákomur
- Barnahorn
Nánari upplýsingar, Reynir 893-0783 -
Eyjólfur 896-1064 - Theodór 421-3728.
Fjölskylda - Lýðræði - Atvinna
Forrádamenn
Gerðaahrepps og
áfengisvarnarráðs
að loknum blaða-
mannafundinum
þar sem málefni
„Reylaus
Gerðahreppur
2001" varkynntí
verkalýðshúsinu í
Garði.
Gerðahreppur setti sl.
fiinmtudag fordæmi sem
gæti orðið áhrif'aríkt en |)á
var kvnnt átakið „Revklaus
Gerðahreppur árið 2001“.
Atakið er unnið í samvinnu
við Tóbaksvamamefnd og er
markmiðið að ná samstöðu
með félagasamtökum, fyrir-
tækjum og öllum íbúum sveit-
arfélagsins að taka höndum
saman og vinna að því tak-
marki að gera Garðinn
reyklausan árið 2001.
Akveðið var að efna til skoð-
unarkönnunar meðal íbúa
Gerðahrepps og vom 72%
svarenda hlynnt ákakinu.
Boðað var til fundar með aðil-
um félagasamtaka, skóla,
vinnueftirlits auk annarra
þann 4. nóvember sl. Fulltrúi
Tóbaksvamamefndar hélt er-
indi um skaðsemi reykinga og
gerð var grein fyrir námskeiði
sem stendur þeim til boða
sem vilja hætta að reykja. Að
sögn Sigurðar Jónssonar
sveitastjóra Gerðahrepps
reyndust viðhorf allra til verk-
efnisins vera jákvæð.
„Einhver kann að segja að
þetta sé útilokað verkefni en
við teljum að svo sé ekki.
Með markvissu átaki og
kynningu á skaðsemi reyk-
inga emm við sannfærð um
að það tekst að fá jákvæð við-
brögð allra íbúa. Við gemm
okkur fulla grein fyrir því að
við neyðum engan til að hætta
að reykja. Það breytir engu
þótt við setjum lög ar um eða
sveitarstjóm saþykkir einhver
boð og bönn enda er tilgang-
urinn ekki sá með þessu átaki.
Við viljum fá íbúa sveitarfé-
lagsins með okkur á jákvæðu
nótunum til að huga að þess-
um málum“.Á næstunni verð-
ur leitað á foimlegan hátt til
félagasamtaka, fyriitækja,
stofnana og íbúa í Garðinum
til þess að taka höndum sam-
an og vinna að verkefninu.
Garður
Stofnfundur bæjarmálafélag jafnaðar-
og félagshyggjufólks í Reykjanesbæ
Stofnfundur bæjarmálafé-
lags jafnaðar- og félags-
hyggjufólks í Reykjanesbæ
verður haldinn laugardag-
inn 22. nóvember í leikhúsi
Reykjanesbæjar að Vestur-
bráut 17 kl. 14.00.
Dagskrá fundarins hefst með
því að Theodór Magnússon
formaður Samstarfsnefndar
gerir grein fyrir aðdragandan-
um að stofnun bæjarmálafé-
lagsins. Reynir Ólafsson mun
leggja fyrir fundinn drög að
samþykktum félagsins og Ey-
steinn Eyjólfsson gerir grein
fyrir þeim gildum er bæjar-
málafélagið mun starfa eftir.
Að loknum aðalfundarstörf-
um munu bæjarfulltrúarnir
Anna Margrét Guðmunds-
dóttir og Jóhann Geirdal flytja
ávörp. Fundarstjóri verður
Logi Þonnóðsson.
Á fundinum verður boðið upp
á kaffiveitingar og skemmtiat-
riði og uppákomur á milli
dagskrárliða. Fjölskyldan er
öll boðin velkomin og verður
bamahom á staðnum.
Samstarfsnefnd að stofnun
bæjarmálafélags hvetur alla
fbúa Reykjanesbæjar til þess
að koma á stofnfundinn og
taka þátt í stofnun félags sem
hefur það að markmiði sínu
að vinna að því að gera
Reykjanesbæ að lýðræðislegu
og fjölskylduvænu bæjarfé-
lagi.
Nánari upplýsingar um stofn-
fundinn og starf félagsins
veita Reynir Ólafsson 893-
0783, Eyjólfur Eysteinsson
896-1064 og Theodór Magn-
ússon 421-3728.
Lengri
sundopnun
vel tekið
Forstöðumaður Sundmið-
stöðvar Keflavíkur hefur
að beiðni íþróttaráðs skilað
skýrslu um hvemig til tókst
með lengingu opnunartíma
Sundmiðstöðvarinnar s.l.
sumar. Samkvæmt henni
var framtakinu afar vel tek-
ið af bæjarbúum og hvatti
forstöðumaðurinn til þess
að sami háttur yrði hafður
á næsta sumar.
10
Víkurfréttir