Víkurfréttir - 29.10.1998, Qupperneq 16
„ Þeir fánú bara snitsel í
hádeginu med pönnu-
steiktum kartöfium og
grænmeti," sagði Jón
M. Harðarson veitinga-
maður í Stapa. Frammi í
sal rifustmenn um
álagningu veiðileyfa-
gjalds. „Það verðurað
hafa sneiðarnar stórar,
enda lámark að menn
fari saddir héðan út, þó
svo þeirverði ekki
sammála".
Nóta- og flottrollsskip
Arnar Erlingssonar sem
er í smíðum í Kína:
Verður af-
kastamesti
frystitogari
landsins
Skipið sem Örn Erlingssson
er að láta smíða í Kína verður
öflugasta nóta- og flottrolls-
skip á Islandi og með afkasta-
mesta frystibúnað sem settur
hefur verið í íslenskt skip.
Örn samdi nýlega við Kæl-
ismiðjuna Frost hf. um kaup á
öllum kæli- og frystibúnaði
fyrir nýja skipið. I skipinu
verður mjög öflugt frystikerf-
isem hannað er fyrir sjálfvirka
plötufrysta, frystilest skipsins,
sjókælikerfi og fyrir ísfram-
leiðslu um borð en kælimið-
illinn er ammóníak.
Nýja skipið mun geta fryst
allt að 180 tonnum af afurð-
um um borð á sólarhring en
það er tvö- til þrefalt meira en
stærstu fyrstitogararar hér á
landi geta gert.
Erlingun GK seldun til Patró
Tíu pólskar í fiskvinnslu Jón Erlings
Erlingur GK 212 sem er 227
tonna togveiðiskip Jóns
Erlingssonar hf. í Sandgerði
var seldur nýlega til
Patreksfjarðar. Fyrirtækið
Heymó hf. keypti skipið með
46 þorskígildistonnum.
Eyþór Jónsson, framkvæm-
dastjóri Jóns Erlingssonar hf.
sagði í samtali við Víkurfréttir
að það hefði verið heppni að
selja skipið með svo litlum
kvóta en þegar það var keypt
til Sandgerðis fengust með því
tveir síldarkvótar og 100
þorskígildistonn.
Skipa- og bátaeign fyrirtæk-
isins er því togarinn Haukur
GK 25 og snurvoðabáturinn
Jón Erlings GK 25.
Eyþór á von á nýjum starfs-
mönnum á næstu dögum en
þá koma tíu pólskar
fiskvinnslukonur til starfa í
fiskvinnslu fyrirtækisins.
„Þetta er neyðarbrauð að
þurfa að flytja inn starfsfólk
en við auglýstum eftir fólki
hér heima en fengum lítið sem
ekki neitt“, sagði Eyþór.
Frá fundinum í Stapa sl. laugardag. A myndinni má m.a. sjá þingmennina Kristin Gunnarsson
og Árna Mathiesen. VF-mynd: Hilmar Bragi
Ahygpr vegna veiðileyfagjalils
Sjómenn hafa áhvggjur
af álagningu veiði-
leyfagjalds en á fundi
sent Skipstjóra- og
stýriinannafélagið Vísir hélt
í Stapa sl. laugardag koni
það frani í máli manna að
Íjóst sé að það verði innleitt
á næstunni og formaður
Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands, Guðjón
Kristjánsson sagði í fram-
söguræðu sinni að einhvers
konar auðlindagjald verði
innleitt á næstu öld. Grétar
Mar Jónsson, forntaður
Vísis sagðist andvígur veiði-
leyfagjaldi við nnúverandi
aðstæður.
Ólafur Þór Jóhannsson, fram-
kvæmastjóri Fiskmarkaðs
Suðurnesja sagði að aukin
samkeppni um hráefni á
fiskmörkuðunum væri lykill
að meiri fullvinnslu hér á
landi. Ólafur sagði það athug-
unarvert að a sjómönnum
væri boðin endurskoðun á
hlutaskiptum ef landað væri á
markaði.
Haukur GK, togari Jóns Erlingssonar hf. nýmálaður og flottur í
Sandgerðishöfn í gær. Áðurgrár, nú fallega blár. VF-mynd/hrós.
LEIKFELAG KEFLAVíKUR
,SV/V//v'
MATTARSTOLPA
ÞJÓÐ FÉLAGSINS
Frumsýning.UPPSELT
Föstudaginn 30. okt. kl. 20.30
2. sýning:
Sunnudaginn 1. nóv. kl. 16.00
3. sýning:
Þriðjudaginn 3. nóv. kl. 20.30
4. sýning.
1 Fimmtudaginn 5. nóv. kl. 20.30
Höfundurhriklbsen
Leikstjóri og þýðandi: Hulda Ólafsdóttir
Höfundurtónlistar:
SigurðurGuðmundsson
LjósahönnumÁrniBaldvinsson
BúningarSveindísí/aldimarsdóttir
Sýnt er í Frumleikhúsinu Vesturbraut 17.
Miðasala hefst 11/2 klukkustund fyrir sýningu.
Miðapantanir í sima 4212540.
Miðaverð kr. 1.200 ATH.! Afsláttur fyrir hópa, 10 manns eða fleiri.
16
V íkurfréttir