Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.10.1998, Side 21

Víkurfréttir - 29.10.1998, Side 21
Rekj anesbæj ar Opið bréf til forráðamanna Innri Njarðvík 20. október 1998 Kæru bæjarstarfsmenn, týpda Njarðvík er ennþá týnd. Arið 1994 kom ég til landsins eftir 15 ára búsetu erlendis, og keypti þá íbúð í elstu verðbúðinni hjá Brynjólft. Var þá búið að gera þetta hverfi að íbúðarhúsnæði í kerfinu. Þetta átti þá allt að verða voðalega fínt, olíutankurinn sem stendur 100 metra frá húsinu hjá mér átti að fara innan 2 ára. Gatan átti að færast frá stofuglugganum hjá mér og gangstéttir áttu að leggjast. Nú 51 mánuði seinna hefur komið í ljós að það er ekkert af þessu sem hefur staðist. Bæjarstarfsmenn malbikuðu Njarðvíkurbrautina í fyrra. enn þeir blessaðir kunna ekki að beygja til hægri samanber ljósmyndir af götunni sem fylgja með. Hér fyrir utan stofugluggan hjá mér keyra þunga-flutningarbílar alla daga og þeir sem taka meirapróf í Keflavík nota þessa götu sem æfingarsvæði, og væri ég orðin forrík hefði ég fengið þúsund kall í hvert skipti sem þeir bakka fyrir utan stofugluggan hjá mér. Nú af þessu sést þar sem notkunin er svona mikil, að sennilega væri þörf á. að annaðhvort að malbika þessa götu eða að færa hana þangað sem hún á að fara. Nú mér er tjáð af gömlum Njarðvíkingum sem hafa búið hér allt sitt líf, að þegar Njarðvík heirði ekki undir Keflavík liafi Njarðvíkur- brautin verið skreytt alla leið niður að frystihúsi. Undanfarin ár hafa verið 3 ræfils jólastjömur fyrir ofan bæ. í fyrra taldi ég frá Stapafelli og inn að Hagkaup yfir 40 jólabjöllur og stjömur. Þegar ég hringdi til þeirra starfsmanna bæjarins sem sáu um þessi mál fékk ég þá skýringu að það væri bara skreytt þar sem það væru verslanir. Nú það er vonandi gott mál, það er gistiheimili hérna við hliðina sem selur gistingu. Þær selja einnig Gos og sæl- gæti til sinna viðskiptavina. Nú hér em tvö fyrirtæki sem selja fisk, og ætti því Jólaskreytingin að vera auðfengin ef hún gengur út á sölumennsku. Mér finnst sannast að segja að þið kæru forráðamenn bæjarins ættuð bara að drífa í því að laga þessa hluti ef þið viljið fá eitt einasta atkvæði frá okkur í Innri Njarðvík í næstu kosningum. Virðingarfvllst: Guðmunda Guðrún Björgvinsdóttir Njarðvíkurbraut 56 260 Innri Njarðvík Fröken október var ögn hlýlegri en veðrið sem heilsaði okkur í lok sumars. Vetrarvertíðin hófst á dekkjaverkstæð- unum á föstudaginn. Guðmundur Einarsson og hans menn á dekkjaverk- stæði BG í Grófinni höfðu í nógu að snúast. Vart hafðist undan við að negla hjólbarða, en allir fengu þó dekk sem vildu enda tókþað vartmeira en 15 mínútur að skipta yfir á skaflaskífurnar...! Kosn i ngaskrifstofa Vi Glí'jjjííí'í; jjír^umir opnar í Skothúsinu, Keflavík laugardaginn 31. okt. kl. 15 Opið kvöld fyrir konur í Skothúsinu miðvikudaginn 4. nóv. Nánar auglýst síðar. Skrifstofan er opin virka daga kl. 17-22. Laugardaga kl. 12-19. Sunnudaga kl. 13-17. Alltaf heitt á könnunni. Veljum kraftmikinn ^forystumann í 1. sæti Víkuifréttir 17

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.