Morgunblaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 2
Bandaríski rafbílasmiðurinn Tesla frumsýndi nýjan bíl, Model 3, um mánaðamótin. Var sólarhringur ekki liðin er borist höfðu pantanir í 180.000 eintök en hver og einn þurfti að staðfesta pöntun sína með 1.000 dollara gjaldi. Og það var ekkert lát á eft- irspurninni fyrstu dagana því næsta dag, 2. apríl, stóðu pant- anirnar í 276.000, sem er meiri fjöldi en samanlagður fjöldi allra bíla sem Tesla hefur smíðað til þessa. Af þessum pöntunum bárust 117.000 áður en bíllinn var sviptur hulum á frumsýningunni í Kali- forníu 31. mars síðastliðinn. Þarf fyrirtækið nú ekkert annað að gera en hefja smíðina með 276 milljóna dollara startgjaldinu sem fylgdi öllum pöntununum. Tesla áformar að hefja raðsmíði á Model 3 þegar vel er liðið á næsta ár, 2017. Áætlað er að hann komi á götuna seint á árinu. Er þetta fjórða bílamódelið sem Tesla hefur framleiðslu á. Forstjórinn Elon Musk segir að þarna sé kominn sá viðráðanlegi rafbíll sem hann hefur frá upphafi ætlað að framleiða og ætlað er að stuðla að sjálfbærum samgöngum. Model 3 er sagður ná 100 km/ klst. hraða úr kyrrstöðu á innan við sex sekúndum í grunnútgáfu sinni og draga rúmlega 400 kílómetra á einni rafhleðslu. Það getur hann með fimm fullorðna, sem sagt er að fara muni vel um innanborðs. Stað- hæfði Musk að innanrými Tesla- bílsins væri meira en í nokkrum bíl af sömu stærðargráðu. Það væri að þakka því að engin brunavél væri í bílnum. Og vegna þess eru fram- sætin í Model 3 framar en fólk á að venjast. Þar með eykst rými einnig fyrir farþega í aftursætum. Ódýrasta útgáfan af Model 3 mun kosta um 35.000 dollara í Banda- ríkjunum, jafnvirði rúmlega fjög- urra milljóna íslenskra króna. Menn sjá Model 3 fyrir sér sem keppinaut bíla á borð við BMW 3- seríuna, Mercedes-Benz C-Class og Audi A4. agas@mbl.is Rafbíll fær góðar viðtökur vestanhafs 276.000 pöntuðu sér Tesla Model 3 á þremur dögum Tesla Model 3 höfðar til mun stærri kaupendahóps en fyrri rafbílamódel fyrirtækisins. 2 | MORGUNBLAÐIÐ Bílaumboðið Askja stóð sig betur en önnur umboð fyrir Daimler AG, móðurfélag Mercedes-Benz, á markaðssvæði sínu í fyrra í sölu atvinnubíla. Þetta þótti Daimler rétt að halda upp á með því að veita Öskju sérstök verðlaun fyrir frammistöðuna. Á viðkomandui markaðssvæði Daimler eru yfir 130 mismunandi markaðir. Verðlaunin fékk Askja fyrir góða markaðshlutdeild í sölu á þremur mismunandi flokkum at- vinnubíla; litlum, millistórum og stórum sendibílum. Ulrik Krener frá Daimler AG, framleiðanda Mercedes-Benz bíla, afhenti Öskju verðlaunin 1. apríl síðastliðinn í höfuðstöðvum Öskju að Krókhálsi 11. „Við erum ákaflega stolt og ánægð með þessi verðlaun. Þetta er mikill heiður fyrir Öskju og starfsfólk fyrirtækisins. Við höfum lagt mikinn kraft og metnað í at- vinnubíladeildina okkar und- anfarin ár og það hefur skilað sér vel. Deildin hefur vaxið mikið samhliða auknum umsvifum í at- vinnulífinu hér á landi á undan- förnum árum. Söludeild atvinnu- bíla flutti á síðasta ári í nýtt og glæsilegt húsnæði að Fosshálsi 1 og við stefnum að því að efla sölu- deildina enn frekar til að mæta þörfum viðskiptavina,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmda- stjóri Öskju, í tilefni viðurkenning- arinnar. Hlutdeild Öskju í sendibílum á Íslandi hefur verið mjög góð og í ákveðnum flokkum er hlutdeild Mercedes-Benz Sprinter hæst á heimsvísu hér á landi. „Allir atvinnumenn þekkja Mercedes-Benz atvinnubílana og vita hvað þeir standa fyrir hvað varðar gæði, þægindi, endingu og hagkvæman rekstur. Vinsældir þeirra hér á landi koma okkur því ekkert á óvart. Atvinnubílarnir frá Mercedes-Benz eru fjölbreyttir og uppfylla ólíkustu þarfir við ýmsar aðstæður. Það eru spennandi tímar fram undan hjá okkur með atvinnubílanna og við munum ekk- ert slá af til að standa okkur í samkeppninni,“ segir Jón Trausti enn fremur. agas@mbl.is Standa vel að vígi í þremur stærðarflokkum Daimler verðlaunar Öskju fyrir sterka markaðshlutdeild Starfsfólk atvinnubíladeildar Mercedes-Benz hjá Öskju með verðlaunagripinn frá Daimler AG. Þrír Mercedes-Benz Actros stór- flutningabílar lögðu upp frá bæki- stöðvum Daimler í Stuttgart í Þýskalandi í byrjun síðustu viku og tóku stefnuna á Rotterdam í Hol- landi. Sem væri ekki í frásögur fær- andi nema sakir þess að bílstjóri var ekki í þeim, heldur óku bílarnir sjálfir frá Þýskalandi til Hollands. Langferð án ökumanna Aksturinn er liður í hollensku verkefni sem snýr að vöruflutn- ingum og flutningasamgöngum í Evrópu. Meðal annars er haldin ráðstefna þar sem nýjustu stefnur og straumar í vöruflutningum á vegum eru rædd, allt undir yf- irskriftinni „Netherlands European Truck Platooning Challenge 2016“. Til að vekja enn frekari athygli á viðfangsefninu hófu sex fylkingar flutningabíla, tveir bílar í hverri, akstur til Rotterdam í byrjun apríl. Lagt var upp frá flutningabíla- smiðjum í Belgíu, Danmörku, Finn- landi, Hollandi, Svíþjóð og Þýska- landi. Tóku bílsmiðirnir DAF, Daimler, Iveco, MAN, Scania og Volvo þátt. Kom fylkingin síðan til áfangastaðar í Rotterdam í miðri síðustu viku. Áskorun sú sem framleiðendur flutningabíla standa frammi fyrir er að bæta lestir flutningabíla þvert á landamæri. Með sjálfakstri trukk- anna geta þeir flutt vörur skilvirk- ar og þar með stuðlað að auknum hagvexti. Actros-trukkarnir eru búnir tölvuleiðsögubúnaðinum Highway Pilot Connect, sem felur í sér netsamskipti við aðra bíla (V2V) og er hluti af sjálfaksturstækni flutningabílsins. Aukin nánd, minni loftmótstaða Tækni þessi „leggur“ Actros- bílunum þremur innbyrðis með raf- rænum hætti. Aka þeir því um veg- ina eins og bílalest. Heldur bún- aðurinn 15 metra bili á milli þeirra í stað þess að 50 metrar verða að vera á milli þegar ökumaður er undir stýri flutningabíls. Þessi aukna nánd dregur úr loftmótstöðu og skilar sér í 10% minni eldsneyt- isnotkun, að sögn Mercedes-Benz. Til viðbótar styttist þriggja bíla lestin úr um 150 metrum í 80 og því er aukið rými á vegunum fyrir aðra bíla. Loks er viðbragðstími sjálf- ökubúnaðarins sagður aðeins 0,3 sekúndur meðan meðalmaður þarf 1,4 sekúndur til að bregðast við að- stæðum á vegunum. Með öðrum orðum væru samgöngur öruggari með tilkomu sjálfekinna flutn- ingabíla. agas@mbl.is Til öryggis sitja menn undir stýri Actros-trukkanna þótt bílarnir aki sjálf- ir. Hér eru þeir á leið til Hollands í þéttri lest. Mannlausir trukkar á ferð um Evrópu Ferlíki á þjóðvegum sem keyra sig sjálf atvinnutækis í notkun hjá verktaka- fyrirtækjum og iðnaðarmönnum, segir ennfremur í tilkynningunni. Sætin sótt í smiðju NASA Meðal annars var leitað í smiðju NASA við hönnun sætanna. Einnig Er Navar búinn LCD-skjá í sjálfum baksýnisspeglinum og er Nissan fyrstur bílaframleiðenda til að bjóða þann kost. Þá er fjöðr- unarkerfið í nýjum Navara hið fyrsta sinnar tegundar sem boðið er í þessum stærðarflokki pallbíla á Evrópumarkaði. Nýr Nissan Navara verður frum- sýndur hjá BL í aprílmánuði. jonagnar@mbl.is Bílablaðamenn á meginlandi Evr- ópu kusu hinn nýja og endurhann- aða Nissan NP300-pallbíl ársins 2016 (the International Pickup Aw- ard 2016) á alþjóðlegri hátíð sem haldin var í Lyon í Frakklandi í nóv- ember. Framleiðsla á nýja vinnu- hestinum hófst í bílaverksmiðju Nissan í Barcelona seint á síðasta ári og er von á honum í sýningarsal- inn hjá BL í byrjun apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BL. Þrír í úrslitum dómnefndar Val dómnefndar blaðamanna stóð á milli Nissan NP300 Navara, Mitsubishi L200 og Ford Ranger. Góðir aksturseiginleikar með nýrri sjálfstæðri afturfjöðrun ásamt öfl- ugri vél, miklum togkrafti og burð- argetu voru meðal þeirra kosta sem skiluðu Navara í sigursætið í vali blaðamanna. Einnig tiltók dóm- nefndin „flottar línur“ og „þægindi í farþegarými“ í umsögn sinni um Navara. Pallbílarnir sem komu til greina undirgengust ítarlegar prófanir þar sem kostir og gallar voru vegn- ir og metnir, m.a. með tilliti til kaupverðs og notkunargildis. Við hönnun á nýja bílnum var mark- miðið í senn að bjóða sambærileg þægindi og bestu sportjepparnir gera án þess þó að fórna eig- inleikum hans sem vinnuþjarks og Pallbíll ársins 2016 frumsýndur Brimborg kynnir nýjan Nissan Navara Bílablaðamenn völdu Nissan Navara pallbíll ársins 2016 í lok síðasta árs. Bíllinn verður frumsýndur hjá BL nú í mánuðinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.