Morgunblaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnubílar frá Mercedes-Benz voru í sviðsljósinu sl.
laugardag en þá hélt Bílaumboðið Askja sérstaka at-
vinnubílasýningu að Fosshálsi 1 kl. 12-16.
Mercedes-Benz er stærsti framleiðandi lúxus- og at-
vinnubíla í heiminum, eins og fram kom í tilkynningu
frá Öskju, og hafa bílarnir verið vinsælir hér á landi
sem og víða um heim. Mercedes-Benz-atvinnubílarnir
eru fjölbreyttir og uppfylla ólíkustu þarfir við ýmsar
aðstæður. Má þar nefna Citan-, Vito- og Sprinter-
sendibílana og glæsilegan V-Class. Þá ber mikið á
Atvinnubílar í aðalhlutverki
Vinnuþjarkar frá
Mercedes-Benz
frumsýndir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölmargir vinnuþjarkar frá ýmsum hliðum atvinnulífsins voru til sýnis hjá Öskju. Bílarnir eru svo sannarlega hver öðrum vígalegri á að líta, og til margs brúkanlegir.
Atvinnubílar frá Benz eru fáanlegir í ótal stærðum og gerðum en fáir
njóta þó viðlíka virðingar og hinn tímalausi harðjaxl sem kallast G-Class,
eða „Gelander“ og er hér í forgrunni. Eflaust draumabíll margra.
Þessi þjarkur frá Mercedes Benz ætti að fara nokkuð létt með að sinna
sínum skyldum utan alfaraleiða og er á stórum dekkjum.
Mercedes kemur víða við í atvinnulífinu og er meðal annars treyst fyrir sjúkraflutningum.
Fjölnotabíllinn Citan frá Mercedes-Benz var meðal sýningarbíla, hér í góðum félagsskap G-Class.
Sendibíllinn V-Class er meðal þeirra veglegustu í sínum flokki og ekki
óalgengt að fræga fólkið velji hann sem farskjóta í staðinn fyrir limósínu.
vinnuþjörkunum Actros, Antos, Arocs og Ateco úr
trukkadeildinni og einnig glæsilegum Tourismo-
hópferðabílum.
Á sýningunni voru ennfremur ýmsir sérútbúnir
Mercedes-Benz-bílar til sýnis í húsakynnum atvinnu-
bíladeildar Öskju. Má þar nefna VIP Sprinter, Jökla-
Sprinter, 24 tíma þjónustu Sprinter, Tourismo-
hópferðabíl, V-Class með hjólastólaaðgengi, Actros-
dráttarbíl og fleiri öfluga bíla.
jonagnar@mbl.is