Morgunblaðið - 12.04.2016, Síða 12
Hinir nýju Kia Sportage og Kia Op-
tima hlutu báðir hin eftirsóttu Red
Dot-hönnunarverðlaun í ár. Þetta
er í annað skiptið sem Sportage og
Optima hljóta þessi verðlaun fyrir
fallega hönnun í sínum flokkum.
Kia hefur hlotið 15 Red Dot-
hönnunarverðlaun fyrir bíla sína
síðan árið 2009, sem er einstakur
árangur. Allar gerðir Kia-bíla sem
eru nú framleiddar hafa fengið Red
Dot -verðlaun á þessum sjö árum.
Red Dot eru alþjóðleg hönnunar-
verðlaun sem veitt eru árlega af
Nordrhein Westfalen-hönnunar-
miðstöðinni í Essen í Þýskalandi.
Verðlaunin þykja ein þau eftirsótt-
ustu í heimi hönnunar.
„Hin alþjóðlega hönnunardeild
Kia á heiður skilinn fyrir frábært
starf og má vera stolt af þessum
verðlaunum. Fyrri gerðir Sportage
og Optima fengu Red Dot-verðlaun
sem var í okkar huga frábær
árangur. Báðir bílarnir hafa náð
mjög góðum árangri í sölu og Spor-
tage er söluhæsti bíll Kia í Evrópu
undanfarin ár. Það er mjög sér-
stakt og raunar frábært að ná að
endurtaka leikinn og verða þess
heiðurs aðnjótandi að fá Red Dot-
verðlaun aftur fyrir nýjar kynslóðir
Sportage og Optima,“ segir Peter
Schreyer, forstjóri og yfirhönnuður
Kia Motors.
Nýju Sportage- og Optima-bíl-
arnir hafa fengið góðar viðtökur
hér á landi eftir að þeir voru frum-
sýndir hjá Bílaumboðinu Öskju,
sem er umboðsaðili Kia á Íslandi.
Sportage hefur verið mjög vinsæll
á Íslandi og síðasta kynslóð sportj-
eppans var uppseld áður en nýja
kynslóðin kom til landsins í síðasta
mánuði, að því er segir í tilkynn-
ingu frá Öskju.
agas@mbl.is
Kia hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir bílana sína
Sportage og Optima hljóta
Red Dot-hönnunarverðlaunin
Kia Optima var verðlaunaður öðru sinni í Essen og ekki að furða.
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Með haustinu verður skylt að vera
með bílbelti spennt í hópferðabílum
í Noregi. Vanræksla á þeirri skyldu
varðar allt að 1.500 norskra króna
sekt, jafnvirði um 22 þúsund ís-
lenskra króna.
Samgöngustofan norska er að
hleypa af stokkum kynningar-
herferð vegna þessa. Þeir sem
spenna ekki belti þar til sektir
koma til framkvæmda verða góð-
fúslega áminntir um reglurnar og
hver viðurlögin við brot á þeim
verða.
Um þriðjungur ekki spenntur
„Það eru mjög margir sem
gleyma að spenna belti þó að þau
séu fyrir hendi í rútum og stræt-
isvögnum. Við viljum að það verði
hinn eðlilegasti og sjálfsagðasti
hlutur að brúka þau, segir í tilkynn-
ingu frá umferðardeild samgöngu-
stofunnar.
Rétt fyrir páska var gerð könnun
á notkun öryggisbelta í hópferða-
bílum í Noregi. Af 16.000 farþegum
voru 3.600 sem sinntu því ekki að
spenna beltin. Vestlendingar virð-
ast lengst komnir í að aðlaga sig
nýju reglunum því aðeins 4% þeirra
höfðu látið hjá líða að spenna belt-
in. Á landsvísu var hlutfallið miklu
hærra eða 22%.
Börnin á ábyrgð ökumanns
Í umfjöllun norskra fjölmiðla um
nýju sætisbeltareglurnar kemur
fram að almenningi finnst það ein-
kennilegt að áfram verður heimilt
að standa í strætisvögnum og engin
sekt við því þótt viðkomandi far-
þegar séu í engin belti festir. Und-
anþegnir beltanotkuninni verða
strætisvagnar í innanbæjarakstri,
og mun það vera í samræmi við
reglur Evrópusambandsins.
Rétt eins og í venjulegum fólks-
bílum verður það á ábyrgð bílstjór-
ans að farþegar undir 15 ára aldri
spenni bílbeltin.
agas@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Rúta á ferð yfir Múlakvísl. Af 16.000 farþegum í norskum rútum voru 3.600 ekki með beltin spennt.
Beltin borga sig í Noregi – bókstaflega
Dýrt að spenna ekki
beltin í rútum
Enginn kemst með tærnar þar
sem Ford F-serían hefur hælana
hvað varðar bílasölu í Bandaríkj-
unum. Um árangurinn nægir eitt
orð: sigurganga, og sem staðið
hefur ansi lengi.
Á nýliðnu ári seldust 780.000
eintök þar í landi af 17,5 milljóna
bíla heildarsölu. Og það er næst-
um orðið sjálfgefið að Ford F-
pallbílarnir séu í efsta sæti þegar
hvert ár er gert upp. Í því hafa
þeir nefnilega setið síðustu 34 ár-
in í röð! Verður það met seint
slegið, ef einhvern tíma. Líklega
aldrei.
Það er svo meðal annars að
þakka velgengni F-seríunnar að
Ford var mest selda bílamerkið í
Bandaríkjunum 2015 með rúmlega
2,5 milljónir bíla. Í næstu tveimur
sætum voru Chevrolet og Toyota
sem einnig seldu rúmlega tvær
milljónir bíla hvort fyrirtæki.
Hörð keppni meðal lúxusbíla
Í flokki lúxusbíla varð BMW
hlutskarpasti bílsmiðurinn með
346.023 selda bíla en keppnin var
mjög hörð í þessum geira því í
öðru sæti varð Lexus með 344.601
eintak og í þriðja Mercedes-Benz
með 343.088 bíla.
Jeep var það merki sem af þeim
20 fremstu sem jók mest við sig
milli ára, eða um 25%. Seldi Jeep
172.680 fleiri bíla 2015 en 2014.
Jólamánuðurinn var sá besti fyrir
Jeep en þá afhenti hann 89.654
eintök.
Af öðrum merkjum sem bættu
hressilega við sig voru Subaru
með 13% aukningu, GMC með 11%
og Volvo með 24% aukningu. Sé
farið út fyrir listann yfir 20
fremstu bílamerkin varð aukn-
ingin mest hjá Land Rover eða
37%.
Nissan bætti mest við sig
Alls voru seld 7,5 milljónir ein-
taka af hefðbundnum fjöl-
skyldubílum sem er samdráttur
um 2,3% frá árinu 2014. Sala jepp-
linga jókst hins vegar um 18% og
seldust í rúmlega fimm milljónum
eintaka. Þá var samanlögð sala
pallbíla, jeppa og lítilla sendibíla
4,7 milljónir eintök.
Nokkur umskipti hafa orðið á
bandarískum bílamarkaði síðustu
10 árin eða svo. Sá framleiðandi
sem bætt hefur mest við sig á því
tímabili er Nissan sem seldi 44%
fleiri bíla árið 2015 en 2005. Seldi
Nissan 411.152 fleiri bíla í Banda-
ríkjunum 2015 en 2005.
Í öðru sæti er Jeep sem aukið
hefur sölu á tímabilinu um 82%
(388.496 bíla viðbót) og í þriðja
sæti er Subaru með 197% aukn-
ingu en japanski bílsmiðurinn
seldi 386.673 fleiri bíla 2015 en
2005.
Samdráttur hjá Chevrolet
Svo eru það hinir sem séð hafa
sölu sína dragast saman á þessu
árabili. Þar er tjón Chevrolet mest
því bílrisinn sá seldi 525.777 bílum
færra í fyrra en 2005. Í öðru og
þriðja sæti urðu Chrysler og
Dodge/Ram. Hlutfallslega hefur
samdrátturinn þó orðið hjá Scion,
eða 64% færri eintök 2015 miðað
við 2005. Skammt þar á eftir voru
Chrysler og Volvo.
agas@mbl.is
Pallbílarnir í F-seríu Ford hafa verið mest seldu bílar í BNA í 34 ár.
Pallbílar Ford á toppinum í 34 ár
Vinsældamet sem
aldrei verður slegið
Sviptingar eru að eiga sér stað á
rafbílamarkaði í Bandaríkjunum en
ekkert skal sagt um hvort um
varanlegar breytingar er að ræða.
Fregnir fóru af því í forliðinni
viku að gríðarlegur fjöldi hefði ver-
ið pantaður af hinum væntanlega
nýja bíl Tesla Model 3. Í skuggann
af því hafa fallið fregnir af sam-
keppni Chevrolet Volt og Nissan
Leaf um toppsætið í rafbílasölunni í
ár.
Sé litið á tölfræðina seldust 1.865
Volt-rafbílar í mars, sem var 192%
aukning frá sama mánuði í fyrra,
en þá fóru 639 eintök af bílnum. Og
frá áramótum hafa selst 3.987 Volt,
sem er 113% aukning frá 2015, er
eintökin voru 1.874. Setti það strik í
söluna í fyrra að neytendur kusu þá
fremur að bíða annarrar kynslóðar
bílsins en kaupa þann bíl sem væri
að kveðja.
Nissan Leaf hefur farnast heldur
illa á árinu vestanhafs. Í marsmán-
uði seldust 1.246 eintök, sem er 31%
samdráttur frá í fyrra er 1.817 ein-
tök seldust í marsmánuði 2015.
Samdrátturinn frá áramótum er
svipaður, eða 28%. Hefur 2.931 ein-
tak af Leaf selst fyrstu þrjá mán-
uðina, miðað við 4.085 í fyrra.
Sé litið til baka og sala þessara
tveggja rafbíla í Bandaríkjunum
frá 2010 borin saman kemur í ljós
að Chevy Volt hefur selst í 92.737
eintökum en Nissan Leaf í 92.522.
Munar aðeins 215 bílum á þeim. Er
þetta í fyrsta sinn síðan í mars í
fyrra sem Volt tekur forystuna.
Meðan ekkert liggur fyrir um nýja
kynslóð af Leaf telja fróðir að Volt
muni áfram hafa yfirhöndina á
næstunni.
agas@mbl.is
Rafbílarnir takast á um toppsætið á Bandaríkjamarkaði
Volt tekur fram úr Leaf
Chevrolet Volt er með naumt forskot á Nissan Leaf vestanhafs.