Morgunblaðið - 12.04.2016, Side 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ
Jepparnir frá SsangYong voru í aðalhlutverki í
SsangYong-salnum hjá Bílabúð Benna.
Til sýnis voru jepparnir Rexton og Korando en allt
frá stofnun árið 1954 hefur SsangYong verið leiðandi
bílaframleiðandi í Suður-Kóreu.
Rexton er fullvaxinn og alvöru jeppi, byggður á
grind, með læstum millikassa og lágu drifi. Auk þess
er Rexton hlaðinn búnaði og þægindum. Korando
sportjeppinn er fjórhjóladrifinn, rúmgóður og vel bú-
inn fjölskyldujeppi. Á svæðinu voru líka athyglisverð-
ar útgáfur af eldri gerðum af SsangYong jeppum.
jonagnar@mbl.is
Ekki amalegt að byrja sumarið á nýjum jeppa
Rexton er voldugur jeppi sem er jafnt á heimavelli á götum
stórborga sem utan vega og ekki amalegur í svörtu.
Nauðsynlegt er að glugga í tölur og tölfræði þegar nýr bíll
er skoðaður, og helst að bera bækur sínar saman við aðra.
SsangYong Rexton jeppinn er stæðilegur að sjá, byggður
á grind, með læstum millikassa og lágu drifi.
Morgunblaðið/Eggert
Að hika er sama og að tapa, stendur þar. Þessi reynd-
ist seldur en fleiri voru á svæðinu, sem betur fer.
Bílabúð Benna blæs til jeppasýningar
Fjölskyldujeppinn Korando frá Ssang-
Yong er laglegur að sjá og verður ekki
annað sagt en að hárauður fari honum
vel enda sportlegur og sprækur.
Brimborg frumsýndi nýjan Mazda
MX-5, heimsbíl ársins 2016, laug-
ardaginn 2. apríl í sýningarsal
Mazda að Bíldshöfða 8. Einnig voru
til sýnis sérstakar sportútfærslur af
öðrum Mazda-bílum.
Fyrsti Mazda MX-5 bíllinn kom á
markað árið 1989, sló strax í gegn
og er í dag vinsælasti blæjubíll
heims, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Brimborg. „Um er að
ræða fjórðu kynslóð af þessum goð-
sagnakennda bíl, sem er frumsýnd
nú. Mazda MX-5 var nýlega valinn
heimsbíll ársins – 2016 World Car of
the Year 2016 – og einnig hlaut
hann hönnunarverðlaunin World
Car Design of the Year, sá fyrsti
sem hlýtur báða titlana,“ segir enn-
fremur í tilkynningunni. Þar að auki
varð hann hlutskarpastur í vali á bíl
ársins í Japan 2015-2016. Mazda
MX-5 hlaut einnig þennan eftirsókn-
arverða titil árin 2005-2006. Fleiri
verðlaun hafa fallið í skaut Mazda
MX-5. Hann var til að mynda valinn
„Roadster of the Year 2015“ af virta
bílatímaritinu Auto Express, hlaut
einnig hönnunarverðlaunin Red Dot
Design Award: Best of the Best
2015, og þá var hann auk þess valinn
Best Convertible 2016 af tímaritinu
What Car.
Kraftur og lipurð blettatígurs
„Nýr Mazda MX-5 er byggður á
firnasterkum rótum forvera síns og
hefur allt sem þessi goðsögn innan
sportbílaheimsins hefur verið þekkt
fyrir og meira til. Nýr MX-5 er hann-
aður í anda KODO – Soul of Motion
hugmyndafræðinnar sem innblásin
er af hreyfingum, krafti og lipurð
blettatígurs,“ segir þar ennfremur.
jonagnar@mbl.is
Mazda MX-5 frumsýndur hjá Brimborg
Heimsbíllinn 2016 frumsýndur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mazda 6 fékk sinn skerf af sviðsljósinu á Bíldshöfðanum og ekki að
ósekju því bíllinn þykir vera feikn vel heppnaður og fallegur.
Þó góðviðrisdagar séu ekki jafnmargir á Íslandi og á meginlandinu nýtur MX-5 sín í hvívetna.Mazda 6 er ekki síðri í skutbílsútgáfu. Nýtur „kodo“-hönnunin sín vel og í sedan-gerðinni.
Orðstír Mazda MX-5 nær langt aftur og áhugi gesta á sportbílnum mikill.
Útlit bílsins er – frá öllum hliðum séð – stórfínt, svo vitnað sé í sígildan
poppslagara Stuðmanna. MX-5 er alveg til fyrirmyndar.