Morgunblaðið - 02.05.2016, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 2. MAÍ 123. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Hátíðarhöldum frestað í Leicester
2. „Ég hef þagað allt mitt líf“
3. Gylfi lagði upp gegn Liverpool
4. „Lokaákvörðunin var auðveld“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sænski lögfræðingurinn og
glæpasagnahöfundurinn Viveca Sten
verður gestur höfundakvölds í Nor-
ræna húsinu á morgun klukkan
19.30. Bækur Sten hafa verið gefnar
út í meira en þremur milljónum ein-
taka í heiminum og þær hafa verið
þýddar á yfir 20 tungumál. Fyrstu
þrjár sögurnar um Morðin í Sand-
hamn hafa verið kvikmyndaðar með
Jakob Cedergren og Alexöndru
Rapaport í aðalhlutverkum. Á ís-
lensku hafa komið út bækurnar Í
hita leiksins (2016), Í nótt skaltu
deyja (2015), Í innsta hring (2014)
og Svikalogn (2013). Tinna Ásgeirs-
dóttir stýrir umræðu um bækurnar
á höfundakvöldinu. Aðgangur er
ókeypis.
Viveca Sten á
höfundakvöldi
Sópran-
söngkonan Lilja
Guðmunds-
dóttir kemur
fram á hádegis-
tónleikum í
Hafnarborg
ásamt Antóníu
Hevesi píanó-
leikara á morg-
un klukkan 12.
Fluttar verða
óperettur sem fjalla allar um veislur
og vandræði, en það er yfirskrift tón-
leikanna að þessu sinni. Einnig
hyggst leynigestur koma fram og
syngja dúett með Lilju.
Veislur og vandræði
í Hafnarborg
Á þriðjudag Norðvestan 8-18, hvassast norðvestantil en norðlæg-
ari og heldur hægari um kvöldið á Vestfjörðum. Rigning, slydda
eða snjókoma en þurrt syðra. Hiti um eða rétt yfir frostmarki um
landið norðanvert en allt að 8 stig á Suðausturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi norðanátt, 8-13 m/s seinnipart-
inn. Slydda nyrðra en stöku skúrir syðra. Hiti 0 til 9 stig.
VEÐUR
„Pressan er miklu meiri
hérna. Ég kom hingað fyrir
ágætis fjárhæð og hérna
hefur mikið verið talað um
það. Fyrir vikið er ætlast til
þess að ég skori nánast tvö
mörk í leik en ég skoraði
ekki í fjórum eða fimm leikj-
um,“ segir Viðar Örn Kjart-
ansson meðal annars við
Morgunblaðið í dag, en
hann skoraði þrennu fyrir
Malmö í sænsku úrvals-
deildinni í gær. » 1
Viðar Örn létti
pressunni
Nýliðar Víkings frá Ólafsvík komu
mörgum á óvart í gær þegar Pepsi-
deild karla hófst með fjórum leikjum.
Víkingar nældu í 2:1 útisigur í Kópa-
voginum gegn einu besta liði síðasta
árs, Breiðabliki. Eyjamenn byrjuðu
einnig með látum og unnu ÍA 4:0, en
þeim var heldur ekki spáð velgengni í
sumar frekar en Víkingi. Þá vann
Fjölnir útisigur á Val. »1,2,4,7
Ólafsvíkingar komu
á óvart í Kópavogi
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
KR-ingurinn Guðmundur Pétursson,
fyrrum landsliðsmarkvörður í fót-
bolta, þekkir það vel að ná árangri.
Hann var sæmdur Stjörnu KR á
aðalfundi félagsins í liðinni viku og
fagnaði því sérstaklega þegar KR
varð Íslandsmeistari í körfubolta fyr-
ir helgi, ekki síst vegna þess að 17 ára
nágranni hans, Þórir Guðmundur
Þorbjarnarson, er í liðinu, en Guð-
mundur var Íslandsmeistari á svip-
uðum aldri með KR í körfu fyrir 50
árum.
Guðmundur hefur fylgst með ná-
granna sínum vaxa úr grasi og verða
að manni. „Við höfum búið hlið við
hlið frá því hann var til þess að gera
nýbyrjaður að ganga og snemma var
ég sannfærður um að þarna væri af-
reksmaður framtíðarinnar,“ segir
Guðmundur.
Þórir byrjaði að leika með
meistaraflokki KR í fyrra en vakti
fyrst verulega atygli í vetur. Fæddist
ný stjarna í gærkvöldi? spurði Krist-
ján Jónsson í Morgunblaðinu sl.
haust eftir að Þórir hafði skorað 11
stig í röð í stórsigri KR á móti Njarð-
vík og skömmu síðar skoraði hann 41
stig í bikarleik.
Skapaður fyrir körfu
Guðmundur segir að framganga
piltsins hafi ekki komið sér á óvart.
Hann hafi margoft sýnt það í garð-
inum að hann sé boltastrákur og eftir
að farið hafi að togna úr honum hafi
verið ljóst að hann hefði líkamsbygg-
inguna í körfuna. „KR-heimilið á
móti okkur hefur verið sem annað
heimili hans og fyrir margt löngu
sýndi Hildur, mamma hans, mér
myndband þar sem hann skoraði í
mótaleik með skoti frá eigin körfu
yfir endilangan völlinn. Hann var
sigursæll upp alla yngri flokkana og
ég sé fyrir mér að hann fari í há-
skólakörfuna í Bandaríkjunum.“
Á unglingsárum Guðmundar var
algengt að menn væru í handbolta
eða körfubolta á veturna og í fótbolta
á sumrin. Hann segir að þar sem yfir-
leitt hafi ekki verið nema ein körfu-
boltaæfing á viku hafi strákarnir oft
farið út á Melavöll til þess að leika
sér í körfu á litlum velli sem útbúinn
var í stríðinu. „Ég var fyrst og fremst
fótboltamaður og var í fótbolta öllum
stundum en við strákarnir lékum
okkur þarna í körfu,“ rifjar hann upp.
Þessu hefur verið öfugt farið hjá
Þóri. Karfan hefur verið aðalatriðið
en hann lék sér líka í fótbolta þegar
hann var yngri.
Allir titlar eru ánægjulegir og
Guðmundur segir að sá nýjasti snerti
sig sérstaklega. „Ég fagna öllum titl-
um KR en þessi titill er skemmti-
legur vegna þess að fyrir hálfri öld
var ég Íslandsmeistari í körfu og nú
endurtekur næsti nágranni minn
leikinn.“
Stjörnur á stjörnur ofan
Næsti nágranni
endurtók leikinn
50 árum síðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nágrannar Guðmundur Pétursson og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í körfu.
Ljósmynd/Erling Aðalsteinsson
Stjarna KR Guðmundur Pétursson er tíundi KR-ingurinn sem fær þessa
viðurkenningu félagsins. Gylfi Aðalsteinsson, formaður KR, til hægri.
Haukar fá tækifæri til að verja Ís-
landsmeistaratitil sinn í handbolta
karla. Liðið tryggði sér í gær sæti í
úrslitarimmunni með sigri á ÍBV í
Vestmannaeyjum 30:28 og saman-
lagt 3:1. Afturelding knúði fram
oddaleik gegn Val með stórsigri í
Mosfellsbænum á laugardaginn,
29:16. »8
Haukar fá tækifæri til
að verja titilinn