Morgunblaðið - 02.05.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.05.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 Kringlunni - 103 Reykjavík - Sími 578 8989 - www.myrinstore.is Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is H armræn ástarsaga blæðandi úlfs frá hel- víti og ungrar stúlku eftir Unu Björk Guð- mundsdóttur, 15 ára, sigraði í myndasögusamkeppni Borgarbókasafns Reykjavíkur og Myndlistaskólans í Reykjavík í sam- starfi við Nexus. „Úlfurinn upplifir ást í fyrsta skipti þegar stúlkan færir honum gult blóm, en hún er sú eina sem hefur sýnt honum aðra tilfinn- ingu en hræðslu. Hún endurgeldur ást úlfsins. Úlfurinn er eilífur því hann kemur frá helvíti, en stúlkan aftur á móti dauðleg eins og aðrar mannlegar verur,“ segir Una Björk um söguþráðinn. Enskumælandi úlfur Að þessu sögðu blasir við að ást- in þeirra á milli er fyrir fram dauða- dæmd. Stúlkan deyr. Úlfurinn lifir. Myndasagan nefnist Drip drop. „Út af blóðinu sem lekur af úlfinum,“ út- skýrir höfundurinn, sem byggir sög- una upp sem ljóð – eitt ljóð í hverjum myndaramma. Sagan er sögð frá sjónarhóli úlfsins, sem reyndar tjáir sig á ensku. „Ég ætlaði að skrifa sög- una á íslensku en þegar ég byrjaði fannst mér auðveldara að skrifa ljóð á ensku,“ segir Una Björk. Hugarangur úlfsins kemur glögglega í ljós í næstsíðasta ljóðinu: It wasn’t long before I realised. I knew, I shouldn’t have been surprised. Face got wrinkled, eyes got wise. Then her body slowly dies. Og í lokasenunni er úlfurinn að- framkominn af sorg þar sem hann stendur við leiði stúlkunnar: What once was a flower is now a cold stone. What is now mud was once bone. I can’t take the sorrow, I cannot lie. Please lord, take me. I want to die. Eitraðar konur var þema sam- keppninnar í ár, þeirrar áttundu frá árinu 2009. Um tuttugu verk bárust og eru þau á myndasögusýningu sem opnuð var á laugardaginn í Borgar- bókasafninu í Grófinni þar sem verð- launaafhendingin fór fram. Söguhetja Unu Bjarkar fellur þó ekki strangt til tekið í flokk slíkra kvenna. Engu að síður komst dóm- nefndin að þeirri niðurstöðu að Una Björk ætti bestu söguna í keppninni, enda fengu þátttakendur algjörlega frjálsar hendur. Verkin gátu verið jafnt myndasaga eða stök mynd með myndasöguþema eða mynd sem tengdist myndasögum á einhvern hátt. Dómnefndina skipuðu Björn Unnar Valsson, bókmenntafræðingur Úlfur frá helvíti verður ástfanginn Eitraðar konur voru þema myndasögusamkeppni fyrir ungt fólk sem Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlistaskóli Reykjavíkur stóðu fyrir í liðnum mán- uði í samstarfi við Nexus. Una Björk Guðmunds- dóttir, 15 ára, bar sigur úr býtum fyrir ljóðrænu ástarsöguna Drip drop. Viðurkenningar Auk sigurvegarans fengu þrír þátt- takendur myndasögukeppninnar viðurkenningar fyrir góðar sögur: Matthías Sólon Regal (mynd efst t.v.), Arndís Björk Marínósdóttir (mynd efst t.h.) og Halldór Sánchez (mynd t.v.) Morgunblaðið/Árni Sæberg Margar hugmyndir Una Björk fær a.m.k. tvær hugmyndir á mánuði að myndasögu, hana vantar bara meiri tíma. Í samfélagi nútímans óttastmargir ágreining og gagnrýni.Þeir trúa því að ef upp kemur ágreiningur muni þeir tapa og að gagnrýni verði þeim of sársauka- full. Þeim finnst þeir ekki hafa rétt á að láta sjónarmið sín í ljós eða koma sér á framfæri. Lífið hefur mótað þá með þeim hætti að þeir trúa að hlutverk þeirra sé að sam- þykkja og hegða sér í samræmi við skoðanir og vilja annarra. Að vera sýnilegur, ófullkominn og láta í ljós eigin langanir gerir þá berskjald- aða fyrir árásum frá öðrum? Á þetta við um þig? Þá er líklegt að þú bregðist við þessu með því að vera ósýnileg(ur). Að segja ekki skoðun þína nema aðrir hafi sagt sína, og þá aðeins til að samþykkja skoðanir hinna. Að samþykkja flest sem aðrir biðja um. Að reyna í lengstu lög að komast hjá því að segja „nei“. Að gefa eftir stjórn á eigin lífi. Að komast hjá neikvæð- um viðbrögðum þeirra sem gætu verið ósammála. Að fela eigin hug- myndir, drauma, óskir og tilfinn- ingar. Að hegða þér fyrst og fremst í þeirri viðleitni að falla inn í umhverfið og hverfa. Að koma ekki fram sem sjálfstæð persóna heldur frekar eins og spegilmynd hugmynda, væntinga og markmiða annarra. Að gera allt til þess að forða þér frá því að vera þú sjálf- (ur) innan um aðra. Þú veist vænt- anlega að þessi bjargráð skila ekki góðum árangri. Að afneita sjálfum þér eða sjálfri þér í samfélagi við aðra er ekki gott. Það leiðir til auk- ins ótta, hjálparleysis, eftirsjár og depurðar. Í stöðugri keppni við aðra Annar hópur fólks lítur á lífið sem stöðuga keppni og baráttu við aðra. Ef þeir eiga ekki að lenda í því að verða ósýnilegir sjálfir þá verða aðrir að vera það. Þeirra sjónarmið verða að vera ofan á. Þeirra óskir skulu uppfylltar. Í sannleika gagnvart sjálf- um sér og öðrum Heilsupistill Haukur Sigurðsson sálfræðingur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.