Morgunblaðið - 02.05.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.05.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 Í andsvari við ræðu Árna PálsÁrnasonar um aflandsfélög á Al- þingi á föstudag benti Sigríður And- ersen á að Árni Páll færi fyrir flokki sem virtist tengjast félögum þar sem eignarhaldið væri ekki ljóst og vísaði til eigenda húsnæðis flokksins. Og Sigríð- ur spurði hvort Árni Páll hefði upplýs- ingar umfram þær sem komið hefðu fram í fjölmiðlum, sem hefðu nánast engar verið.    Árni Páll kaus aðsvara þessu með því að hann þekkti ekki eignar- haldið en réðst svo á Morgunblaðið, sem sagt hefur fréttir af þessu. Sagði hann blaðið hafa „bæði seint og illa birt leiðréttingar og upplýsingar frá eigendum húsnæðisins, og kann það nú kannski að skýrast af því hversu mikill fótur er fyrir fréttaflutn- ingnum að öðru leyti.“    Þetta eru hrein ósannindi.Morgunblaðið hefur birt allt sem hægt hefur verið að toga upp úr Sam- fylkingunni og leigusölum flokksins um það hverjir leigusalarnir eru, en vandinn er sá að um eigendurna ríkir alger leynd. Augljóst er að eitthvað er verið að fela en ekki verður fullyrt um hvað það er.    Sérkennilegt er að flokksmennskuli sætta sig við þetta leyni- makk. Enn sérkennilegra er að aðrir stórir fjölmiðlar skuli hjálpa Sam- fylkingunni við feluleikinn í stað þess að taka málið upp.    Hvers vegna spila þeir með Sam-fylkingunni í þessu? Hafa þeir bara áhuga á gagnsæi ef það fer ekki gegn hagsmunum Samfylkingar- innar? Sigríður Andersen Eru ósannindin eina vörnin? STAKSTEINAR Árni Páll Árnason Veður víða um heim 1.5., kl. 18.00 Reykjavík 4 skúrir Bolungarvík 4 skýjað Akureyri 6 léttskýjað Nuuk 7 skýjað Þórshöfn 5 alskýjað Ósló 10 skýjað Kaupmannahöfn 11 heiðskírt Stokkhólmur 10 heiðskírt Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 15 skúrir Brussel 16 heiðskírt Dublin 7 skúrir Glasgow 8 skýjað London 12 léttskýjað París 12 léttskýjað Amsterdam 17 heiðskírt Hamborg 12 heiðskírt Berlín 12 skýjað Vín 12 skýjað Moskva 7 heiðskírt Algarve 16 léttskýjað Madríd 10 skúrir Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 heiðskírt Róm 17 heiðskírt Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -5 léttskýjað Montreal 3 skúrir New York 16 alskýjað Chicago 9 alskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:54 21:56 ÍSAFJÖRÐUR 4:42 22:18 SIGLUFJÖRÐUR 4:25 22:01 DJÚPIVOGUR 4:20 21:30 Landsbankinn hf. býður til sölu allan eignarhlut sinn í fjárfestingafélaginu Eyrir Invest hf. Eignarhluturinn sem nemur 23,3% alls hlutafjár í Eyri Invest er boðinn til sölu í heild eða að hluta. Eyrir Invest er fjárfestingafélag sem stofnað var árið 2000. Helstu fjár- festingar félagsins eru 29,3% eignarhlutur í Marel hf. og 33,7% eignar- hlutur í Eyrir Sprotar slhf., fjárfestingafélagi sem fjárfestir í nýsköpunar- fyrirtækjum. Eiginfjárhlutfall Eyris var 54,5% um síðustu áramót sam- kvæmt ársreikningi. Söluferlið fer fram í samræmi við stefnu Landsbankans um sölu eigna í eigu bankans og er öllum opið sem teljast vera hæfir fjárfestar sam- kvæmt skilgreiningu í 9. tölulið 43. greinar laga nr. 108/2007 um verð- bréfaviðskipti. Áhugasamir fjárfestar geta haft samband við Fyrirtækjaráðgjöf Lands- bankans með því að senda póst á netfangið eyrir@landsbankinn.is, auk þess sem nálgast má stutta sölukynningu, trúnaðaryfirlýsingu, eyðublað vegna hæfismats og upplýsingar um hugsanlega hagsmunaárekstra á vef bankans, landsbankinn.is. Þeir fjárfestar sem uppfylla hæfismat fyrir þátttöku í söluferlinu fá afhent ítarlegri kynningargögn um Eyri Invest og gera tilboð á grund- velli þeirra gagna. Frestur til að skila trúnaðaryfirlýsingu og hæfismati vegna þátttöku í söluferlinu rennur út kl. 12:00 föstudaginn 13. maí 2016. Eignarhlutur Landsbankans í Eyri Invest til sölu Á aðalfundi Veiðifélags Laxár og Krákár á laugardaginn var sam- þykkt ályktun þar sem skorað er á yfirvöld umhverfismála, bæði á landsvísu og á sveitarstjórnarstigi, að bregðast við því alvarlega ástandi sem lýst hefur verið í lífríki Laxár og Mývatns í Suður-Þingeyjarsýslu. „Lífríki Mývatns og Laxár hefur verið undir miklu álagi undanfarna áratugi og svæðið er á rauðum lista Umhverfisstofnunar fjórða árið í röð. Kúluskíturinn, sem aðeins finnst á einum öðrum stað í heim- inum, er horfinn og botni Mývatns má líkja við uppblásinn eyðisand. Bleikjan hefur verið nánast friðuð í nokkur ár til að koma í veg fyrir út- rýmingu. Hornsílastofninn er í sögu- legri lægð. Við rannsóknir síðasta sumar veiddust 319 síli en sambæri- legar rannsóknir síðustu 25 ár hafa skilað 3.000-14.000 sílum,“ segir m.a. í ályktuninni. Morgunblaðið/BHF Mývatn Lífríki vatnsins og Laxár hefur verið undir miklu álagi. Áhyggjur af lífríki Laxár og Mývatns Flugmálafélag Íslands harmar þá ákvörðun Isavia að banna sjónflug á Reykjavíkurflugvelli undan- farnar vikur vegna yfirvinnubanns flugumferðar- stjóra. Fram kemur í ályktun frá ársþingi félagsins að þessi ákvörðun þýði í raun að almanna- og kennsluflug sé óheimilt á vellinum. Á sama tíma sé skortur á atvinnuflugmönnum, flugkennurum og öðru fagfólki í flugmálum vegna mikils vaxtar í flug- samgöngum, sem aftur séu burðarás íslenskrar ferðaþjónustu. „Flugumferð er eins og önnur umferð í landinu þar sem einstaklingar ákveða að ferðast loftleiðis á milli staða, stunda flugnám og fara í aðrar flug- tengdar ferðir líkt og á bílum eða reiðhjólum. Þrátt fyrir þessar augljósu staðreyndir ákveður Isavia að heimila alla starfsemi á Reykjavíkurflugvelli aðra en almanna- og kennsluflug. Ársþing Flugmála- félagsins telur þessa stöðu með öllu óásættanlega,“ segir enn fremur. Hvetur ársþingið Isavia og flug- umferðarstjóra til þes að ná þegar í stað samn- ingum og forða þannig frekara tjóni. „Til vara hvet- ur ársþingið Isavia til þess að aflétta íþyngjandi kröfum um flugumferðastjórn á Reykjavíkurflug- velli þegar veðurskilyrði til flugs eru ákjósanleg.“ Ósáttir við bann við sjónflugi í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.