Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.5. 2016 Kostar heimilisofbeldi milljarða? Talið er að kostnaður þjóð-félagsins vegna heimilis-ofbeldis gegn konum geti numið milljörðum króna árlega þegar allt er talið. Rannsókn stendur yfir og rétt að taka fram að upphæðin liggur ekki fyrir, en sé miðað við umfangið í þeim lönd- um sem Íslendingar bera sig gjarnan saman við, gæti verið um ótrúlegar upphæðir að ræða. Drífa Jónasdóttir afbrotafræð- ingur vinnur að rannsókninni þar sem markmiðið er að komast að raun um hvert sé umfang, eðli og kostnaður sem hlýst af þegar karl- menn beita konur heimilisofbeldi. Rannsóknin er jafnframt doktors- verkefni hennar við Læknadeild Háskóla Íslands. Kostnaðurinn er af ýmsum toga, þar sem birtingarmynd heimilis- ofbeldis er margvísleg. Aðilar sem gætu þurft að bregðast við eru til að mynda lögregla, dómstólar, sjúkraflutningamenn, læknar og annað starfsfólk sjúkrahúsa, sál- fræðingar, félagsráðgjafar, barna- verndarfulltrúar, starfsfólk vel- ferðarsviðs og starfskonur Kvennaathvarfsins. Sé annar kon- ar kostnaður skoðaður má nefna að þolendur heimilisofbeldis eru líklegri en þær konur sem ekki hafa reynslu af slíku, að búa við fleiri heilsufarsvandamál, vera með sjálfsvígshugsanir, glíma við kvíða og þunglyndi. Mikilvægt er að rannsaka heimilisofbeldi nánar og allir þeir sem ég hef leitað til í því skyni að fá upplýsingar hafa tekið mér mjög vel.“ Rannsóknin beinist að konum á Íslandi og heimilisofbeldi gegn þeim árin 2013 og 2014. Drífa leit- ar fanga hjá Landspítalanum (LSH), hjá lögreglu og í velferðar- kerfinu. Upplýsingar eru mjög misjafnlega aðgengilegar og flókið verk að afla þeirra, en hún vonast til að hluti frumniðurstaðna geti legið fyrir í haust. „Ég er langt komin með að safna gögnum á Landspítalanum og hef þegar lesið þúsundir skýrslna,“ segir hún. Þessi vinna er tímafrek vegna þess að ofbeldismál á heimilum eru ekki flokkuð sérstaklega í heilbrigðis- kerfinu eða í velferðarkerfinu. Ekki er til greining, eða kóði fyrir heimilisofbeldi og þar af leiðandi ekki hægt að kalla fram gögn úr kerfunum. Auðveldara er að vinna úr gögn- um lögreglunnar því þar eru öll mál flokkuð. „Ég hef óskað eftir ópersónugreinanlegum gögnum frá lögreglunni og það verður í sjálfu sér ekki mikil vinna að greina þau.“ Miðað við gögn sem Drífa hefur skoðað má ætla að fimm konur á Íslandi séu beittar heimilisofbeldi á hverjum einasta degi og að á bilinu 180-400 ófrískar konur verði fyrir heimilisofbeldi hérlendis á ári – ótrúlegt en satt. Drífa segir að mikið hafi breyst í þessum efnum hér heima eftir að verklagi var breytt á Suðurnesjum árið 2013, en nú hefur Suðurnesja- módelið, Að halda glugganum opn- um eins og það er kallað, verið tekið upp á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að bæta rannsóknir í heimilisofbeldismálum með mark- vissari fyrstu viðbrögðum lög- reglu, fækka ítrekunarbrotum, að- stoða þolendur og gerendur markvisst, nýta betur úrræði um nálgunarbann og brottvísun af heimili og að ná fleiri málum í gegnum refsivörslukerfið. Samkvæmt nýjum verklags- reglum lögreglu um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála eru til dæmis verksummerki ljós- mynduð, þolanda gerð grein fyrir rétti sínum, skýrsla er tekin og sömuleiðis er óskað eftir fulltrúa barnaverndar eða félagsþjónustu ef börn eru á heimilinu þegar of- beldið á sér stað – sem er í um 40% tilfella. Eitt af markmiðum rannsóknar- innar er að vitundarvakning verði um heimilisofbeldi. Drífa segir of- beldið falið og á ákveðinn hátt allt annars eðlis en mörg önnur mál. Eitt af því sem hana hafi langað að rannsaka sé t.d. hvað sé ólíkt með komum á slysa- og bráðamótttöku LSH, þegar ástæðan er heimilis- ofbeldi, miðað við aðrar komur. Gögn benda til þess að þeir sömu hafi beitt ofbeldi hvað eftir annað en Drífa segir ekki eins auðvelt að „komast upp með“ að beita heimilisofbeldi þegar svona vel sé tekið á málum strax og eft- irfylgnin orðin jafn mikil og raun beri vitni. „Það var auðvitað kostnaðar- samt fyrir lögregluna að fara ítrekað í útköll á sama heimili og ef til vill handtaka sömu mennina aftur og aftur. Breytt vinnulag hefur skilið góðum árangri, ítrek- unarbrotum fækkar og fleiri mál fara áfram í kerfinu.“ Morgunblaðið/Árni Torfason Drífa Jónasdóttir afbrotafræðingur rannsakar kostnað við heimilisofbeldi á Íslandi með því að skoða gögn frá Landspítalanum, lögreglunni og úr félagslega kerfinu. Talið er að fimm konur séu beittar heimilisofbeldi hér á landi á hverjum einasta degi. Drífa Jónasdóttir: Ofbeldið er falið og annars eðlis en mörg önnur mál. Morgunblaðið/Styrmir Kári Upplýsingar um kostnað vegna heimilisofbeldis hafa verið teknar saman, „en aldr- ei áður á jafn umfangsmikinn hátt og ég er að gera núna,“ segir Drífa. Hún segist hafa verið spurð hvers vegna hún rannsaki bara ofbeldi karla gegn kon- um. „Hvað með karla sem þolendur, börn, innflytjendur, samkynhneigða? Ég hef feng- ið ýmsar spurningar en ákvað að afmarka rannsóknina og hafa ekki of víðfema.“ Drífa segir að sumum þyki kaldranalegt að rannsaka of- beldið í því samhengi sem hún geri. „Ofbeldið kostar samfélagið bara svo mikið að það er raunverulegt efna- hagsmál. Þegar það kostar þjóðfélagið milljarða að menn beiti heimilisofbeldi, er það ekki þeirra einkamál.“ Fyrsta hugmynd Drífu að verkefninu var allt önnur en er úr varð. „Fyrst ætlaði ég í raun bara að komast að því hver kostn- aðurinn var með því að áætla og taka saman tölur úr hin- um ýmsu kerfum þjóðfélags- ins. Það var dálítil krúttpæl- ing að skrifa skýrslu um kostnaðinn en ég ákvað síðar að gera alvöru rannsókn.“ Hví bara konur? ’ Óttastu hann undir einhverjum kringumstæðum? Gagnrýnir hann þig, vini þína og/eða fjölskyldu? Gerir hann lítið úr þér fyrir framan aðra? Eyðileggur hann persónulegar eigur þínar af ásettu ráði? Hrópar/öskrar hann á þig eða börnin? Ógnar hann þér með svipbrigð- um, hreyfingum eða bendingum? Af heimasíðu Kvennaathvarfsins INNLENT SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.